Vesturland - 11.07.1951, Síða 1
QJBR® S/eSSrFWZOURH S3ÚGFS3’Æ$»SMaXNa
XXVIII. árgangur
ísafjörður, 11. júlí
I
1951.
10. tölyblað.
Hörmulegt slys.
Rétt eftir kl. 2 e.h. s.l. sunnudag skeði það sviplega slys á Ós-
hlíðarvegi, að stórt bjarg hrapaði ofan úr fjallinu og lentiástórri
fólksflutningabifreið, með þeim afleiðingum að tveir ungir menn
létu lífið þegar í stað en aðrir tveir særðust mjög hættulega. Er
talið að frábært snarræði bifreiðastjórans, Marteins Eyjólfssonar,
liafi forðað því að ekki varð þarna enn hroðalegra slys.
Sorglegur endir á skemmtiferð.
Iþróttaíólk úr knattspyrnufélaginu Þór á Akureyri hafði farið
um morguninn í skemmtiferð út í Bolungarvík og með þeim
Haraldur Steinþórsson, formaður I.B.Í. og Sverrir Guðmundsson,
bankaritari. í bifreiðinni var ennfremur Ásgeir Guðmundsson
í Æðey. Fólkið var á leiö til baka inn til ísafjarðar Qg ók í bif-
reiðinni 1-51, sem var fullskipuð, en hún getur flutt 30 farþega.
Er bifreiðin var komin rétt inn fyrir svonefndan Sporhamar, sem
er utarlega í hlíðinni varð stúlka ein í bílnum þess allt í einu vör,
að stórt bjarg kom veltandi niður hlíðina og stefndi beint á bíl-
inn. Bifreiðarstjórinn, Marteinn Eyjólfsson, jók þá hraða bifreið-
arinnar eftir því sem unt var, til þess að reyna að forða slysinu,
en í sama bili lenti bjargið á hægra afturhorni hennar og sneið
aftasta sætið að mestu leyti af. Bifreiðarstjórinn stöðvaði samt
ekki bifréiðina, því að hún var enn í yfirvofandi hættu af öðru
bjargi, sem einnig stefndi á hana, og tókst honum með þessu
snarræði og viljafestu að koma bifreiðinni úr hættu. Er talið full-
víst, að ef eitthvert smáhik eða fát hefði gripið bifreiðastjórann,
hefðu bæði björgin lent á bílnum, sem sennilega hefði þá oltið út
af veginum og niður í f jöru, og allir sem í henni voru annaðhvort
farizt eða limlezt óskaplega.
Tveir létust þegar, en tveir aðrir særðust hættulega.
Eins og fyrr segir, sneið bjargið svo til af aftasta sætið í bíln-
um, en þar sátu þeir Kristján Kristjánsson og Þórarinn Jónsson,
sem biðu þegar bana, Þorsteinn Svanlaugsson og Halldór Árna-
son sem slösuðust mjög alvarlega, en fimmti maðurinn slapp með
minniháttar meiðsl á hendi og höfði. Allir þessir menn voru frá
Akureyri. Aðrir, sem í bifreiðinni voru sluppu ómeiddir, en sumir
fengu snert af taugaáfalli.
Brugðu skjótt við.
Þegar eftir slysið, var maður sendur út að Ósi til að hringja
eftir lækni og sjúkrabíl. Er hann var kominn inn fyrir Hólana
mætti hann bifreið frá Bolungarvík, sem þegar sneri til baka
og sótti héraöslækninn þar, Hinrik Linnet. Brá hann þegar við
og var kominn á slysstaðinn eftir stutta stund, þar sem hann
gerði að sárum hinna slösuðu. Litlu síðar komu f jórir læknar frá
ísafirði og með þeim hjálparsveit skáta, og voru hinir slösuðu
fluttir með sjúkrabifreið inn til Isafjarðar og lagðir þar á sjúkra-
hús.
Þungur harmur kveðinn að ættingjum og vinum.
Þeir, sem biðu bana í þessu vofeiflega slysi, voru báðir korn-
ungir menn. Kristján Kristjánsson var aðeins 20 ára, en Þórarinn
Framhald á 4. síðu.
- -*
Einu f jölmennasta þingi
S.U.S. lokið.
Á 11. þingi S.U.S., sem haldið var á Akureyri dagana 29.
júní til 1. júlí s.l., voru mættir 136 fulltrúar úr flestum
kjördæmum landsins. Mikill f jjöldi mála var tekinn til með-
ferðar á þinginu og urðu um sum þeirra fjörugar um-
ræður.
