Vesturland - 24.12.1976, Síða 9
9
f IhalHcmonn olln hnrio comoinict"
„IMdlllöNlGllll dllld idllUd odlllcllllol
mmm df'Má
Hugleiðingoi um ústund f jgv ! * s
íhuldsstefnunnnr ú íslundi ðjft m
Eftir Einar K. Guðfinnsson blaðamann
Rætur í
*
Ihaldsflokknum
Mér hefur stundum fund-
ist sem flokksbræður mínir í
Sjálfstæðisflokknum væru
óþarflega hörundssárir yfir
því að vera kallaðir íhalds-
menn af andstæðingum.
Þetta er kannski skiljanlegt,
því vissulega er það and-
styggilegt að láta núa því
sér um nasir að vera andvíg-
ir framförum og öðru því
sem til heilla horfi fyrir iand
og þjóð. En þá merkingu
hefur orðið íhald fengið fyr-
ir tilstuðlan vinstri manna.
Mér finnst fátt ánægju-
legra sagt um mig en það að
ég sé íhald og tel íhalds-
nafnbotina ekki vera neitt
til að skammast sín fyrir.
Sjálfstæðisflokkurinn hef-
ur brugðist íhaldshugsjón
sinni að mínum dómi þrátt
fyrir að upphafsmenn
flokksins hafi staðið föstum
fótum í íhaldsflokknum
gamla.
Við skulum ekki gleyma
því að fyrsti formaður Sjálf-
stæðisflokksins, Jón Þorláks-
son var formaður íhalds-
flokksins. Ennfremur er
þarft að minnast þess að
stærsti hluti fyrsta þing-
flokks Sjálfstæðisflokksins
voru menn sem komu úr
íhaldsflokknum. Enda varð
flokkurinn til við samruna
íhalds- og Frjálslynda
flokksins.
All er betra en íhaldið,
kvakaði Hriflu Jónas á sín-
um tíma og hinir vinstri
fuglarnir nteð honum. Og
eins heimskulegt og það er
nú hefur vinstri mönnunt
verið það ótrúlega tamt að
klína saman íhaldi og fas-
isma allt frarn á þennan
dag. Það sjá allir sem á
annað borð skilja einföld-
ustu hluti að svona hugtaka
fölsun á ekkert skylt við
raunveruleikann. Raunar er
svona fölsun til þess fallin
að gera fasismann góðan í
augum fólks, eins og marg
oft hefur verið bent á.
En hvað er þetta íhald
annars? Er það kannski ekki
þetta hræðilega sem alll
drepur í dróma?
Nei aldeilis ekki.
*
Ihald og umrót
Jón Þorláksson, sem fyrr er
minnst á skilgreindi þetta
hugtak af skynsemi eins og
vænta mátti og greindi um
leið mismuninn á milli þess
sem hann kallaði íhalds-
stefnu og umrótsstefnu.
í frægri ritgerð sent hann
reit í Eintreiðinni árið 1927
um íhaldsstefnuna kemst
hann þannig að orði.
„íhaldsstefnan spyr:
Hvað hefur reynst vel á
þessu sviði hingað til? Það
sent vel hefur reynst viljum
vér til fyrirmyndar hafa,
viljum varðveita það. Vér
viljum ekki breyta til nema
oss þyki sýnt að nýjungin sé
betri.
Og Jón Þorláksson segir
umrótsmenn einungis festa
augun á göllum í fari þess
sem er og segi síðan: Burt
með það gallaða vér viljum
reyna eitthvað nýtt.
Með hliðsjón af þessari
prýðilegu skilgreiningu Jóns
Þorlákssonar sjá nú allir að
það er ekki til neins
vansa að iylgja íhaldsstefn-
unni. Það er ekki neitt til að
skammast sín fyrir að flana
ekki að neinu.
Það er blátt áfram þjóðar-
nauðsyn að íhaldsöfl sem
byggja ákv'arðanir sínar á
yfirvegun, fremur en öðru,
séu öflug hér á landi. Enda
er ég sannfærður urn að
margt væri betur komiðá
íslandi ef svo hefði verið.
Hannibal
hælir Íhaldinu
Sém betur fer er það að
verða aðeins algengara að
rnaður heyri hér á landi
íhaldsstefnunni sungið lof.
Eitthvað ánægjulegasta
dæmið er að finna í nýjasta
Helgarblaði Vísis, þar sem
Hannibal Valdimarsson fer
hlýlegunt orðum um íhalds-
stefnuna. Hann segir orð-
rétt.
,,Nú finnst mér jafnvel að
íhaldsstefnan mætti eiga sér
traustari ntálssvara en hún á
í Sjálfstæðisflokknum. Það
er ekkert eðlilegra og sjálf-
sagðara en að íhaldssöm
sjónarmið eigi sér málsvara
í pólitískum flokki sem yrði
mótaðili sosíal-
demókratatísks flokks“.
Fyrir okkur sem köllum
okkur íhaldsmenn, er yfir-
lýsing af þessu tagi frá
margreyndum vinstri
manni, bæði ávinningur og
uppörvun. Það er von mln
að okkur reynist það unnt í
framtíðinni að hefja íhalds-
stefnuna til þeirrar virðing-
ar sem hún á skilið.
Jón Þorláksson fyrsti formaður Sjálfstæðisflokksins. Hann var
áður formaður fhaldsflokksins, sem sameinaðist Frjálslynda
flokknum og myndaði Sjálstæðisflokkinn.
MIÐFELL HF.
HNÍFSDAL
sendir skipshöfninni
á Páli Pálssyni,
öðrum starfsmönnum,
og viðskiptaaðilum
bestu óskir um gleðileg jól
og farsælt nýár.
Þökkum ánægjulegt samstarf
á árinu sem er að líða.