Vesturland - 23.06.1974, Page 4
4
Sgtis nfesxfíjizxxn safiaFS3t£i»sMr/m
iiiiiiiiiiiiiiiiiiitaiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiaiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiii
1 Útgefandi: Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Vest- 1
| fjarðakjöræmi. |
1 Blaðnefnd: Ólafur Þórðarson, ísafirði, Guðmundur Agn- |
| arsson. Bolungarvík, Halldór Bernódusson, Suðureyri, =
| Hafsteinn Davíðsson, Patreksfirði, Sigurður Sv. Guð- |
mundsson, Hnífsdal. 1
Ábyrgðarmaður: Finnur Th. Jónsson. |
| Afgreiðsla: Uppsölum — Sími 3232 |
| Prentstofan Isrún hf., ísafirði. |
lllllllllllllllllll!llllllllllllllllllllllllllllll||l||||||||||l||!l|l!|l!||ll!l||||ll|l||!J||l|!!|!l|il|il|ll||l||llll||||ll|llllllllllTl
Örlög ráðast
á Vestfjörðum
í KOSNINGUNUM 30. júní ráðast örlög íslenzku þjóðar-
innar til langframa. Úr því verður skorið, hvort hér eigi að
búa sjálfstæð þjóð, sem treystir sínar eigin varnir og sjálf-
stæði með samvinnu við náskyld vinaríki, eða hvort hér eigi
að vera óvarið land, sem yrði bráður biti austurveldanna og
ofurselt valdastefnu kommúnistaríkjanna.
Á kjördegi verður einnig úr því skorið, hvort þjóðin ber
gæfu til þess að skapa sér trausta og örugga forystu við
lausn þeirra hrikalegu vandamála, sem við blasa. Sjálfstæðis-
mönnum er það engin tilhlökkun að taka við þeim óskapnaði,
sem við er að búa. Annað eins þrotabú hefur aldrei þekkzt
hér á landi og þó víðar væri leitað. Á hinn bóginn vilja Sjálf-
stæðismenn ekki una því, að áfram verði haldið á þeirri
braut, sem gengin hefur verið undanfarin þrjú ár. Þeir vilja
spyrna við fótum, sjá þjóðinni, og um leið sjálfum sér,
forráð.
Hver og einn getur litið í eigin barm. Hver og einn veit,
hvað sem öllu þrasi um stjórnmál líður, að við þessa stjórn
verður ekki unað. Fólkið er orðið þreytt á þessari óstjórn,
það vill breytingu; nýja stjórn, sterka stjórn, sem hefur
þor og áræði til að fást við vandann, og hver og einn í þessu
þjóðfélagi gerir sér grein fyrir því, að sá vandi verður ekki
leystur án afskipta Sjálfstæðisflokksins. Það er liðin tíð, að
hægt sé að „ýta Sjálfstæðisflokknum til hliðar" í íslenzkum
stjórnmálum, eins og einn helzti foringi Framsóknarflokks-
ins orðaði það hér um árið.
Sjálfstæðisflokkurinn er stærsta og virkasta aflið í því
lýðræði, sem íslendingar vilja búa við. Hann er eini flokkur-
inn, sem er laus við hringlandahátt og „stefnuvillur". Vinstri
menn tala einhver ósköp um sameiningu vinstri manna. Orð,
en ekki gerðir. Sjálfstæðismenn þurfa ekki að tala um sam-
einingu. Þeir eru sameinaðir; sameinaðir í því starfi, að leiða
þjóðina til farsældar og velferðar fram á veg.
Örlög Vinstristjórnarinnar verða ráðin hér á Vestfjörðum.
Stóru flokkarnir tveir fá örugglega sína tvo menn hvor.
Fimmti þingmaðurinn úr Vestfjarðakjördæmi getur heitið
ýmsum nöfnum, eins og málin horfa í dag. En með markvissu
starfi og góðum stuðningi einlægra Vestfirðinga, verður
fimmti þingmaðurinn sú kona, sem skipar nú þriðja sæti D-
listans, baráttusætið.
