Vesturland - 10.05.1974, Page 1
Högni Þórðarson:
Bæjarmál ísafjarðarkaupstaðar
Meirihluti Sjálfstæðisflokks, SFV og Alþýðu-
flokks hefur á tæpum tveimur árum undirbúið
mörg stórmál, sem nú eru komin á framkvæmda-
stig.
Starfað hefur verið af fullum heilindum, eins
og ætíð, þar sem forustu Sjálfstæðisflokksins
gætir.
I júlímánuði 1972 var
myndaður í bæjarstjórn ísa-
fjarðar meirihluti sjálfstæðis-
manna, Samtaka frjálslyndra
og vinstri manna og Alþýðu-
flokks. Þessi meirihluti hefur
því aðeins starfað í tæp tvö
ár.
Meirihlutanum var að sjálf-
sögðu fullljóst, að á tæpum
tveimur árum væri enginn
vegur að hrinda í framkvæmd,
hvað þá ljúka, stórfram-
kvæmdum, sem ekkert höfðu
verið undirbúnar.
Stærstu málin, sem úrlausn-
ar biðu, voru skipulagsmál,
hafnarmál, bygging heilsu-
gæzlustöðvar, sjúkrahúss og
elliheimilis, sorpeyðingarstöð,
bætt neyzluvatn, varanleg
gatnagerð, lóða- og húsnæðis-
mál.
Hér eru aðeins allra stærstu
málin nefnd, en að sjálfsögðu
hefur verið unnið að fjöl-
mörgum öðrum málum.
UNDIRBÚNINGUR STÓRRA
VERKEFN A.
Því fer fjarri, að nægilegt
sé, að bæjarstjórn samþykki
að hefjast handa um fram-
kvæmd fjárfrekra og veiga-
mikilla verkefna, og að þá
sé unnt að hefjast handa.
Því miður er þetta ekki svo
einfalt.
Ríkissjóður er þátttakandi í
flestum stærri verkefnum
sveitarfélaganna, en framlög-
in eru misjöfn, eftir því, hver
verkefnin eru.
Varðandi þau verkefni, sem
ríkissjóður fjármagnar með
sveitarfélögunum, gilda fast
mótaðar reglur, sem ríkisvald-
ið hefur sett, og fram hjá
þeim verður ekki gengið.
Sýna þarf fram á þörfina
fyrir viðkomandi verk, stað-
setningu, samkvæmt skipu-
lagi, jarðvegsboranir, teikn-
ingar, kostnaðaráætlun o.fl.
Viðkomandi ráðuneyti eða
ríkisstofnun verður að sam-
þykkja allan undirbúning, auk
stofnunar á vegum fjármála-
ráðuneytisins.
Vinna verður að því að f jár-
veitinganefnd og Alþingi
veiti fjármagn á fjárlögum
og leita eftir lánsfjármagni.
Þannig verður að berjast
fyrir hverju verkefni á öllum
þessum stigum, sem nefnd
hafa verið.
Geta má því nærri, að veru-
legur tími fer til undirbún-
ings stórra verkefna, enda
öll sveitarfélög í landinu með
fjölmörg verkefni í gangi, og
öll knýja þau á ríkisvaldið
um fjárframlög.
SKIPULAGSMÁL
Höfuðáherzla hefur verið
lögð á að ljúka gerð aðal-
skipulags fyrir kaupstaðinn.
Skipulagshópurinn, sem samið
var við, hefur skýrt hugmynd-
ir sínar með útgáfu blaða, en
efni þeirra hefur síðan verið
rætt á opnum fundum með
bæjarbúum.
Næsta skipulagsblað mun
koma út strax og prentar-
verkfalli lýkur, og mun það
fjalla um gömlu bæjarhverf-
in.
Stefnt var að því, að nýja
aðalskipulagið yrði staðfest
nú í vor, en á því hafa orðið
tafir, sumar óviðráðanlegar,
en þess verður þó að kref jast,
að skipulagshópurinn standi
við gerðan samning og hraði
störfum sínum.
HAFNARMÁL
Gerð hefur verið fjögurra
ára áætlun varðandi hafnar-
framkvæmdir.
Að mestu hefur verið lokið
við endurbyggingu Hnífsdals-
bryggju og byggð hefur verið
flotbryggja í Sundahöfn.
Hafin er dýpkun Sundanna
og efninu dælt upp til land-
aukningar. Þessu verki verð-
ur framhaldið í sumar. í vet-
ur var gerður varnargarður
frá Sundahöfn í átt að Suður-
tanga og mun verða dælt
sandi inn fyrir þennan garð
og ennfremur aukið við land
utan við Suðurtanga til að
auka athafnasvæði skipa-
smíðastöðvcirinnar.
í sumar verður steypt
þekja á neðri hluta hafskipa-
bryggjunnar, en það verk
verður boðið út í lok þessa
mánaðar.
Vegna fyrirhugaðrar leng-
ingar hafskipabryggjunnar til
norðurs, hafa farið fram botn-
ransóknir með borunum og
borkjarnarnir sendir til Dan-
merkur til rannsóknar.
