Vesturland - 08.01.1955, Page 8
w „ .
\ t yesvFiKZJtnn ssnGPsarmsFSMmcm
XXXII. árg. ísafjörður, 8. jan. 1955.
mmm
1,—2. tbl.
Nýjársgjöfin.
Framsóknarkratar ákveða að láta ís-
firðinga greiða 292 þús. kr. hækkun
á fasteignagjoldum.
Útsvörin hækka enn um 82 þús. kr.
Ur bæ og byggð.
Hjónaefni.
Gróa Aradóttir starfsstúlka og
Bragi Einarsson sjómaður.
Katrín Gísladóttir bankaritari
og Halldór Hermannsson sjó-
maður.
María Haraldsdóttir Sauðár-
króki og Guðfinnur Einarsson
framkvæmdastjóri Bolungavík.
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir
Hlíð Stakkanesi og Guðmundur
Ingólfsson sjómaður Hnífsdal.
Valgerður Jakobsdóttir Reykj-
arfirði og Haukur Daníelsson
verkamaður.
Ólöf Erna Guðmundsdóttir og
Jón Hjörtur Jóhannesson sjó-
maður.
Erna Sörensen og Svavar Sig-
urðsson bifvélavirkjanemi.
Bima Valdemarsdóttir og Heið-
ar Guðmundsson rafvirkjanemi.
Hjónabönd.
Gefin verða saman í hjónaband
á Suðureyri n.k. sunnudag Sig-
ríður Friðbertsdóttir og Albert
Karl Sanders skrifstofumaður Isa-
firði.
Þann 25. desember s.l. voru
gefin saman í hjónaband af
sóknarpresti, séra Sigurði Krist-
jánssyni, Sesselja Brynjólfsdóttir
og Garðar Jónsson, ísafirði; Bára
Magnúsdóttir ísafirði og Ámi
Brynjólfsson Akureyri.
Þann 1. þ.m. vom gefin saman
í hjónaband af sóknarpresti, séra
Sigurði Kristjánssyni, Anna Sól-
veig Bjarnadóttir og Kári Sam-
úelsson ísafirði; Jónína Nielsen
hjúkrunarkona og Gunnlaugur Ó.
Guðmundsson, póstmaður, ísa-
firði.
Isafjörður í jólaskrúða.
Um þessi jól, sem nú eru liðin,
var meira um jólaskreytingar á
ísafirði en nokkm sinni fyrr.
Fimm jólatrjám var komið fyrir
með smekklegum ljósum á
Sjúkrahússtúnínu, við Skátaheim-
ilið Austurvöll, Silfurtorg og við
hafnarbakkann. Silfurtorg var
auk þess smekklega skreytt
Þakka bæjarbúar þeim einstak-
lingum og fyrirtækjum, sem að
þessu' stóðu, því það er mikil
ánægja að því að sjá bæinn okkar
í jólabúning meðan á jólahátíð-
inni stendur.
Gamlárskvöld.
Gamlárskvöld var óvenju
skemmtilegt Góður gleðskap-
ur að mestu án háreisti og leið-
inda. Veður var kyrrt og indis-
legt. Gamla árið var kvatt með
mikilli rakettuskothríð og stór
brenna fór fram í hlíðinni, sem
gerði kvöldið enn skemmtilegra
fyrir alla, en þó sérstaklega börn-
in. Þaðan var einnig skotið
rakettum. Á undanförnum árum
hafa unglingar og börn haldið
margar smábrennur, en fyrir for-
göngu yfirlögregluþjónsins voru
brennuflokkar þessir sameinaðir
og nú höfð ein stór brenna og
Síðasti bæjarstjómarfundur
hófst kl. 8 á miðvikudagskvöld
og stóð yfir til kl. 9 á fimmtu-
dagsmorgun, eða í samtals 13
klukkustundir. Á þeim fundi
var fjárhagsáætlun bæjarsjóðs
fyrir árið 1955 til síðari um-
ræðu og afgreiðslu.