Kariar og konur á Vestf jörðum munu gera sig-
ur D-listans stóran og tryggja Sigurlaugu þing-
sæti, fella Karvel og þar með Yinstristjórnina
eins og hún leggur sig.
Fram til sigurs, Sjálfstæðismenn!
17. JÚNÍ Á ÍSAFIRÐI
Þjóðhátíðarhöldin á ísafirði
fóru fram í kulda og trekki,
og hafði íþað sín áhrif. Þenn-
an dag kom eitt mesta kulda-
kast, sem herjað hefur á ann-
ars mjög ágætu vori.
Hátíðarhöldin hófust í
Neðstakaupstaðnum kl. 1,30
og söng þá Sunnukórinn
undir stjórn Ragnars H.
Ragnar. Síðan flutti Jóh.
Gunnar Ólafsson, fyrrv. bæj-
arfógeti og sýslumaður, stutt
erindi um Neðstakaupstaðar-
húsin og forna frægð þeirra.
Þeir ungu menn, sem skipuðu
17. júní-nefnd ísafjarðarkaup-
staðar að þessu sinni, lögðu
á það áherzlu, að tekið væri
til hendi við framkvæmdir í
Neðstakaupstað á þann veg,
að tryggð yrði varðveizla
hinna gömlu og sögufrægu
húsa iþar.
Jóh. Gunnar Ólafsson hefur
unnið frábært starf í þágu
Vestfirðinga með efiingu
byggðasafnsins, útgáfu árs-
rits Sögufélags ísfirðinga og
miklum og fróðlegum skrifum
um eitt og annað söguefni frá
gamalli tíð hér á Vestfjörð-
um.
Hann hefur borið mjög fyr-
ir brjósti, að gömlu húsunum
í Neðstakaupstað yrði sýnd
tilhlýðileg virðing og viðhald
og varðveizla þeirra yrði sem
bezt. Brýna nauðsyn ber til
að friða þessi hús hið allra
fyrsta og í mjög náinni fram-
tið þarf að gera rek að því,
að þessi gömlu hús fái nýtt
líf, verði gesti og gangandi
talandi tákn um sögu ísa-
fjarðaar.
Rætt hefur verið um að
koma fyrir krambúð að göml-
um hætti í Neðstakaups-tað,
enda nóg af munum tiltækt
í byggðasafninu. Einnig þyrfti
að koma upp veitingaaðstöðu
i Turnhúsinu og einnig þyrfti
að ganga frá bæklingi, sem
gerði ferðamönnum grein fyr-
ir því, sem þarna er að skoða.
Að loknu erindi Jóh. Gunn-
ars flutti Högni Torfason rit-
stjóri stutt ávarp og afhenti
bæjarstjórn og Sögufélaginu
til varðveizlu bautastein, sem
reistur var árið 1902 á Upp-
salaeyni í Seyðisfirði til minn-
ingar um þá feðga, Ásgeir
skipherra og Ásgeir Guðmund
Ásgeirssyni, sem á sínum
tíma ráku umsvifamesta og
stærsta verzlun og atvinnu-
rekstur sinnar tíðar hér á
landi.
Jón Grímsson málfærslu-
maður og endurskoðandi á
ísafirði, sem er elzti núlifandi
starfsmaður Ásgeirsverzlunar,
hefur haft mikinn hug á því,
að þessi bautasteinn yrði
endurreistur hér á ísafirði,
cg afhenti Högni steininn
fyrir hans hönd. Virðist fara
vel á því, að þessi steinn fái
umbúnað við hæfi í Neðsta-
kaupstað. þar sem vegur og
athafnalíf Ásgeirsverzlunar
stóð með mestum blóma.
Hátíðarhöldunum var síðan
haldið áfram með skrúðgöngu
að barnaskólaportinu, og
gengu skátar í fararbroddi
undir þjóðfánanum.
Þar söng Sunnukórinn,
Hannibal Valdimarsson, fyrr-
verandi ráðherra, flutti sköru-
lega ræðu og minntist afmæl-
is lýðveldisins, síðan fóru
fram ýmiss skemmtiatriði. Til
þjóðhátíðarhaldsins var vel
vandað, en veður spillti nokk-
uð fyrir því, að hægt væri að
njóta þess sem skyldi.
