Vesturland - 23.06.1974, Side 2
y/mmi
VI 3089 afks^FiKoam satXuFsxzivsxnxm
Lnndhelgismálið
Framhald af 1. síðu.
— Ef Ólafur Jóhannesson hefði haft
fullt umboð til þessarar samningsgerðar,
studdur þingmönnum stjórnar og stjórnar-
andstöðu, væri ekki um að sakast, En
hann leitaði ekki eftir sliku innboði og
fór einn í þessa samninga án þess að leita
ráða hjá einum eða neinum. Ólaf skorti
nægjanlegan kunnugleika í þessum málum
til að semja einn, og því fór sem fór.
Vestfirzkir sjómenn hafa kvartað undan
ágangi erlendra togara, og fengið litlar
undirtektir.
— Já, þær voru hörmulega kaldrana-
legar og Ólafur sendi vestfirzkum skip-
stjórum kaldar kveðjur á Alþingi. Ég
furða mig á því, að þingmenn Vestfjarða
í stjórnarliðinu skyldu þegja þunnu hljóði
undir þeirri ádrepu.
— Seinagangur í samningum við Vestur-
Þjóðverja er orðinn ótrúlega mikill og hef-
ur valdið stórmiklum viðskiptalegum skaða
gagnvart Efnahagsbandalaginu. Það er
furðulegt, að samningar skuli ekki hafa
tekizt fyrr þegar vitað var, að Willy
Brandt, fyrrv. kanzlari V.-Þýskalands, var
okkur mjög velviljaður í þessu máli.
— 1 þessu máli, sem öðrum, höfum við
í stjómarandstöðunni hvergi fengið nærri
að koma, og allt hjal stjórnarsinna um
samstarf á breiðum grundvelli í landhelgis-
málinu, verið markleysa ein.
Ykkur hefur verið legið á hálsi, sumum
þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, fyrir
að hafa samþykkt lögin um fiskveiðiheim-
ildir í landhelginni. Á hverju byggðist af-
staða ykkar?
— Á næstsíðasta þingi urðu harðar deil-
ur um þetta frumvarp. Ég var í hópi
þeirra þingmanna, sem vildu fresta af-
greiðslu málsins. Sjávarútvegsráðherra
féllst á þetta sjónarmið og fiskveiðilaga-
nefndin var látin halda áfram störfum.
— Þegar nefndin skilaði störfum og
málið kom fyrir síðasta þing, fundust
mér breytingar hennar ganga of skammt,
og það er margt í þessari löggjöf, sem ég
er mjög óánægður með. Nauðsyn bar til
að hraða afgreiðslu málsins áður en gild-
andi lagasetning rann út um síðustu ára-
mót, og menn urðu að sætta sig við að
láta málið ganga sína eðlilegu leið, þótt
vankantar væru á.
— Það þarf tvímælalaust að gera breyt-
ingar á þessari löggjöf og vdð Sjáifstæðis-
menn munum berjast gegn því, að sífellt
sé verið að stefna fleiri og fleiri togur-
um í túnið hjá okkur hér vestra.
— Ég tel að undirbúningsnefndin hafi
ekki unnið sitt starf af nægilegri þekkingu,
sérþekkingu, á málefnum sérstakra svæða,
og þá sérstaklega Vestfjarðasvæðisins, og
við þurfum að hrinda þessu médi af okkur.
Efnahagsmálin
Hrikalegt ástand efnahags-
málanna hlýtur að verða
hverjum manni umhugsun-
arefni. Hvað vilt þú segja
um þau?
— Núverandi ríkisstjórn
tók við blómlegu búi frá
Viðreisnarstjórninni. — I
óskalista Vinstristjórnar-
innar fólust fyrirheit fyrir
alla, málefnasamningurinn
var svo vel úr garði gerð-
ur, að allir fundu þar sitt.
Eftir formanninum var
þetta skírt Ólafskver.
— Viðreisnarstjómin
hafði gát á fjármálunum.
Hún reisti sér ekki hurðar-
ás um öxl. Hún lagði ekki
í meiri fjárfestingar en
kerfið þoldi. Viðreisnar-
stjórnin hafði að leiðsögu
það lögmál, að afkoma at-
vinnulífs, atvinnuveganna
og þjóðarinnar í heild verð-
ur að haldast í hendur.
— Hér verður að gæta
að því, hve stóran skerf
samfélagið krefst af tekj-
um skattborgarans og
hversu mikið fé er til ráð-
stöfunar hverju sinni. Einn
ig þarf að gæta að því,
hversu mikil lán má taka
að hverju sinni, án þess að
reisa sér hurðarás um öxl.
Þar skiptir máli, að af-
borganir og vextir fari ekki
yfir ákveðið hámarkshlut-
fall.
— Þessar einföldu stað-
reyndir skildi Vinstristjórn-
in ekki. Fúslega viðurkenni
ég, að margt hefur verið
keypt, margt gert vel í tíð
núverandi stjórnar, en
framhjá því verður ekki
komizt, að margt hefur
verið gert, sem átti og varð
að bíða. í þessum efnum
verður að breyta um
stefnu. Svo miklar fram-
kvæmdir mega aldrei vera
hjá því opinbera, að það
sé í harðri samkeppni við
hið frjálsa framtak á
vinnumarkaðinum; að það
sé að berjas-t um vinnuaflið
í harðri samkeppni við út-
gerðina, landbúnaðinn, iðn-
aðinn og aðrar framfærslu-
greinar þjóðfélagsins.
— Stytting vinnuvikunn-
ar var þjóðhagslega glap-
ræði af hálfu stjórnvalda.