Sjálfstæðismenn fluttu margar
breytingartillögur við áætlunina
og lögðu til að eftirfarandi tekju-
liðir yrðu hækkaðir: Aðgangs-
eyrir Sundhallar 5 þús. kr., vatn
til skipa 7 þús kr„ mulnings-
gerðin 5 þús kr„ bíóleyfisgjald
3 þús. kr„ væntanleg þátttaka
vegna Ishúsfél. ísfirðinga h.f. 40,5
þús. kr. og 500 þús. kr. sem eru
óinnheimt útsvör og aðrar tekjur
til bæjarsjóðs, þó frádregin séu
25% afföll og ógreiddar gjald-
failnar skuldir f.f.ári, sem greiða
þarf á árinu 1955. Þá lögðu Sjálf-
stæðismenn til að þessir gjalda-
liðir lækkuðu: Skrifstofubáknið
um 30 þús. kr„ húsaleiga skrif-
stofunnar 5 þús. kr„ ýmislegt 4
þús. kr„ laun slökkviliðsmanna 6
þús. kr. (ofhátt áætl.), viðhald og
aukning áhalda í slökkvistöðinni
20 þús. kr„ götulýsing 22 þús.
kr„ Hafnarstræti 50 þús. kr„
Austurvöllur 25 þús kr„ áhalda-
hús 50 þús. kr„ vagn fyrir skurð-
gröfu 10 þús. kr„ Fjarðarstræti 7
—9 35 þús. kr„ og vextir 10 þús.
kr. Þá lögðu Sjálfstæðismenn til
að varið yrði 150 þús. kr. til
hafnarbakkans \ Neðstakaupstað,
100 þús. kr. til íbúðabygginga,
25 þús. kr. til fegrunar á sjúkra-
hússlóðinni og 10 þús. kr. til
breikkunar á Skipagötu. Fylgdu
ályktunartillögur mörgum þessum
tillögum, og voru breytingartil-
lögurnar allar felldar með tölu.
Hinsvegar kom meirihlutinn fram
sínu hugðarefni, en það var nokk-
uð á annan veg. Þeir samþykktu
að leggja á húseigendur þungan
skatt.
Fasteignaskattur sem er í á-
ætlun 49 þús. kr. hækkar um
hafði yfirlögregluþjónninn stjórn
brennumála. Þessi háttur var ó-
líkt skemmtilegri og er ánægja
að því að lögreglan leiðbeini og
/
hafi samleið með börnum og ung-
lingum á þessu sviði.
196 þús. kr. eða í 245 þús. kr.
og fasteignagjöld hækka úr
30.500 kr. um 96 þús. kr. eða
í 126.500 kr. Þarna ætla fram-
sóknarkratar að ná af bæjar-
búum 292 þús. kr. og hækka
svo útsvörin að auki um 82
þús. kr. Þessi stórfellda hækk-
un á fasteignagjöldum er rang-
lát og kemur mjög ójafnt nið-
ur. Eldra fólk sem á hús og
hefur litlar tekjur verður harð-
ast úti.
Kratarnir sýna vel hug sinn til
þeirra sem eru fátækir og smáir.
Flestir höfuðpaurar þeirra og
framsóknar hafa ekki sýnt þá
dáð að eignast hús, þeim þykir
því létt að leggja þessa skatta
á, því að þeir þurfa ekki að borga
þá sjálfir. Birgir, Guttormur,
Bjarni, Bjöi’gvin, Jón Guðjónsson,
Marías, og Hólmfríður sleppa öll
við þennan illræmda skatt. Það
er hlutskipti annara að borga.
Forseti bæjarstjórnar flutti
framsöguræðu fyrir meirihlutann
og bar fram skattahækkunartil-
lögurnar og reyndi á sundurlaus-
an hátt að gera áætluninni skil.
