Vesturland - 31.10.1960, Blaðsíða 2
2
VESTURLAND
Sextugur:
Kristján H. Jónsson
forstjóri
Kristján H. Jónsson, forstjóri
hér í bæ átti sextugsafmæli 7.
október s.l.
Kristján er fæddur á ísafirði og
eru foreldrar hans hjónin Símonía
Kristjánsdóttir og Jón Pálsson,
skipstjóri, ættuð úr Amarfirði.
Kristján fór ungur til sjós og
stundaði sjómennsku í mörg ár.
Aðeins seytján ária fer hann í sigl-
ingar erlendis og í nokkur ár var
hann á skipum Eimskipafélags fs-
lands. Hann fór á Stýrimannaskól-
ann og lauk þaðan farmannaprófi
árið 1921. Um alllangt skeið var
hann á togurum stýrimaður, en
sjómennskú hættir hann um árið
1931, er hann kaupir Verzlun
Magnúsar Magnússonar og rak
hann verzlun sína í átta ár. Árið
1938 stofnsetur hann verksmiðj-
una Hektor með systur sinni, Sig-
ríði Jónsdóttur, kaupkonu, og hef-
ur veitt því fyrirtæki forstöðu síð-
lan.
Kristján var í fjölda mörg ár
hafnsögumaður hér á ísafirði,
fyrst aðstoðarhafnsögumaður, en
þegar Eiríkur heitinn Einarsson
féil frá, gerðist hann yfirhafn-
sögumaður og gegndi því starfi
hátt á annan áratug.
Kristján hefur látið félagsmál
mikið til sín taka. Hann var um
hríð bæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn, átti lengi sæti í hafn-
amefnd, var í stjóm Félags opin-
berra starfsmanna á Isafirði og
tók og tekur mikinn þátt í félags-
starfi Oddfellowreglunnar. Hann
hefur lalltaf haft mikinn áhuga
á slysavarnarmálum og félags-
samtökum sjómanna, og 1 hvaða
félagsskap sem hann hefur tekið
þátt í, hefur hann verið góður og
traustur félagi.
Kristján H. Jónsson, er glæsileg-
ur maður að valiarsýn, tryggur
vinur vina sinna, enda vinsæll og
vinmargur. Hann er hlýr í við-
móti, viðkvæmur og hjartahlýr og
leggur öllum gott til og hjálpsam-
ur að sama skapi.
Kristján er í skoðunum frjáls-
lyndur og víðsýnn, heldur vel á
sínu máli og lipurlega og á létt
með að umgangast fólk enda fell-
ur hann öllum í geð, en þeim bezt
er gerst þekkja hann.
Kristján kvæntist 1. júlí 1933
ágætri og glæsilegri konu, önnu
Sigfúsdóttur frá Galtastöðum í
Fljótsdalshéraði og eiga þau tvö
böm uppkomin, Margréti, búsetta
í Reykjavík, og Jón Símon, sem
býr í foreldrahúsum. Auk þess ólu
þau hjón upp bróður Önnu, Sig-
mund, sem búsettur er í Reykja-
vík.
Heimili þeirra Önnu og Krist-
jáns er hlýtt og fagurt. Þau eru
bæði innilega gestrisin og þangað
þykir öllum gott að koma og vera,
enda er þar oft gestkvæmt. Þau
eru höfðingjar heim að sækja og
ágætir borgarar í þessum bæ, sem
njóta trausts og vinsælda allna
þeirra mörgu ér þau þekkja.
Ég óska Kristjáni vini mínum,
konu hans, börnum og systur til
hamingju með þetta merkisafmæli
og bið þeim heilla og gæfu um
ókomin ár.
M. Bj.
Héraðsmót
% Sjálfstæðismanna
Sjálfstæðismenn á ísafirði og í Mótinu stjórnaði frú Geirþrúður
Bolungavík héldu hin árlegu hér- Charlesdóttir, form. Sjálfstæðis-
aðsmót sín laugardag og sunnu- kvennafélags ísafjarðar.
dag 10. og 11. sept. s.l.
fsafjörður.
Héraðsmótið á ísafirði var
haldið á laugardagskvöldið að
Uppsölum. Ræður fluttu Gísli
Jónsson, Kjarban J. Jóhannsson
og Sigurður Bjamason. Leikar-
arnir Karl Guðmundsson og Jón
Aðils fluttu skemmtiþætti, en
Kristinn Hallsson, óperusöngvari,
söng einsöng með undirleik Carls
Billich. Kristinn Plallsson og Sig-
urður Jónsson sungu glúnta.
Bolungavík.
Mótið í Bolungavík var haldið
á sunnudagskvöldið. Ræður fluttu
Gísli Jónsson, Kjartan J. Jóhanns-
son og Sigurður Bjarnason. Sömu
leikarar önnuðust skemmtiatriði
og Kristinn Hallsson söng einsöng
með undirleik Carls Billich.