Að loknum útihátíðarhöld-
unum voru opnaðar myndlist-
arsýningar. í Gagnfræðaskól-
anum var sýning á verkum
Jóns Hróbjartssoncir, sem er
einn fremsti málari landsins
á náttúruvísu. Myndir hans
eru einkum kunnar hér á
Vestfjörðum, enda málaði
hann sitt umhverfi af sér-
stakri natni og alúð. Vest-
firðingum þykir vænt um
myndlist Jóns Hróbjartssonar
enda þótt hún standist máske
ekki fyllstu kröfur nútímans
um listtúlkun og innlifun. En
hvað er list?
í skólanum er einnig sýn-
ing á verkum þjóðkunnra
listamanna, sem eru í eigu
Listasafns ísafjarðar, og hafa
ekki verið almenningi tiltæk
á einum og sama staðnum.
Hér kennir margra grasa
og í rauninni einstaklega
skemmtilegt til þess að vita,
að þar eiga ísfirðingar mikinn
fjársjóð og betri en margur
skyldi ætla. Þarna tróna
ýmsir kunnustu listamenn
þjóðarinnar, svo sem Kjarval,
Jón Stefánsson, Ásgrímur
Jónsson og fleiri.
Mikil aðsókn var að þessari
sýningu strax við opnun og
mátti glöggt greina, að fólkið
kunni að meta það, sem sýnt
var.
Samtímis var opnuð sýning
á verkum yngstu kynslóðar
íslenzkra málara. Þarna sýna
nokkrir félagar úr SÚM verk
sín. Sá, sem þetta ritar, hefur
ekki séð þá sýningu, cg lætur
því umsögn um hana bíða.
Fundir D-listans
í vikunni
Frambjóðendur D-listans í Vestfjarðakjördæmi
efna til fimm almennra stjórnmálafunda í kjör-
dæminu í næstu viku.
Á Flateyri og Bolungarvík verða fundir á
þriðjudagskvöld, á Patreksfirði og Isafirði á
fimmtudagskvöld og á Hólmavík á laugardag.
Allir fundirnir hefjast kl. 20,30 nema fundurinn
á Hólmavík, sem hefst kl. 4 e.h.
Á öllum fundunum flytja frambjóðendur ræður
og stutt ávörp flytja stuðningsmenn listans. Fyr-
irspurnum fundarmanna verður svarað að þeim
loknum.
Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, verður meðal ræðumanna á fundinum á Isa-
firði.
D-listinn hvetur stuðningsmenn flokksins til að
fjölmenna á þessa fundi og sýna samtakamátt
flokksins.
Málefni Vestfjarða
Framhald af 3. síðu
höfum ferðast mikið um
kjördæmið og komið víða
við.
— í þessum ferðum höf-
um við fengið vdssu fyrir
því, að Sjálfstæðisflokkur-
inn hefur nú hagstæðari
byr en nokkru sinni áður.
Fólkið er orðið þreytt á
sundrungu og glundroða
vinstri flokkanna, og
treystir þeim ekki fyrir
málefnum sínum.
Efnahagsöngþveitið
leysa vinstrd flokkarnir
ekki. Traust og örugg for-
ysta Sjálfstæðismanna get-
ur ein leitt þjóðina út úr
þeim ógöngum, sem þriggja
ára Vinstristjórn hefur
leitt hana út í.
— Án Sjálfstæðisflokks-
ins verður landinu ekki
stjórnað, það er staðreynd,
sem ekki verður umflúin.
En við Sjálfstæðismenn
verðum að taka til hendi.
Við verðum að vera reiðu-
búnir að axla þá byrði,
sem Vinstristjórnin hefur
lagt á okkar þjóðfélag.
— Til þess að svo megi
verða, þurfa allir Sjálf-
stæðismenn, karlar og kon-
ur, að leggja sitt lið í bar-
áttunni. Fylkjum liði, vinn-
um að sigri D-listans.