Vesturland - 30.04.1951, Page 1
w ® aJeszrFwzxm sm ÍJSFSS7ES»SM i mm
XXVIII. árgangur | ísafjörður, 30. apríl 1950. j 5. tölublað.
ísafjörður fær nýjan togara.
ísfirðingur h.f. verður eigandi hans.
Þann 6. þ.m. var undirritaður samningur milli ríkis-
stjórnarinnar og Isfirðings h.f. um kaup á einum hinna
nýju togara, sem nú eru í smíðum í Englandi.
Fjármálaráðherra, Eysteinn Jónsson, undirritaði samn-
inginn f.h. ríkissjóðs, en þeir Sigurður Bjarnason og Ás-
berg Sigurðsson f.h. ísfirðings h.f.
Togari sá, er ísfirðingur h.f. hef-
ur fest kaup á er byggður í skipa-
smíðastöð Alexander Hall & Co.,
Ltd. Aberdeen og mun hann tilbú-
inn til afhendingar í lok júnímán-
aðar n.k. Núverandi nafn skipsins
er Stígandi, en því verður að sjálf-
sögðu breytt.
Allir Isfirðingar munu fagna
því, að ríkisstjórnin gaf þeim kost
á að fá einn hinna nýju og glæsi-
legu togara hingað til bæjarins
með alveg sérstökum vildarkjör-
um og þar með sýnt skilning sinn
á því erfiða atvinnuástandi, sem
hér hefur verið ríkjandi.
Kaupverð togarans er áætlað 8,5
miljón krónur, en útborgunarverð
hans var aðeins 300 þús. kr.
Þessi einstæðu kostakjör byggjast
á þingsályktunartillögu Sigurðar
Bjarnasonar o.fl., sem samþykkt
var skömmu fyrir jólin í vetur, um
að heimila ríkisstjórninni að stað-
setja nokkra hinna nýju togara í
bæjarfélögum, sem ættu við sér-
staklega erfitt atvinnuástand að
búa.
Skutull og Baldur bera sig illa
yfir þeirri ákvörðun ríkisstjórnar-
innar, að ráðstafa nýja togaranum
til ísfirðings h.f., en ekki til fyrir-
hugaðrar bæjarútgerðar ísaf jarðar
Þessi ákvörðun ríkisstjórnar-
innar, að láta Isfirðing h.f., sem
stofnaður var fyrir 5 árum, fyrir
forgöngu bæjarstjórnar ísafjarðar,
sem lagði fram meirihluta hluta-
fjárins, er öllum heilskyggnum
mönnum augljós og auðskiljanleg.
Þetta félag á nú togarann ís-
borg, sem seljanlegur væri í dag
á ca. 5,5 milj. kr., en skuldar út á
hann ca. 2,5 milj. Félagið ætti því
um 3 milj. umfram skuldir, ef sala
færi nú fram. Að reka tvo togara
saman er sáralítið dýrara, en að
reka aðeins einn togara, hvað
snertir skrifstofuhald, verkstjórn
og annan sameiginlegan kostnað.
Að reka saman ódýran togara og
dýran togara ætti og að vera hag-
kvæmt og skapa lánveitanda, sem
hér er ríkissjóður, meiri trygg-
ingu, en ef nýtt útgerðarfélag,
hvort sem væri nýtt hlutafélag eða
bæjarútgerð, sem tæki við rekstri
hins nýja, dýra skips. Akureyring-
ar hugðust t.d. stofna nýtt hluta-
félag um hið nýja skip, en ríkis-
stjórnin setti það skilyrði, að Út-
gerðarfélag Akureyringa h.f. yrði
eigandi skipsins.
Þessi sjónarmið réðu úrslitum
um afstöðu ríkisstjórnarinnar við
úthlutun togarans. Togaranum var
úthlutað til hlutafélags, sem bæj-
arstjórn Isafjarðar á meirihluta
hlutafjársins í og bæjarstjórn ísa-
fjarðar kýs meirihluta stjórnar í.
Félag, sem bæjarstjórn ísafjarðar
stofnaði í því skyni, að reka tog-
araútgerð frá ísafirði.
Bæjarstjórnin samþ. að sækja
um tvo af hinum 10 togurum fyrir
bæjarútgerð á Isafirði. Auk þess
sem hún mælti með umsókn frá
Isfirðing h.f. og Grími Kristgeirs-
syni o.fl. M.a.o. var sótt um 4 tog-
ara frá Isafirði af bæjarstjórn eða
með meðmælum hennar.
Þessi samþ. vakti ekki traust,
heldur var skoðuð sem hreint grín.
Engum heilvita manni gat til hug-
ar komið að hingað fengist 4 af
10 togurum, jafnvel þótt nógir
peningar hefðu verið handbærir, til
að greiða útborgun verðs þeirra,
hvað þá er vitanlegt var, að ekk-
ert fé til slíks var fyrir hendi.