Mótinu stjórnaði Friðrik Sigur-
björnsson, formaður Sjálfstæðis-
félagsins Þjóðólfs í Bolungavík.
o o o
Vetraráæílun
Flugfélags íslands
Vetraráætlun Fiugfélags ís-
lands í innanlandsflugi gekk í
gildi um síðustu mánaðamót og
vetraráætlun millilandaflugsins
tekur gildi 1. nóvember. Sumar-
áætlanir félagsins, sem gilt hafa
frá 1. apríl fyrir millilandaflugið
og frá 1. maí fyrir innanlands-
flugið gengu mjög að óskum.
Samkvæmt vetraráætlun innan-
landsflugs Flugfélags íslands
verða tíu ferðir á viku til Akur-
eyrar, sjö til Vestmannaeyja,
fjórar til Isafjarðar og þrjár ferð-
ir á viku til Egilsstaða. Tvær
ferðir í viku verða til Hornafjarð-
ar, Húsavíkur og Sauðárkróks.
Ein ferð í viku verður til Fagur-
hólsmýrar, Flateyrar, Kirkjubæj-
arklausturs, Patreksfjarðar, Siglu-
fjarðar og Þingeyrar. í sambandi
við ferðir til Siglufjarðar er vert
að taba fram, að enda þótt ekki
sé flogið þangað nema á mánudög-
um eru ferðir aðm daga miðaðar
við ferðir flóabátsins Drangs til
Siglufjarðar, Ólafsfjarðar og ann-
arra hafna, sem hann hefir við-
komu á. Þannig eru t. d. þriðju-
dagsferðir til Sauðárkróks miðað-
lar við að farþegar geti komist
samdægurs til Siglufjarðar, en
Drangur fer frá Sauðárkróki
laust eftir komu flugvélarinnar
þangað. Á miðvikudögum fer
flugvél ekki frá Akureyri fyrr en
eftir komu flóabátsins og sama
gildir um seinni ferð frá Akur-
eyri á laugardögum. Dakotaflug-
vélar fljúga nú til ísafjarðar og
leysa Katalínuflugvélarnar þar af
hólmi. Á undanfömum árum hef-
ir verið komið við á Hólmavík
einu sinni í viku á leið til Isaf jarð-
ar, en þar sem flugvöllur á Hólma-
vík er ekki nægjanlega stór fyrir
Dakotiaflugvélar leggst flug þang-
að nú niður. Katalínuflugvél mun
í vetur halda uppi flugi til Pat-
reksfjarðar, Flateyrar, Siglufjarð-
ar og Þingeyrar.
o o o
Aðalíundur Neista
Aðalfundur Neista, félags ungra Sjálfstæðisinanna í Vestur-Barða-
strandarsýslu, var haldinn að Patreksfirði laugardginn 17. sept. s.I.
Sveinn Þórðarson, Innri-Múlia,
formaður Neista, setti fundinn og
stýrði honum. Flutti hann skýrslu
um starf félagsins á árinu. Helzta
verkefni félagsins var þátttaka í
undirbúningi kosninganna á s.l.
hausti. Ennfremur hefur félagið
gengizt fyrir skemmtisamkomum
á Patreksfirði og stjórnmálanám-
skeiði.
Reikningar félagsins voru lesn-
ir upp og samþykktir. Fjárhagur
félagsins er með miklum blóma.
Sveinn Þórðarson baðst eindreg-
ið undan endurkosningu.
Formaður var kosinn Hannes
Friðriksson, Bíldudal. Aðrir í
stjórn: Bjami Hákonarson, Haga,
Gylfi Adolfsson, Patreksfirði, Ing-
veldur Hjartardóttir, Patreksfirði,
og örn Gíslason, Bíldudal. Vara-
stjóm skipa: Jóhannes Árnason
og Sigfús Jóhannesson, Patreks-
firði. Endurskoðendur: Helga Guð-
jónsdóttir og Hilmar Árnason,
Patreksfirði.
Að loknu stjórnarkjöri fóru
fram umræður um flokksstarfið.
Um kvöldið hélt Neisti dans-
leik í Skjaldborg, húsi Sjálfstæðis-
manna á Patreksfirði.
Stjórnmálanámskeið á
Patreksfirði.
Neisti, Félag ungra Sjálfstæðis-
manna í Vestur-Barðastnandar-
áýslu og Samband ungra Sjálf-
stæðismanna héldu stjórnmála-
námskeið á Patreksfirði dagana
15.-—17. sept. s.l.
Á fundinum voru flutt mörg
erindi. Þór Vilhjálmsson, formað-
ur S.U.S. flutti erindi um ræðu-
mennsku, Matthías Bjarniason,-
formaður Fjórðungssambands
Sjálfstæðismanna á Vestfjörðum
flutti erindi um atvinnumál á
Vestfjörðum og Guðfinnur Magn-
ússon, erindreki, flutti erindi um
fundarsköp og fundarreglur. Auk
þess voru flutt erindi af segulbandi
um Sjálfstæðisstefnuna, verka-
lýðsmál, og efnahagsmál.
Námskeiðið fór hið beztia fram
og ríkti mikill einhugur um fram-
gang Sjálfstæðisstefnunnar á
Vestfjörðum.