Vesturland - 23.06.1974, Side 7
sana aÆs&piRxxxfí ssAcpsaxsnsxnxxa
7
Guðmundur H. Ingólfsson:
Hifnum stjórnleysi vinstri
stjórnar
í kosningunum á sunnudaginn
kemur verður fyrst og fremst
lagður dómur á verk vinstri
stjórnar Ólafs Jóhannessonar.
Sá dómur kjósenda getur vart
orðið á annan veg en þann,
að slíkri forystu verði hafnað.
Vonbrigði almennings með
vinstri stjórnina nú, eru enn
meiri en með vinstri stjórn
Hermanns Jónassonar áður.
Þegar stjórn Ólafs Jóhann-
essonar tók við völdum, voru
gefin stór og mikil fyrirheit
um breytt stjórnarfar; nú
skyldi landsmálum stjórnað
með þeim hætti að allir lands-
menn gætu vel við unað. Al-
menningur gerði sér því vonir
um að alit færi vel, þótt allir
vissu að aldrei yrðd við öll
fyrirheit staðið.
Flestir vdðurkenna að á
stjórnarárum þessarar vdnstri
stjórnar hafi verið samfellt
góðæri til lands og sjávar, og
því öll skilyrði fyrir hendi til
að afkoma þjóðarinnar ætti
að vera góð. Vonbrigði al-
mennings eru þess vegna enn
meiri nú, að Vinstristjórnin
skuli hrökklast frá völdum
vegna innbyrðis sundrungar
og algers stjórnleysis á þýð-
ingarmestu málum þjóðarinn-
ar, einmitt á þeim tíma,
sem ailt ætti að leika í lyndi
með afkomu þjóðarbúsins.
En þótt vonbrigði almenn-
ings hafi verið mikil þá er
undrun þeirra, sem fylgzt
hafa með kosningabaráttu
stjórnarflokkanna, enn meiri,
þegar þessir sömu menn biðla
nú um fylgi kjósenda með það
að markmiði að mynda nýja
vinstri stjórn sömu aðila og
hrökklast nú frá völdum
vegna eigin stjórnleysis. Það
er furðuleg ósvífni þessara
frambjóðenda, að þeir skuli
að flokkurinn nái þremur
þingmönnum kjörnum hér í
kjördæminu. Einmitt slík
fylgisaukning væri verðugt
svar við áróðri frambjóðenda
vinstri stjórnar.
Allir Vestfirðingar, sem
vilja trausta forystu Sjálf-
stæðisflokksins á stjóm þjóð-
mála, sameinast því um að
gera kosningasigur flokksins
sem glæsilegastan á sunnu-
daginn kemur.
Það ætti einnig að vera
okkur hvatndng til mikilla og
góðra starfa fyrir framboð
Sjálfstæðisflokksins að í
þriðja sæti listans, baráttu-
gera svo lítið úr dómgreind
kjósendanna, að nefna við þá
slíka firru.
Svarið við þeim ósvífna
áróðri, sem frambjóðendur
stjórnarflokkanna hafa sett
á svið fyrir þessar kosningar,
er ekki nema eitt, þ.e. að
efla Sjálfstæðisflokkinn.
Sjálfstæðisflokknum einum
er treystandi til að koma
þjóðinni út úr þeim ógöngum,
sem stjórnleysi og glundroði
vinstri manna hefur komið
henni í.
Sjálfstæðisflokkurinn á
traustu fylgi að fagna hér á
Vestfjörðum, en nú hljótum
við að setja okkur það mark,
sætinu, er ung og fjölhæf
kona með mikla reynslu á
sviði félagsmála, Sigurlaug
Bjarnadóttir, frá Vigur.
Vestfirzkar konur vænta
þess að frú Sigurlaug nái
kosningu, því þær vita að frú
Sigurlaug er glæsilegur full-
trúi vestfirzkra kvenna á
þingi.
Sjálfstæðisfólk, notum vel
þá fáu daga sem eru eftir
til kosninga og vinnum af
fullum krafti að því að efla
fylgi Sjálfstæðisflokksins.
Fylkjum liði og leggjum
okkur fram um að vinna vel
en drengilega að glæsilegum
sigri flokksins.
Guðm. H. Ingólfsson.
Kosningaskriistofa
Sjálfstæðisflokksins er opin að Uppsölum, miðhæð,
alla daga frá kl. 10—12 og 13—22.
Við biðjum alla stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins
að hafa samband við skrifstofuna, og einnig leggjum
við áherzlu á að þeir láti vita sem fyrst um þá kjós-
endur flokksins, sem verða fjarverandi á kjördegi.
SÍMI SKRIFSTOFUNNAR ER 3232.
PHILIPS
vörur eru heims-
þekkt gæðavara
STEREO
Ötvörp—Segulbönd—PlÖtuspilarar
Húseign til sölu
íbúðar- og verzlunarhúsið Hafnarstræti nr. 1 —
suðurendinn — er til sölu, ásamt lóð.
Tilboð óskast í eignina í einu lagi eða í hvora
hæð fyrir sig og verzlunarplássið sér í lagi.
Upplýsingar gefur
ELÍAS J. PÁLSSON.
Framkvæmdastjóri
Óskum að ráða nú þegar framkvæmdastjóra fyrir
h/f Djúpbátinn, ísafirði.
Umsóknir um starfið sendist h/f Djúpbátnum,
pósthólf 4, ísafirði.
Starf vélstjóra á m/s Fagranesi er laust til um-
sóknar. Umsóknarfrestur er til 10. júlí n.k.
H/f DJÚPBÁTURINN, ÍSAFIRÐI.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við frá-
fall og útför mannsins míns, föður, tengdaföður og afa
ÓLAFS SIGURÐSSONAR, skipstjóra,
Aðalstræti 8.
Guðrún Sumarliðadóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Vestfirzkir sjómenn að störfum.
Isafjarðarkaupstaður
LAUS STAÐA
Staða læknaritara við Fjórðungssjúkrahúsið og
heilsuverndarstöðina á ísafirði er laus til um-
sóknar.
Laun samkvæmt launasamningi F.O.S.Í.
Vélritunarkunnátta nauðsynleg.
Nánari upplýsingar gefur sjúkrahúsráðsmaður.
Umsóknarfrestur er til 10. júlí n.k. og ber að
skila umsóknum til undirritaðs.
ísafirði, 19. júní 1974.
BÆJ ARSTJÓRINN Á ÍSAFIRÐI.