í ljós hefur komið, að botn
er mjög lélegur á þessu svæði
og mikil hætta á sigi.
Pantað hefur verið stálþil
í 40 m. lengingu í beina
stefnu, en síðar verður tekin
ákvörðun um stefnu kantsins
úr því.
Hafizt verður handa við
verkið, þegar stálþilið kemur
til landsins.
HEILBRIGÐISMÁL —
ELLIHEIMI
í vetur hefur verið fyllt
upp í Torfnesbót, þar sem
fyrirhugaðar heilbrigðisstofn-
anir munu rísa. Vegna þrá-
látra bilana á Háki hefur
þessu verki miðað mun hægar
en ráð var fyrir gert.
Þess er þó að vænta, að
verkinu verði lokið innan tíð-
ar, þegar Hákur tekur til
starfa á ný eftír gagngerða
viðgerð.
Þarna hefur myndazt mikið
land, þar sem heilsugæzlustöð,
sjúkrahús og elliheimili munu
rísa, auk væntanlegs fjöl-
brautarskóla. Ennfremur
myndast þarna fyrsti áfangi
að fyrirhugaðri hraðbraut
með sjó inn í fjarðarbotn.
Deiliskipulag lóðarinnar
hefur dregizt og þar með
teikningar mannvirkja, þrátt
fyrir mikin eftirrekstur.
Bæjarstjórn hefur harðlega
átalið iþennan seinagang á
verki, sem lofað hafði verið
fyrir sumarið.
Fyrsti áfangi byggingar-
framkvæmda verður heilsu-
gæzlustöðin og elliheimilið
og hefur verið lögð á það
mikil áherzla, að útboð á
verkunum fari fram í sumar.
Mikil vinna hefur verið lögð
í byggingarlýsingu heilsu-
gæzlustöðvar og sjúkrahúss
og tillögur lagðar fyrir full-
trúa frá Læknafélagi íslands
og Hjúkrunarfélagi íslands til
umsagnar, sem hafa gert
fjölda athugasemda, sem
teknar hafa yerið til greina.
Þessi vinnubrögð eru að
dómi sérfróðra manna til mik-
illar fyrirmyndar og ættu að
minnka hættuna á því að mis-
tök verði gerð, sem því miður
hafa verið tíð varðandi bygg-
ingu heilbrigðisstofnana víða
um land.
SORPEYÐINGARSTÖÐ
Bæjarsjóður hefur í sam-
vinnu við nærliggjandi sveit-
arfélög fest kaup á sorp-
brennsluofni frá Svíþjóð og
verður hann settur upp í
sumar. Ofninn er af sömu
gerð og sá, sem settur var
upp á Húsavík, en nokkru
stærri. Húsvíkingar hafa lát-
ið mjög vel af sínum ofni.
BÆTT NEYZLUVATN
Jarðfræðingur hefur rann-
sakað lindir á Dagverðardal,
sem hann telur að muni full-
nægja vatnsþörfinni fyrir ísa-
fjörð.
Gerðar hafa verið mælingar
á annað ár, en talið var nauð-
synlegt, að mælingar færu
fram í tvö ár, áður en hafizt
yrði handa um virkjun lind-
anna.
Jafnframt er unnið að und-
irbúningi á lagfæringu og
endurbótum á vatnsveitunni í
Hnífsdal.
VARANLEG GATNAGERÐ
Malbikunartæki bæjarins
eru öll ónýt. Þar sem sama
vandamál varðandi varanlega
gatnagerð blasti við öllum
þéttbýlisstöðunum á Vest-
fjörðum og stofnkostnaður
mjög mikill, var ákveðið að
leysa málið sameiginlega og
félagið Átak var stofnað.
Þetta félag hefur síðan
gerzt hluthafi í Olíumöl hf.,
sem er sameign sveitarfélaga
og verktaka á Reykjanessvæð-
inu.
Olíumöl hf. vinnur nú að
því að kaupa malbikunarsam-
stæðu, sem staðsett verður á
Vestfjörðum.
Áætlun hefur verið gerð um
varanlegt slitlag á allar götur
í kaupstaðnum á næstu ár-
um.
LÓÐA- OG HÚSNÆÐISMÁL
Hér á ísafirði hefur um
mörg undanfarin ár verið
mikill skortur á íbúðum.
Margs konar erfiðleikar hafa
verið á því að úthluta lóðum
vegna skipulagsmála.
Þrátt fyrir þetta hefur tek-
izt að úthluta fleiri lóðum s.l.
tvö ár en áður.
Unnið hefur verið að gerð
nýrra gatna á ísafirði og í
Hnífsdal.
Bæjarsjóður hefur lagt til
byggingar 20 íbúða í verka-
mannabústöðum við Fjarðar-
stræti hámarksframlög, skv.
lögum.
Alls hefur verið lagt til
þessara íbúða 7,6 millj króna
og á fjárhagsáætlun þessa
árs eru 5,3 millj. kr.
Framhald á 3. síðu.
Isfirðingar! Kjósið D-listann — X- D