Vesturland - 23.06.1974, Síða 1
Ll. árgangur.
ísafirði, 23. júní 1974.
11.—12.
tölublað.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur byr
— Rœtt við Matthías Bjarnason um lands-
málin, hagsmunamál Vesttjarðakjördœmis og
horfurnar í kosningunum á sunnudag
1 miðri kosningahríðinni gafst stund milli stríða til að ræða
við Matthías Bjarnason fyrrv. alþingismann um landsmálin,
hagsmunamál kjördæmisins og afstöðu Sjálfstæðismanna til
þeirra
— Þrír málaflokkar eru efst á baugi í þessari kosningabar-
áttu, er fyrsta svar Matthíasar við spurningum YESTUR-
LANDS. Landhelgismálið, utanríkis- og vamarmál og efnahags-
málin.
— Auðvitað eru mörg önnur mál, sem hvetja hugann, en þetta
verða aðalþættir þeirra mála, sem barizt verður um í þessum
kosningum.
Hér í blaðinu verða nú rakin svör Matthíasar Bjamasonar við hinum ýmsu
spurningum VESTURLANDS.
Landhelgismálið
— Meginstefnan er sú, að færa efna-
hagslögsöguna út í 200 mílur fyrir lok
þessa árs. Sú ánægjulega þróun hefur
orðið á skömmum tíma, að æ fleiri þjóðir
eiga samleið með okkur um þessa stefnu,
og allt bendir til þess, að yfirgnæfamdi
meirihluti fáist fyrir samþykkt 200 míln-
anna á hafréttarráðstefnunni, sem nú er
hafin í Venezuela.
— Útfærslu í 200 mílur þurfum við að
hraða sem mest vegna sívaxandi ásóknar
og ágangs erlendra fiskiskipa hér út af,
eins og t.d. Austur-Þjóðverja, sem eru
hér með heilan flota ryksuguskipa, þótt
sjávarútvegsráðherra þrætti fyrir. Þessi
skip, og fjölmörg önnur, koma í veg fyri-r
að fiskur gangi hér á grunnslóð. Vest-
firðingum er þetta meira alvörumál en
flestum öðrum landsmönnum.
Þið voruð andvígir samningnum við
Breta, nokkrir þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins. Af hverju?
— Við töldum að forsætisráðherra hefði
gengið alltof lamgt til móts við Breta. í
samningunum við Breta 1961 var skýrt
tekið fram, að Bretar fengju ekki að veiða
innan 12 mílnanna. Bretar, jafnt sem allir
íslendingar, vissu það vel þá, að erlend
fiskiskip hafa fengið um 55% af heildar-
afla sínum á svæðinu frá Bjargtöngum að
Horni.
— Núverandi forsætisráðherra virtist
ekki skilja þetta lífsbjargarmál vestfirzkra
sjómanna. Hann samdi um það, að brezkir
togarar mættu veiða í hvaða hólfi sem
væri 10 mánuði á ári.
— Ég lít svo á, að hægt hefði verið að
ná samningum við Breta miklu fyrr en
gert var, ef ríkisstjórnin hefði ekki verið
jafn klofin í landhelgismálinu og raun
bar vitni.
— Sá megingalli er á samkomulaginu
við Breta, að hér er aðeins um að ræða
samkomulag til bráðabirgða, og í því felst
engin viðurkenning á 50 mílunum.
— í samningunum 1961 viðurkenndu
Bretar 12 mílumar og samþykktu jafn-
framt mikla stækkun á landhelginni frá
1958.
— Ég harma mjög, að meirihluti þing-
manna Sjálfstæðisflokksins skuli hafa sam-
þykkt þessa samninga, sem Þjóðviljinn og
Alþýðubandalagið kölluðu „úrslitakosti“
og „nauðungarsamninga“, þó allir þing-
menn Alþýðubandalagsins yrðu svo að éta
þetta ofan 1 sig á Alþingi.
— Þessi samningur hefur reynzt illa
fyrir vestfirzka sjómenn. Mér voru það
mikil vonbrigði, að þingmenn Vestfirðinga
í röðum stjómarsinna skyldu greiða þess-
um samningi atkvæði.
Framhald á 2. síðu.
Utanríkis- og
varnarmdl
Um þau mál segir Matthias meðal annars:
— Ég var einn þeirra, sem bar mikið traust til Ein-
ars Ágústssonar er hann var skipaður utanrikisráð-
herra. Ég taldi að hann myndi marka skýra og ábyrga
stefnu í utanríkismálum og viðhalda góðu samstarfi og
samvinnu við vinveitt ríki.
— Ég verð, því miður, að segja eftir þriggja ára
feril hans í þessu embætti, að ég hefi orðið fyrir mikl-
um vonbrigðum. Allar yfirlýsingar hans í varna- og
öryggismálum íslendinga eru með ólíkindum. Annan
daginn ber hann fram skoðanir meirihluta þjóðarinnar
í þessum málum, — hinn daginn hafa kommúnistar
náð tökum á honum og þá hefur hann snúið við blað-
inu. Þá koma frá honum hæpnar yfirlýsingar, þó ekki
sé staðið við eitt eða neitt.
— Einar Ágústsson og frambjóðendur Framsóknar-
flokksins í Vestfjarðakjördæmi líta svo á, að herinn
eigi að fara strax. Þar eru þeir einlæglega sammála
kommúnistum. í framboðsræðum hér á Vestfjörðum
hafa Framsóknarmenn í rauninni verið að hirta þær
þúsundir Framsóknarmanna, sem skrifuðu undir áskor-
un „Varins lands“.
— Ég held að vonbrigði þessa fólks, sem stóð að
viljayfirlýsingu um varið land með meirihluta kjósenda,
hljóti að vera sízt minni en okkar Sjálfstæðismanna
yfir slíkri stefnu.
— íslendingar hljóta að vera samstarfsaðilar vest-
rænna þjóða og aðilar að Atlanzhafsbandalaginu. Sjálf-
ir erum við ekki færir um að sjá um tryggar varnir
landsins og því verðum við að leita samvinnu sterkari
aðila til að tryggja þær.
— Við Sjálfstæðismenn lítum svo á, að varnarsamn-
ingurinn skuli í heiðri hafður, en það útilokar á engan
hátt nauðsynlega endurskoðun á þeim samningi.
— Keflavíkurflugvelli þarf að skipta í tvær einingar.
í fyrsta lagi þarf alít flug óbreyttra borgara að vera
út af fyrir sig, um íslenzka flugstöð. í öðru lagi þarf
að aðgreina varnarliðið og starfsemi þess frá hinu
daglega, borgaralega flugi um völlinn. Vel kemur til
Framhald á 2. síðu.