Magnús Jónsson, lögfræðingur, var einróma endurkjör-
inn formaður S.U.S.
Þingið sett og kosið í nefndir.
Magnús Jónsson, formaður sam-
bandsins, setti þingið með stuttri
ræðu kl. 10 árdegis þann 29. júní
og bauð fulltrúa velkomna. Kvaðst
hann vona, að störf þessa þings
mættu verða giftudrjúg fyrir ís-
lenzka æsku og sýna hinn sanna
hug hennar bg vilja til þess að
leysa úr þeim vandamálum, sem
nú steðja að þjóðinni, á þann veg,
að hagsmunir allra stétta séu virt-
ir og hafðir í huga, því að það eitt
sé í samræmi við stefnu Sjálfstæð-
isflokksins, sem til alþjóðarheilla
horfir, því að kjörorð hans sé:
Stétt með stétt. Síðan lagði hann
fram drög að ályktunum, sem öll-
um var vísað til nefnda, en kosn-
ing í þær fór fram á þessum fundi,
en honum lauk um kl. 12 á hádegi.
«
Skýrsla sambandsstjórnar.
Hlé var á þingfundum til kl. 4 s.
d. til nefndarstarfa, en þá hófst
fundur aftur. Flutti þá Magnús
Jónsson, formaður, skýrslu sam-
bandsstjómar. Skýrði hann ýtar-
lega frá hinum umfangsmiklu
störfum S.U.S., stjórnmálanám-
skeiðum, fundahöldum, héraðsmót-
um, útgáfustarfsemi og fleira.
Kom það greinilega í ljós af þess-
ari skýrslu formanns, hversu
geysiöflug samtök ungra sjálfstæð
ismanna eru orðin, enda er S.U.S.
nú langsamlega sterkustu stjórn-
málasamtök ungra manna í land-
inu. Var gerður mjög góður rómur
að skýrslu formanns. Hófust síðan
umræður um þingmál, og höfðu
allmargar nefndir þegar skilað á-
liti. Fundarstjóri á þessum fundi
var Jónas Rafnar, alþm., en ritarar
fyrir allt þingið voru kjörnir þau
Þór Vilhjálmsson, Rvík og Jóhanna
Pálsdóttir, Akureyri.
Um kvöldið sátu svo þingfulltrú-
ar sameiginlega kaffidrykkju í
boði sambandsstjómar. Þar fluttu
fulltrúar ávörp og talaði Guðfinn-
ur Magnússon fyrir Fylki á Isa-
firði. Alls voru flutt þarna ávörp
frá 19 félögum og héraðssamtök-
um ungra sjálfstæðismanna.
Magnús Jónsson endurkjörinn
formaður S.U.S.
Á laugardaginn hófust fundir kl.
10 árdegis og var Matthías Bjama-
son kjörinn fundarstjóri. Stóðu
þeir allan daginn til kl. 18,30 s.d.
og urðu oft f jörugar umræður. Síð-
ast fór fram kosning formanns og
stjórnar sambandsins til næstu
tveggja ára. Var Magnús Jónsson,
lögfræðingur, frá Mel, einróma
kosinn formaður í annað sinn og
ákaft hylltur af þingfulltrúum.
Kosningu í aðalstjórn S.U.S., auk
Magnúsar, hlutu þessir menn: Jón-
as G. Rafnar, alþm., Ak., Gunnar
Helgason, erindreki, Rvík, Ásgeir
Pétursson, fulltrúi, Rvík, Geir
Hallgrímsson, lögfræðingur, Rvík,
Eyjólfur K. Jónsson, st.júr., Rvík
og Matthías Bjarnason, ísafirði. í
varastjórn voru þessir kjömir:
Gunnar G. Schram, Ak., Guðmund-
ur Garðarsson, Hafnarf., Gísli
Andrésson, Kjósarsýslu, Jóhann
Friðfinnsson, Vestm.eyj. og Böðv-
ar Steinþórsson, Rvík.
Að þessum kosningum loknum
var þinginu slitið.
F.U.S. Vörður, Akureyri, gekkst
fyrir dansleik um kvöldið á Hótel
Norðurland og var þingfulltrúum
öllum boðið þangað.
Það mun óhætt að fullyrða, að
þetta 11. þing S.U.S. sé eitthvert
það bezta, sem ungir sjálfstæðis-
menn hafa haldið og samtökum
þeirra til sóma.