Matthías Bjarnason færði rök
fyrir því að meirihlutinn gæti
auðveldlega komizt af með 600
þús. kr. lægri álögur á bæjarbúa
og gerði glögga og ítarlega grein
fyrir tillögum Sjálfstæðismanna.
Aðrir bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins, Kjartan J. Jóhannsson,
Ásberg Sigurðsson og Högni
Þórðarson, gerðu fjárhagsáætlun-
inni og nákvæm skil og gagn-
rýndu fasteignaskattshækkunina
og hinar hóflausu útsvarsálögur.
Undir ræðum þeirra húktu full-
trúar meirihlutans og bæjarstjóri
eins og illa gerðir hlutir, og eng-
inn þeirra treysti sér til að hrekja
ádeilur Sjálfstæðismanna einu
orði. Meirihlutinn flutti aðeins
framsöguræðu um fjárhagsáætl-
unina og framsóknarmaðurinn tal-
aði í nokkrar mínútur og kom
hvergi nálægt að ræða sjálfa fjár-
hagsáætlunina, enda gersamlega
ófær til þess.
Hefur )að aldrei skeð fyrr að
meirihl iti bæjarstjórnar hafi
hreinlcga gefist upp að svara
fyrir jorðir sínar. Er það óræk
sönnun þess að þeir eru orðnir
rökþrota.
Frá bæjarstjórnarfundi:
Sjálfstæðismanna.
Ábyrgð til bátakaupa
Bæjarstjórn samþykkir að á-
byrgjast lán allt að kr. 100 þús.
fyrir hvern nýjan bát, sem félög
eða einstaklingar láta byggja eða
kaupa til útgerðar héðan úr bæn-
um. Bátarnir mega ekki vera
minni en 40 tonn að stærð.
Þessa tillögu felldu framsókn-
arkratar. Er sjáanlegt að nýsmíði
eða kaup á fiskibátum er illa séð
hjá bæjarstjórnarmeirihlutanum.
Ibúðabyggingar
Bæjarstjórn samþykkir, að 100
þús. krónur, samkv. XI. lið, 16
í breytingartillögum Sjálfstæðis-
manna verði varið til þess að
hefja byggingu nýrra íbúða, sem
síðar verði seldar fokheldar til
einstaklinga, er síðan fullgeri þær
sjálfir. Verði ekki ráðist í bygg-
ingar á vegum bæjarfélagsins
skal fénu varið til þess að styrkja
einstaklinga, sem í íbúðarbygg-
ingar ráðast.
Þessi tillaga var líka felld af
meirihlutanum. Allar húsabygg-
ingar eru í þeirra augum óþarfa
lúxus.
Bólusetning.
Ráðstafanir hafa verið gerðar
til þess, að fá hingað til landsins
nokkrar byrgðir af mænusóttar-
bóluefni. Upplýst er að bólusetn-
ing með bóluefni þessu gefur
allverulegt ónæmi gegn mænusótt,
en nokkur óvissa er um endingu
þess, en ætla má þó að gagn sé
að því í alllangan tima.
Nokkuð langt er um liðið síðan
mænusóttarfaraldur gekk hér
síðast. Munu því allmargir næmir
fyrir henni. Því verður þeim, sem
þess óska og yngri eru en 17 ára,
gefinn kostur þess að fá sig bólu-
setta gegn mænusótt. Eru þeir
beðnir að gefa sig fram við frú
Unu Thoroddsen hjúkrunarkonu
í síma 316, kl. 13.30—15, fyrir
lok janúarmánaðar. Bólusetningin
mun síðar tilkynnt og framkvæmd
þegar vitað er um þátttöku.
Isafirði 8. jan. 1955
Héraðslæknir.
S. I. B. S.
Umboð Vöruhappdrættis S.I.B.S.
Isafirði (Bókábúð Matthíasar
Bjarnasonar), er opið á morgun
kl. 1—4. Dregið í 1. flokki á
mánudag.
Togaralandanir.
Röðull landaði 105 tonnum s.l.
fimmtudag.
Sólborg kom í gær með 270
tonn.