Vesturland - 31.10.1960, Blaðsíða 8
XXXVII. árgangur. ísafjörður, 31. október 1960. 10.—11. tölublað.
£itt ajj Loeiju tcuji
Hversvegna verða bæjarfulltrúar krata, framsóknar
og kommúnista svona kindarlegir, þegar talað er um að
girða bæjarlandið?----Krútsjov sýndi ail undarlega siði
á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna m. a. með því að
fara úr skónum og berja þeim í borðið.---Hvernig ætli
Halldór frá Gjögri tæki sig út ef hann reyndi að apa þess-
ar kúnstir eftir herra sínum á fundum bæjarstjórnar?
---- Svífur að haustið. —— Utvegsbankinn hefur ekki
ennþá hafið byggingu á bankastjóraíbúðarhúsi sínu við
Engjaveg. ---- Vélstjórafélagið kaus Kristinn D. Guð-
mundsson, skrifstofustj. bæjarins, fulltrúa á þing A.S.Í.
— Pétur Sigurðsson var ekki kjörgengur af því að hann
hafði vélstjóraréttindi á vélar yfir 500 hestöfl.-Sam-
kvæmt þessu er samlögð hestaflaorka skrifstofuvéla bæj-
arskrifstofanna innan við 500 hestöfl.--Var samið um
það í málefnasamningi krata, framsóknar og kommúnista
að bókasafnið skyldi vera afgreiðslustaður málgagns
kommúnista? ----- Smokkveiði hefur aldrei verið meiri
en á þessu hausti.---Bátarnir búast til veiða með línu
en erfiðlega gengur að fá mannskap.-----Kommúnistar
og fylgilýður þeirra, Framsóknarmenn, hrópa mikið um
atvinnuleysi. --- í fjárlagaumræðunum setti Eysteinn
nýtt með í þeirri uppáhaldsíþrótt sinni að fara í gegnum
sjálfan sig.---Fyrra metið átti hann sjálfur.----Hún
lagast lítið umgengnin á sorphaugunum á Torfnesi.
Nokkur minningarorð.
Úr bæ og byggð.
Hjúskapur.
Sóknarpresturinn á ísaíirði heí-
ur gefið saman í hjónaband;
Jónínu Jakobsdóttur og Garðar
Guðmundsson, ísafirði.
Helgu Stígsdóttur, isafirði og
Ragúel Hagalínsson, Sætúni,
Grunnavík.
I'orgerði Hermannsdóttur,
Hnífsdal, og Gunnar Valdemars-
son, Heydal, Mjóafirði.
Andlát.
Kjartan Jakobsson frá Reykjar-
firði í Grunnavíkurhreppi andað-
ist að Fjórðungssjúkrahúsinu á
isafirði hinn 16. sept .s.l. Hann
var kvæntur Flóru Ebenezersdótt-
ur.
Gertrud Hasler, Mánagötu 1,
andaðist hinn 10. þ. m. Hún var
fædd 24. des. 1893 í Berlín í
Þýzkalandi.
Gertrud giftist árið 1921 Hans
Hasler, bakarameistara, Hingað
fluttu þau hjónin árið 1928. Frú
Gertrud Hasler var hin mesta
myndar og dugnaðarkona. Þau
hjónin eignuðust tvö börn, sem
bæði eru búsett hér á isafirði. Auk
þess ólu þau upp eina fósturdótt-
ur.
Sölvi Þorbergsson frá Miðvík í
Aðalvík ,andaðist í Keflavík hinn
11. sept. s.l. Hann var fæddur í
Miðvík. Fluttist hann fyrir nokkr-
um árum til Hnífsdals og bjó þar
um skeið, en þaðan fluttist hann
til Keflavíkur. Hann var kvæntur
Sigurlínu Guðmundsdóttur og lif-
ir hún mann sinn.
Guðmundur Jónsson, fyrrv.
póstur, andaðist að Elliheimilinu
8. þ. m. Hann var fæddur í Múla-
hreppi í Barðastrandarsýslu 4.
ágúst 1872.
Bréfaskipti.
Tvær ungar sænskar stúlkur
langar til að eiga bréfaskipti við
íslenzka pilta á aldrinum 18—20
ára. Báðar stunda stúlkumar nám
við Vimmerby Folkhögskola. Ut-
anáskrift: Britt Marie Johansson
og Kerstin Karlsson, Vimmerby
Folkhögskola, Vimmerby, Sverige.
Smokkfiski.
1 haust hefur verið ágæt smokk-
veiði í ísafjarðardjúpi. Hafa bátar
héðan úr Djúpi og frá verstöðvun-
um í kring aflað ágætlega. Enn-
fremur hafa bátar úr verstöðvun-
um við Faxaflóa einnig sótt þess-
lar veiðar hingað og aflað vel.
Hæstu hásetahlutir munu nú
skipta tugum þúsunda króna.
Smokkurinn hefur veiðst inn um
allt ísafjarðardjúp. Allt inn á botn
Isafjarðar, inn fyrir Gjörfidal.
Veiðunum er nú lokið.
Guðbjörg Jónsdóttir lézt að
Sjúkrahúsi Isafjarðar 19. sept-
ember s.l. og var jarðsett frá ísa-
fjarðarkirkju 29. sama mánaðar.
Hún var tæpra 96 ára að aldri
er hún lézt og hygg ég að hún hafi
verið elzta konian í þessum bæ.