Þessi fyrstu afskipti bæjarstjórn-
ar af málinu var því ábyrgðarlaust
hneyksli, sem flestir ísfirðingar
skömmuðust sín fyrir.
Blöð hinna nýtrúlofuðu, Skutull
og Baldur, hafa gert togaramálið
að umræðuefni að undanförnu og
gætir mikillar gremju, einkum í
því fyrr nefnda, út í það að ísfirð-
ingur h.f. skuli af ríkisstjórninni
hafa verið úthlutað togara.
Sjálfstæðismönnum kemur ekk-
ert á óvart hnútur frá krötunum í
þessu máli, því kratarnir hafa
löngum sýnt togaramálum fullan
f jandskap. Þeir seldu Skutul burtu
í byrjun mesta blómaskeiðs tog-
araútgerðarinnar hér á landi.
Jþegar Isfirðingur h.f. sótti um
bæjarábyrgð á stofnlánum hins
nýja skips, þorðu kratarnir ekki
annað en greiða henni atkvæði af
ótta við fólkið. Þeir hafa hlotið
fyrirlitningu alls almennings í
bænum fyrir skrípaleik sinn í tog-
aramálinu, því að almenningur
Þau tíðindi gerðust á aukafundi
bæjarstjórnar s.l. þriðjudagskvöld,
að fulltrúi sósíalista, Haraldur
Steinþórsson, kvaddi sér hljóðs ut-
an dagskrár í fundarbyrjun og til-
kynnti þá samþykkt Sósíalistafé-
lags ísafjarðar „að segja fyrir-
varalaust slitið samstarfi við
Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn
ísafjarðar og jafnframt að sam-
starf við Alþýðuflokkinn um
stjórn bæjarmála væri hafið.
Tók fulltrúi sósíalista sér sæti
við hlið Alþýðuflokksmanna á
íundinum.
Hinir nýju samstarfsflokkar
gáfu enga tilkynningu um hver
yrði bæjarstjóri þeirra, en boðuðu
það, að nýs bæjarstjóra væri að
vænta næstu daga. Fyrr um dag-
inn hafði Sjálfstæðisflokknum
borizt eftirfarandi bréf frá Sósíal-
istafélagi Isafjarðar.:
„Isafirði, 24. apríl 1951.
Á fundi Sósíalistafélags ísa-
fjarðar í gær var eftirfarandi til-
laga samþykkt éinróma:
gerir sér fyllilega ljóst, að þeir
hafa aldrei haft hug á því, að ísa-
fjörður verði togaraútgerðarbær.
Það er fyrir velvilja ríkisstjórn-
arinnar að þetta skiþ fékkst og fyr
ir harðfylgi og dugnað helztu for-
ystumanna Sjálfstæðisflokksins
hér í bæ, þeirra sömu manna og
rauðu flokkarnir nú svívirða mest.
Stofnlánin eru tryggð með 1. og
2. veðrétti í skipinu sjálfu, auk
þess sem 1. veðréttarlánið er
tryggt með ábyrgð ríkissjóðs og
2. veðréttarlánið með veði í fiski-
mjölsframleiðslu skipsins. Má því
öllum vera ljóst, að bæjarábyrgð
á þessum lánum er formsatriði
eitt, þar sem lánin eru margtryggð
á annan hátt.
„Sósíalistafélag ísafjarðar sam-
þykkir að segja slitið samstarfi
því, sem verið hefur um stjórn
bæjarmálefna milli Sjálfstæðis-
flokksins og sósíalista og lýsir yf-
ir, að það telur því málefnasamn-
ing flokka þessara úr gildi fallinn.
Ástæður fyrir ákvörðun þessari
eru fyrst og fremst eftirfarandi:
1. Forustumenn Sjálfstæðis-
flokksins, þar á meðal forseti bæj-
arstjórnar, hafa af alefli beitt sér
gegn því, að togari sá, sem ísfirð-
ingum var úthlutað, yrði afhentur
bæjarstjórn ísafjarðar, sem ein
hafði ítrekað umsókn sína um tog-
ara samkvæmt því sem fyrir var
lagt af ríkisstjórn.
í þess stað beittu þeir áhrifum
sínum til að ná yfirráðum yfir
skipi þessu til handa ísfirðingi h.f.,
sem þessir sömu menn hafa alger-
lega yfirráð yfir, og það jafnvel
þótt vitað væri, að bæjarsjóður
mundi þurfa að ábyrgjast alger-
lega áhvílandi lán vegna kaupa á
togaranum.
\
Þetta sýnir fullkomna lítilsvirð-
Samstarf rofið. — Samstarf hafíð.
Flokkar sundrungar og óheilinda hafa
lagst í eina sæng.