Vesturland - 23.06.1974, Qupperneq 8
Siðgæði Samtakanna í verki:
VALDNlÐSLA I
STÖÐ17VEITINGU
FYRIR TÆPU ÁRI flutti hingað til ísafjarðar sjö
manna fjölskylda, ein af þeim mörgu, sem hrekjast
varð frá Vestmannaeyjum eftir eldgosið þar. Nú er
pólitísk valdníðsla að hrekja þessa fjölskyldu héðan
frá ísafirði.
Hörður Bjarnason, sem settur hafði verið umdæmis-
stjóri pósts og síma á Vestfjörðum með aðsetri á ísa-
firði, kom hingað til bæjarins snemma á síðasta sumri
ásamt konu sinni og fimm börnum. Þessi staða var
síðan auglýst laus til umsóknar í vetur og voru um-
sækjendur um hana átta. Af þeim þremur, sem lengstan
höfðu starfsaldur hjá Pósti og síma, var einn starfs-
maður póstþjónustunnar, sem hafði lengstan starfs-
aldur, eða allt frá 1945. Þess ber að geta, að póstmaður
hefur aldrei gegnt slíku embætti áður, enda verið ætlazt
til að viðkomandi hefði fagþekkingu og tæknilega
reynslu í símamálum. Næstur að starfsaldri kom settur
umdæmisstjóri, Hörður Bjarnason, sem jafnframt hafði
gegnt embætti símstjóra í Vestmannaeyjum frá 1966
og starfað hjá Landssímanum allt frá 1945, eða í hart-
nær þrjá áratugi.
Þriðji umsækjandinn hafði tæknilega þekkingu og
starfsaldur frá 1949, en aldrei gegnt viðlíka embætti.
Umsóknum þessum var vísað til umsagnar Starfs-
mannaráðs Pósts og síma, en það ráð hefur skv. samn-
ingum milli ríkis og starfsmanna Landssímans, víðtækt
áhrifavald um stöðuveitingar innan stofnunarinnar, og
mun það sjaldan hafa skeð, að ríkisvaldið hafi gengið
í berhögg við tillögur þess um val manna í stöður hjá
pósti og síma.
Starfsmannaráðið hafði umsóknir þessar til meðferð-
ar drjúga stund, en hafði ekki lagt fram sína álitsgerð
í málinu þegar þáverandi samgöngumálaráðherra, Björn
Jónsson, veitti stöðuna.
Tilkynningin um að staðan hefði verið veitt þeim
manni, sem hafði þriðja lengsta starfsaldur við stofn-
unina, og enga reynslu sem símstjóri, kom þann 4. maí
s.l., SAMA DAGINN OG BJÖRN JÓNSSON LÉT AF
EMBÆTTI SAMGÖNGUMÁLARÁÐHERRA. Staðan
var veitt frá 1. maí.
Þarna höfðu Samtök frjálslyndra og vinstri manna
síðasta tækifærið til þess að sýna og sanna í verki
boðskap sinn um að skapa nýtt siðgæði í íslenzkum
stjórnmálum, eins og þau gumuðu sem mest af fyrir
síðustu kosningar til Alþingis. Og það tækifæri var
ekki látið ónotað. Ráðherra Samtakanna lét það verða
sitt síðasta embættisverk, þótt sjúkur væri, að beíta
pólitískri valdníðslu gegn þeim manni, sem búinn var
að gegna umræddu embætti mánuðum saman, hafði
til þess starfsaldur og síðast en ekki sízt tæknilega
þekkingu og starfsreynslu.
Mikið hefur nú legið við. Það er gengið gjörsamlega
framhjá Starfsmannaráði Landssímans og óðagotið svo
Hvers vegna ég kýs
nú Sjálfstæ&isflokkinn
Eftir að hafa í áraraðir
fylgzt með framvindu ís-
lenzkra stjórnmála og því
flokkakerfi, sem byggt hefur
verið upp í landinu, — og
eftir að hafa fylgzt með því
sundrungarstarfi, sem hinir
svokölluðu vinstrflokkar hafa
„leikið“ í þessu landi, — og
eftir stjórn þeirra á landinu
s.l. þrjú ár, þar sem hver
höndin hefur verið uppi á
móti annarri, og árangurinn
er við blasandi öngþveiti, m.
a. í fjármálum ríkisins, ásamt
öðrum „öngþveitum" í þessu
þjóðfélagi, — og eftir mikil
vonbrigði með þann flokk,
sem ég stóð næst, — kýs ég
nú Sjálfstæðisflokkinn.
Þegar ég hefi nú gert það
upp við mig, hvaða flokk ég
kýs 30. júní, fer það ekkert
á milli mála, að ég vil stuðla
að því að kona sú, sem skipar
þriðja sæti á lista Sjálfstæð-
isflokksins, frú Sigurlaug
Bjarnadóttir frá Vigur, kom-
ist sem kjördæmiskjörin á
þing. Eins og ailir Vestfirð-
ingar vita, stendur frú Sig-
urlaug föstum rótum sem
Vestfirðingur, þykir vænt um
Vestfirðina, og verður örugg-
lega vestfirzkur fulltrúi allra
vestfirzkra kjósenda á Al-
þingi.
