Vesturland - 25.05.1974, Síða 1
FYLGIBLAÐ
mmm
&GR2) a/eSZTFWZWiiH 8diteFS37£$»SXÍOOm
Ll. árgangur.
ísafirði, 25. maí 1974.
7. tölublað.
Kosningaskrifstofa
D-listans í Bolungarvík er að
Hafnargötu 41 - Sími 7303.
Stuðningsmenn D-listans hafið
samband við skrifstofuna.
BOLVÍKINGAR!
Undir styrkri og sam-
hentri forystu sjálfstæð-
ismanna í sveitarstjórn
Hólshrepps um 30 ára
skeið hafa orðið miklar
og stórstígar framfarir
í Bolungarvík og örari
uppbygging en víðast-
hvar annars staðar á
landinu. — Þetta vita
allir Bolvíkingar.
Mörg verkefni eru enn
framundan, sem leysa
þarf, bæjarfélaginu til
heilla og hagsbóta. Því
ríður nú á, fremur en
nokkru sinni fyrr, að
Bolungarvík fái að njóta
ábyrgrar forystu sjálf-
stæðismanna.
Höfnum vinstri sundr-
ungu og glundroða.
Kjósum ábyrgan meiri
hluta sjálfstæðismanna.
Valdimar Lúðvík talaði eins og hann hafi verið
einn í sveitarstjórninni þetta kjörtímabil, „hinir"
aðeins verið til að fullnægja forminu ...
— ★ —
H-listinn er sagður listi SFV, samvinnumanna og
óháðra. Ætli samvinnumennirnir séu þeir Valdimar
og Guðmundur Magnússon? Trúlega hefur Valdi-
mar álitið sig hafa svo oft og rækilega lýst frá-
bærri og hjartnæmri samvinnu þeirra Guðmundar,
að ofrausn væri að nefna slíkt á fundinum. Eða
hvað?
— ★ —
FRJÁLSLEGA FARIÐ IVIEÐ
hefði ræða Valdimars getað heitið.. Hann fullyrti
að Hólshreppur skuldaði vegna Ráðhúss 15 millj.
Hvernig væri að hafa tíma til að líta í reikninga
Hólshrepps, Valdimar, og reyna að fara ekki með
staðlausa stafi. Hólshreppur skuldar 12 milljónir
m.a. vegna kaupa á læknisbústað, íbúð fyrir kenn-
ara og Ijósmóður, landakaupa og fjölmargra ann-
ara framkvæmda. Er málstaðurinn svo slæmur,
Valdimar, að grípa þurfi til vísvitandi ósanninda?
— ★ —
GANDREIÐ OG TÖFRAMENNSKA
Karvel Pálmason, sem hefur s.l. þrjú ár gengið
í „Leikskóla þriðjaleikhússins" sýndi framúrskar-
andi töfrabrögð á framboðsfundinum. — Bara að
sveifla hendinni og þá voru í einni svipan komnar
7 milljónir til sundlaugarbyggingarinnar. Getur þú
ekki sveiflað höndunum meira, Karvel og hjálpað
hinum galtóma ríkiskassa? Hér er máske leiðin
sem allir skattborgarar hafa beðið eftir? Eða
hvað finnst skattborgurum H-listans um slíkt?
Er ekki gott að vera laus við að greiða skatta?
BOLUNGARVÍK -
ÞAÐ SEM H-LISTAFÓLKI VAR BANNAÐ
AÐ MINNAST Á:
Til sundlaugarbvqqinqar hefur verið varið 26
milliónum. Til félagsmála 16,7 milljónum, til heil-
brigðis- og hreinlætismála 5,5 milljónum, til
fræðslumála 6,3, til íþrótta- og æskulýðsmála 1,7,
til brunamála 1,6 millj. Kaup á læknisbústað. Og
götur og holræsi 10,8 milljónir króna.
— ★ —
... Haft er fyrir satt að sumum, sem sáu handa-
vinnu skólabarna daginn eftir fundinn, hafi þótt
gagnrýni Kristínar á handavinnukennara í harð-
ara lagi.
— ★ —
... Vonandi hefur Matthías Bjarnason eitthvað
lært af því að sitja við fótskör meistarans —
siðameistara prófessora og þingmanna — Karvels
Pálmasonar — í fjárveitinganefnd Alþingis. Það
er lán fyrir byrjanda að njóta leiðbeiningar
snillings . . .
— ★ —
BLINDINGJAR
Tveir frambjóðendur Ó—HÁЗra, sem nú koma
fram í fvrsta sinn höfðu allt á hornum sér og
komu ekki auga á neitt, sem vel hefði verið gert
hér í Bolungarvík. Slæmt að byrja feril sinn með
bundið fyrir bæði augu og svartsýni og neikvætt
hugarfar til bæjarmála. Vonandi fær niðurdrep-
andi svartsýni og blindni þeirra afsvar við kosn-
ingarnar 26. maí n.k.
— ★ —
GUNNAR RAGNARSSON, skólastjóri, vakti at-
hygli Bolvíkinga á þeim slæma félagsskap sem
framsóknarmaðurinn Guðmundur Magnússon væri
kominn í. Ekki er hann einn um það. Með því að
kjósa D-listann er hægt að frelsa Guðmund.
Punktar frú frumboðsfundi
- PUNKTAR FRÁ