Um slík mál ber aðilum
vinnumarkaðarins að semja
hverju sinni; ekki ríkis-
stjórnin, eins og allir hafa
nú gert sér ijóst.
— Samningarnir á s.l.
vetri fóru algjörlega úr
böndunum. — Verkamenn
fengu 20% kauphækkun,
en á sama tima voru dæmi
þess að útseld vinna ákveð-
inna fagmanna hækkaði
um 69%. Slíkt þolir ekkert
þjóðfélag. Þegar svo for-
sætisráðherrann er spurð-
ur í sjónvarpi, hverjum
þetta sé að kenna, þá yppt-
ir hann öxlum og glottir
og segir síðan: „Það fór
bara svona“.
— En af hverju fór þetta
svona? Vegna þess að við
höfum í landinu stjóm,
sem hefur gleymt að
stjórna og kann ekki að
stjórna.
Nú er mikið talað um
fjárskort hinna ýmsu fjr-
festingarsjóða landsmanna.
Hvernig horfa þau mál?
— Það er mjög óhugn-
anlegt allt saman. Ég á
sæti í stjórn Framkvæmda-
stofnunar ríkisins og hefi
þar kynnzt óskum stofn-
lánasjóðanna. Þeim er eng-
an veginn hægt að full-
nægja og allir sjóðirnir eru
tómir, og því hljóta allar
framkvæmdir að dragast
saman á næstunni. Gjald-
eyrisvarasjóðurinn verður
upp urinn eftir tæplega 4
vikur, ef fer sem nú horf-
ir.
—- Lausafjárstaða við-
skiptabankanna fer sífellt
versnandi og þeir skulda
nú þúsundir milljóna í
Seðlabankanum með 18%
vöxtum. Verðtryggðu lán-
in, sem ríkissjóður hefur
verið að bjóða út að undan-
förnu, eru í slíkri óðaverð-
bólgu, sem nú ríkir, komin
með 30% vexti.
— Allt bætist þetta á
þær framkvæmdir, sem
verið er að ráðast í og þær
verða svo kostnaðarsamar,
að engu tali tekur. Því
verður að brjóta í blað og
draga úr þessari spennu og
þenslu, draga úr fram-
kvæmdum hins opinfoera,
og fyrst og fremst rétta
við hag útflutningsatvinnu-
veganna til að koma í veg
fyrir samdrátt í útflutn-
ingi.
Utanríhismól og...
Framhald af 1. síðu.
greina, að íslendingar taki í vaxandi mæli við þeim
störfum á vegum varnarliðsins, sem þeir eru færir um.
— Hinu skulum við ekki gleyma, að varnarliðdð hefur
þrásinnis reynzt okkur mikil hjálparhella við sjúkra-
flutninga, leit að fólki, flugvélum og skipum, og eftir-
minnileg er sú aðstoð, sem varnarliðið veitti í sambandi
við eldgosið í Eyjum.
— Afstaða Norðmanna og Dana til þessara mála
hlýtur að vera þung á metunum þegar við ræðum þessi
mál. Til munu iþeir, sem gera lítið úr norrænni sam-
vinnu. Á það reyndi á áhrifaríkan hátt þegar ógæfan
dundi yfir í Vestmannaeyjum. Þá áttum við vini, sem
í raun reyndust.
— Norðurlandaþjóðirnar vita mæta vel hvað styrjöld
er. Þær þekkja af reynslunni, hversu kröpp kjör stór-
veldin kunna að skapa smáríkjum. Því vilja Norðmenn
og Danir eiga samleið með okkur í öryggismálum og
eru vitanlega uggandi yfir því ábyrgðarleysi, sem ís-
lenzk stjórnvöld hafa haft í frammi að undanförnu. Við
getum ekki ætlazt til þess, að eiga vini þegar á bjátar,
en sýna enga vináttu á móti, þegar á henni þarf að
halda.
Ýmsum þóttu viðbrögð forsætisráðherra við afhendingu
mótmæla „Varins lands" undirfurðuleg.
— Já, það má nú segja. Hann tók við viljayfirlýsingu
tæplega 56 þús. atkvæðisbærra íslendinga, og lét liggja
að því orð, að þetta myndi engin áhrif hafa á stefnu
stjórnarinnar í varnarmálunum.
— Afstaða forsætisráðherra kemur mér ekkert á
óvart. Þetta er í mjög svipuðum anda og afstaða þessa
manns til svo fjöimargra annarra mála.
KOSNINGASKRIF-
STOFUR D-LISTANS
PATREKSFJÖRÐUR:
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins,
Skjaldborg, sími: 1189.
Forstöðumaður: Hilmar Árnason.
BÍLDUDALUR:
Forstöðumaður: Sigurður Guðmundsson símstjóri,
sími: 2148.
ÞINGEYRI:
Forstöðumaður: Jónas Ólafsson frkvstj, sími: 8150.
FLATEYRI:
Forstöðumaður: Einar Oddur Kristjánsson frkvstj.,
sími: 7700.
SUÐUREYRI:
Forstöðumaður: Óskar Kristjánsson frkvstj.,
símar: 6116 og 6185.
ÍSAFJÖRÐUR:
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins, Uppsölum,
sími: 3232.
Forstöðumaður: Högni Torfason, sími 3720.
BOLUNGARVÍK:
Forstöðumenn: Guðmundur B. Jónsson vélsmiður,
sími: 7150.
Jón Friðgeir Einarsson, byggingam., sími: 7158.
HÖLMAVÍK:
Forstöðumaður: Sr. Andrés Ólafsson, sími: 3117.
STUÐNINGSIVIENN Sjálfstæðisflokksins eru hvattir til
að hafa samband við kosningaskrifstofurnar og trún-
aðarmenn.