Vesturland - 29.09.1951, Side 1
m J 3JSi w aJessrínm 3® SOtSiH S3ÚL 1FS3Í£S»SMi 1 wm
XXVIII. á] fgangur ísafjörður, 29. september 1951 12.—13. tölublað.
Sólborg er stærsta skip togaraflotans
ísfirðingar íögnuðu hinum nýja
togara sínum 29. ágúst s.l.
Hinn nýji togari Isfirðinga, Sólborg, kom hingað til Isa-
fjarðar 29. ágúst s.l. og lagðist að bæjarbryggjunni kl. 6
síðdegis. Mikill fjöldi bæjarbúa fagnaði komu skipsins af
alhug, og voru fánar dregnir að hún um allan bæinn.
Þegar Sólborg lagðist að bæjar-
bryggjunni kl. 6 e.h. söng Sunnu-
kórinn, undir stjórn Jónasar Tóm-
assonar, Islands fáni, eftir söng-
stjórann. Því næst flutti Matthías
Bjarnason, forseti bæjarstjómar,
ávarp og bauð skipið og skipshöfn
þess velkomið til Isafjarðar, og
ámaði skipstjóra og skipshöfn
allra heilla í starfi sínu, en að því
loknu var hrópað ferfalt húrna fyr-
ir Sólborg og skipshöfn hennar. Þá
söng Sunnukórinn Faðir andanna
en síðan flutti Ásberg Sigurðs-
son, framkvæmdastjóri Isfirðings
h.f., sem er eigandi skipsins, ávarp
og þakkaði hlýjar og alúðlegar
móttökur, en hann kom heim með
skipinu frá Bretlandi. Gat hann
þess, að Sólborg væri stærsta skip
íslenzka togaraflotans. Að loknu
ávarpi hans söng Sunnukórinn í
faðmi fjalla blárra, en síðan var
almenningi boðið að skoða skipið,
og þekktust margir það boð.
Um kvöldið bauð stjórn Isfirð-
ings h.f., skipshöfn Sólborgar,
bæjarstjóm og nokkrum öðrum
gestum til kaffidrykkju að Upp-
Togarinn S Ó L B O R G.
sölum. Formaður stjómar Isfirð-
ings h.f., Matthías Bjamason,
stjórnaði og las upp heillaskeyti
frá Sigurði Bjarnasyni og Hauk
Helgasyni, í hófinu. Flutti hann
við það tækifæri stutta ræðu, en
auk hans töluðu Ásberg Sigurðs-
son og Haraldur Steinþórsson,
settur bæjarstjóri. Sungið var á
milli ræðanna, og stjómaði Jónas
Tómasson söngnum.
Stærsti togari flotans.
Sólborg er áttundi togarinn af
þeim tíu togurum, sem ríkisstjórn-
in hafði samið um smíði á í Bret-
landi, og síðasti eimtogarinn.
Lengd skipsins er 183,5 fet, breidd
30 fet og dýpt 16 fet, og er það
því 6 y2 feti lengra en Isborg. Það
er 732 brúttósmálestir að stærð,
byggt í skipasmíðastöð Alexander
Hall & Co. Ltd. í Aberdeen, en sú
skipasmíðastöð hefir byggt 10 ný-
sköpunartogara fyrir Islendinga
eftir stríðið. Sólborg er systurskip
togaranna Harðbaks og Júní. .
Aðalvél skipsins er 1300 hest-
öfl, og hefir það olíugeyma fyrir
235 tonn af brennsluolíu. Auk þess
em í skipinu tvær 80 kw. og ein
15 kw. ljósavél. Sólborg fór í
reynsluför 22. ágúst, og var gang-
hraði skipsins 12 sjómílur, en með
alganghraði skipsins er um 12y2
sjómíla.
Sólborg er búin öllum fullkomn-
ustu öryggistækjum. Tveir dýptar-
mælar eru í skipinu, miðunarstöð,
radar, rafmagnsvegmælir og full-
komnustu loftskeytatæki, m.a.
„UM TÖMT MÁL
AÐ TALA“.
Á fundi bæjarstjórnar 11. þ.
m. fluttu Sjálfstæðismenn til-
lögu um það, að 20—30 mönn-
um væri nú þegar bætt við í
bæjarvinnuna, til að draga úr
atvinnuleysinu í bænum og
halda uppi vinnu meðan tíð er
góð. Sjálfstæðismenn bentu á
verkefni eins og vatnsveituna
og fyrirhleðslur til varnar land-
broti, sem bæjarstjórn hefur
áður gert samþykktir um.
Þessari tillögu Sjálfstæðis-
manna var illa tekið af verka-
lýðsflokkunum, sérstaklega
krötunum, sem lirópuðu á at-
vinnubótavinnu í vetur og
heimtuðu vinnu við grjótnám
og vatnsveituna þegar fanna-
lögin voru mest.
Bæjarstjóri kratanna, Jón
Guðjónsson, Iýsti því hátíðlega
ýfir og án þess að roðna, „ að
það væri um tómt mál að tala,
að halda uppi vinnu á vegum
bæjarsjóðs".
Þetta óskamfeilna svar bæj-
arstjórans féll I góðan jarðveg
hjá formanni verkalýðsféiags-
ins, Guðmundi Kristjánssyni,
sem nú hefur mestan áhuga
fyrir því, að flæma verkamenn
burt úr bænum suður á Kefla-
víkurflugvöll. Taldi liann mál-
um vel borgið, ef 20—30 menn
fengju atvinnu þar.
Sjálfstæðismenn bentu bæjar-
stjóranum á, að á f járhagsáætl-
im væri 100 þús. kr. til atvinnu-
mála, sem ekki hefði verið not-
að og í annan stað væri 100
þús. króna lánsheimild til vatns
veituframkvæmda, sem lieldur
ekki hefði verið notfærð, þrátt
fyrir upplýsingar hans sjálfs í
sumar, að möguleikar væru á
að fá Ián til þessara hluta hjá
Brunabótafélagi fslands.
- ->
stuttbylgjustöð og stór móttakari,
sem aðeins er í einum öðrum tog-
ara. Mannaíbúðir eru allar hinar
Framhald á 8. síðu.