Guðbjörg var fædd 23. desem-
ber 1864 1 Innri-Hjarðardal í Ön-
undarfirði og voru foreldrar henn-
ar Guðrún Jónsdóttir og Jón Þórð-
arson, en hann lézt er Guðbjörg
var á öðru aldursári. Hún ólst
upp með móður sinni og dvöldu
þær lengi á Ingjaldssandi.
Hingað til ísafjarðar kemur
Guðbjörg fyrst 1886 og hér í
Skutulsfirði átti hún heima síðan
eða í 64 ár.
Guðbjörg giftist 14. maí 1893
Jóni Bjamasyni smið, en hann
lézt fyrir sex árum.
Þeim hjónum varð átta dætra
auðið og eru þær: Margrét, ekkja
Guðmundar Þorláks Guðmunds-
sonar skipstjóra í Reykjiavík,
María, kona Baldvins Þórðarsonar
fyrrver. bæjargjaldkera hér, Sig-
ríður, ógift, búsett í Reykjavík,
Guðrún, gift Gísla Þorsteinssyni
á Flateyri, Ólöf, gift Charles
Bjarnasyni vegaeftirlitsmanni hér,
Guðbjörg, gift Þorvaldi Guðjóns-
syni í Keflavík, Herdís, gift Bjarna
Sigurðssyni póstfulltrúa í Reykj-
avík og Petrína, gift Sigurði E.
Steindórssyni forstjóra í Reykja-
vík.
Guðbjörg Jónsdóttir var mikil
dugnaðar- og mannkostakona.
Hún stjórnaði í áratugi stóru og
miklu heimili þar sem gestkvæmt
var löngum. Allir, sem þekktu
hana, virtu hana fyrir dugnað
hennar, fórnfýsi og hlýhug. Líf
hennar var ekki fléttað blómum
og lífsþægindum frekar en þess
fólks, sem þá var að alast upp.
En hún var samt gæfukonia. Hún
átti margar dætur, sem reyndust
henni vel Hún dvaldi um hríð hjá
Maríu dóttur sinni og manni henn-
ar og mörg síðustu árin hjá Ólöfu
og manni hennar og naut hjá
þeim öllum góðrar umhyggju.
Nú er hún horfin héðan þessi
góða og gamla konia eftir langt og
mikið lífsstarf, en minning hennar
mun lifa í hjörtum þeirra allra,
er hana þekktu.
Blessuð sé minning Guðbjargar
Jónsdóttur. M. Bj.
Sigurveig Jónsdðttir
sextug
Sigurveig Jónsdóttir Hlíðarvegi
17 hér í bæ átti sextugsafmæli
23. þ.m.
Sigurveig er fædd á Hléskógum
í Höfðahverfi í Eyjafjarðarsýslu
og voru foreldrar hennar Helga
Kristjánsdóttir og Jón Þórarins-
son.
Hún flutti á barnsaldri með for-
eldrum sínum að Hvammi í Dýra-
firði og ólst þar upp.
Hún giftist Sigurði Pálssyni frá
Vatnsfirði 23. maí 1926 og eiga
þau hjón fjögur börn: Pál oddvita
í Keldudal í Rípurhreppi í Skiaga-
firðí, Sigríði, Helgu og Elínborgu
allar búsettar hér í bæ, en eina
dóttur á Sigurður frá fyrra hjóna-
bandi, Arndísi, sem búsett er nú
á Patreksfirði, og gekk Sigurveig
henni í móður stað.
Þau hjónin bjuggu góðu búi á
Nauteyri iallt til vorsins 1953, en
þá fluttu þau hingað til ísafjarðar,
þar sem heimili þeirra hefur síðan
verið.
Sigurveig er greind og dugleg
kona, sem nýtur trausts og virð-
ingar hvar sem hún er og hjá öll-
um sem hana þekkja.
Allt frá fyrstu kynnum mínum
af henni, manni hennar og börnum
hefur hún og þau öll fallið mér
sérlega vel í geð og með okkur
hefur staðið sterk og órjúfanleg
vinátta, sem ég vona að megi allt-
af lifa.
Á sextugsafmæli hennar sendi
ég og fjölskylda mín henni okkar
hjiartanlegustu hamingjuóskir og
við þökkum henni góð kynni og
trausta vináttu, tryggð og hlýhug.
M. Bj.
Aðalfundur
Aðalfundur Sjálfsbjargar var
haldinn fimmtudaginn 27. október
s.l. í herbergi félagsins í kjallara
íþróttahússins.
Trausti Sigurlaugsson, formað-
ur félagsins flutti skýrslu stjórn-
arinnar.
Starf félagsins var með ágætum
á árinu. Haldnir voru nokkrir fé-
lags- og skemtmifundir og auk
þess hafði félagið tvo bazara á ár-
inu til fjáröflunar. Auk þess stóð
félagið fyrir föndurvinnu vikulega.
Á árinu setti félagið upp vinnu-
stofu. Þar vinna nú nokkrir félags-
manna.
í núverandi stjórn voru kosin:
Ingibjörg Magnúsdóttir, formaður,
Trausti Sigurlaugsson, varafor-
miaður, Baldvin Þórðarson, Pálína
Snorradóttir, Jóna P. Sigurðar-
dóttir. Varastjórn: Guðmundur
H. Guðmundsson, Guðmundur
Guðmundsson og Bjarni Guð-
mundsson.
★