Þá er röðin komin að frú
Hildi Einarsdóttur í Bolung-
arvík. Þó að hún komist
kannske ekki kjördæmakjör-
in á þing núna, vona ég að
henni geti skolað inn á þing
a.m.k. í forföllum. Ég gef
Hildi sama traust og Sigur-
laugu.
Ég kýs Sjálfstæðisflokkinn
nú af framanrituðum ástæð-
um, — ég treysti honum bezt
til að koma okkur út úr þeim
ógöngum, sem við erum í.
Ég treysti honum til að
mynda ábyrga, samheldna og
traustvekjandi ríkisstjórn.
Ég kýs Sjálfstæðisflokkinn
nú, einnig vegna þess, að ég
vil ríkisstjórn allra stétta —
allra íslendinga.
Unnur Gísladóttir,
ísafirði.
Ungt fólk á íslandi í dag
hafnar; stjórnleysi í efna-
hagsmálum, gáleysi og rata-
skap í utanríkismálum og
pólitískum loddaraleik með
varnir landsins, og hóflausri
skattpíningu þegnanna.
Og ég vel þann flokk, sem
hefur sýnt það, að hann er
þess umkominn að stjórna
þjóðinni án alvarlegra áfalia,
og hefur siðferðilegan styrk
til þess að gera þær ráðstaf-
anir, sem leiða þjóðina úr
þeim efnahagslegu og póli-
tísku ógöngum, sem vinstra
bröltið á síðustu árum hefur
leitt hana í.
Þess vegna kýs ég Sjálf-
stæðisflokkinn í komandi al-
þingiskosningum.
Elsa Nína Sigurðardóttir,
Bíldudal.
að gegna embætti umdæmisstjóra á ísafirði, skuli
hrakinn frá því starfi af Jón Baldvin Hannibalssyni
sökum þess eins, að skólameistarinn telur sig þurfa
að nota þessa embættisveitingu sem einn lið í bar-
áttunni fyrir að komast á þing.
Það fer ekki framhjá neinum, sem fylgist með gangi
mála við embættaveitingar sem þessa, að það eru
heimamenn, sem gera sínar tillögur og berjast fyrir
sínum manni, og ráða því í reynd, hver hlýtur slíka
stöðu, þótt ráðherra þurfi endanlega að setja sinn
stimpil á ákvörðun heimamanna.
mikið, að ekki er hægt að bíða eftir umsögn þess.
Það er gengið fram hjá þeim manni, sem gegnt hafði
embættinu allt frá því í fyrrasumar, og hafði til þess
mestan rétt og hæfileika, að öðrum umsækjendum ó-
löstuðum. Ráðherrann, sem var að syngja sitt síðasta
vers í embætti, er rifinn upp úr rúminu á sjúkrahúsi
til þess að skjalfesta þetta sýnishorn af siðgæði Sam-
takanna.
KÁRI AÐ BAKI BJÖRNS
Að baki þessari leiðu sögu um valdníðslu liggur
önnur saga, en hún fjallar um framagirni og valda-
brölt helzta forystumanns Samtakanna hér á Vestfjörð-
um, Jóns Baldvins Hannibalssonar skólameistara. Það
eru meinleg örlög, að maðurinn, sem þáverandi sam-
göngumálaráðherra, Hannibal Valdiimarsson, setti til
Sú ákvörðun er komin frá Jóni Baldvin Hannibals-
syni og engum öðrum. Honum nýtist sólarhringurinn
furðu vel, einnig til myrkraverka. Frá honum er komið
það siðgæði, sem felst í þessari stöðuveitingu.
Stuðningsmenn lafandi ríkisstjórnar hafa mjög gum-
að af því, að fólksflóttinn frá landsbyggðinni hafi
stöðvazt, og þakka sér, þó allir viti, að síbatnandi af-
komumöguleikar og hugarfarsbreyting unga fólksins,
sem ekkert er í tengslum við stefnu stjórnarinnar,
hafi ráðið hér mestu.
En fróðlegt væri að fá svar skólameistarans við
tveimur spurningum. Skiptir engu máli þótt sjö manna
fjölskylda sé hrakin héðan úr byggðarlaginu með
pólitískri valdníðslu? Skiptir það eitt máli, að fólk
flytjist að sunnan í þeim eina tilgangi, að tryggja
sér örugga vígstöðu til að komast á þing?
Nú orðið held ég að flestum
sé orðið það ljóst að stjórn
sú, sem nú er að missa völdin
framdi hin hroðalegustu
heimskupör, hvert öðru verra.
Við megum alls ekki láta
það henda aftur, að við stjórn
landsins sitji aðrir eins álfar.
Þegar litið er á þau vanda-
mál sem framundan eru t.d.
í efnahags- og utanríkismál-
um, treysti ég einum flokki
og aðeins einum, til að leysa
vandann sómasamlega, og það
er Sjálfstæðisflokkurinn.
Hann hefur sýnt það og
sannað, að hann er þess megn-
ugur að ráða við margt það,
með gerðum, sem öðrum virð-
ist ókleift að öllu leyti, nema
Framhald á 5. síðu