Vesturland - 24.12.1976, Qupperneq 11
11
Þáttur Lions-klúbba á
Vestfjörðum.
Nokkur undanfarin ár
hefur Lionsklúbbur Bolung-
arvíkur rætt nauðsyn þess,
að gefa gaum málefnum
vangefinna í landsfjórð-
ungnum. Það hefur verið
hugmynd klúbbsins, að
Lionsklúbbarnir sjö á Vest-
fjörðum styddu myndarlega
að hverju því starfi, sem
unnið væri í þágu vangef-
inna. Eru góð fordæmi um
það hérlendis, að Lions-
klúbbar hafi haft forgöngu
um stofnun og rekstur heim-
ila fyrir vangefna. Þá er og
kunnugt, að Lionsklúbbarn-
ir á íslandi söfnuðu fé til
hagsbóta fyrir vangefna,
með sölu „Rauðu fjaðrar-
innar“, og nam sú söfnun
um 16 milljónum króna. Er
ekki vafamál, að stuðningur
við vangefna er myndarlegt
og verðugt verkefni fyrir Li-
onsklúbba landsins. Má t.d.
hugsa sér, að klúbbarnir
gerist styrktarmeðlimir fél-
agsins á Vestfjörðum, og
greiði þá sem svarar á hvern
klúbbfélaga. En einnig
mætti íhuga, hvort þjón-
ustudegi Lions-
dreyfmgarinnar, 8. október
ár hvert, gæti ekki verið vel
varið í þágu vangefinna.
Loks má hugsa sér, að Li-
onsklúbbur geri það að
aðalverkefni sínu, annað
hvort um eins árs skeið eða
lengur, að vinna að fram-
gangi hagsmunamála van-
gefmna. Svo sem fyrr segir,
dreifðu Lionsklúbbar kynn-
ingarbréfi inn á hvert heim-
ili á Vestfjörðum, og er það
hér með þakkað.
Þáttur kvenfélaga á
Vestfjörðum.
Styrktarfélag vangefmna
á Vestfjörðum skrifaði for-
mönnum kvenfélaga í
byggðarlaginu bréf, dagsett
29. júlí 1976, þar sem skýrt
var frá fyrirhugaðri stofnun
félagsins, þ.e. undirbúnings-
nefndin skrifaði bréfið, þar
sem þá hafði enn ekki verið
gengið frá stofnun félagsins.
f bréfinu var rætt um hina
feykilegu þörf, sem væri á
slíku félagi. Formenn kven-
félaganna voru í bréfinu
beðnir að skipuleggja söfn-
un styrktarfélaga, hver á
sínu félagssvæði, og var
þeim sendur í þvi skyni
áskriftarlisti fyrir nöfn vænt-
anlegra félaga.
Er ekki að orðlengja það,
að konurnar brugðust mjög
vel við þessari málaleitan.
Mun óhætt að segja, að
söfnun styrktarfélaga hafi
gengið prýðilega, og rík
ástæða til að þakka öllum
þeim, sem þar lögðu hönd á
plóginn. Þótt enn hafi ekki
öll kurl komið grafar, er
ekki óvarlegt að ætla, að
styrktarfélagar á Vestfjörð-
um séu nú um 1300 talsins.
í sveitahreppum unnu odd-
vitar söfnunarstarfið, og er
þeim einnig þakkað af ein-
lægum huga.
Innheimta félagsgjalda.
Þetta er skrifað, stendur
yfir innheimta félagsgjalda.
Stundum er sagt, að ekki
megi gefa færi á litla fingri
sínum, því að þá verði öll
höndin hrifsuð. Kannski
sannaðist þetta hér. Sú leið
var valin, að fara þess enn á
leit við kvenfélagakonurnar,
að þær legðu fram sína dýr-
mætu hjálp. Voru þær
beðnar að skipuleggja inn-
heimtuna og annast hana. í
dreifbýli fá menn senda
gíró-seðla, og eru þeir beðn-
ir að víkjast vel við því. í
sambandi við félagsgjöldin
er rétt að geta þess, að
miklu varðar, að innheimta
þeirra takist vel fyrir ára-
mót, vegna þess að á árslok
eigum við í Styrktarfélagi
vangefinna á Vestfjörðum
að standa skil á fjárframlagi
til nýstofnaðra landssam-
taka styrktarfélaga vangef-
inna. Fjárframlag þetta
nemur kr. 100.00 á hvern
félaga, eða kr. 130.000.00.
En víkjum nú að
landssamtökunum.
Landssamtökin „Þroskahjálp".
Laugardaginn 16. októ-
ber 1976 var haldinn fundur
í Bjarkarási, Stjörnugróf 9,
Reykjavík. Var tilefni fund-
arins sú fyrirætlun að stofna
landssamtök þeirra félaga
sem vinna að málefnum
greindarskertra í landinu.
Fund þennan sóttu full-
trúar frá 14 félögum, sem öll
eiga það sameiginlegt að
vinna að málefnum greind-
arskertra. Þessi félög eru
eftirfarandi: Styrktarfélag
vangefinna í Reykjavík,
Styrktarfélag vangefinna á
Norðurlandi, Styrktarfélag
vangefinna á Austurlandi,
Styrktarfélag vangefinna á
Vestfjörðum, Foreldrafélag
þroskaheftra á Suðurlandi,
Foreldrafélag þroskaheftra í
Hafnarfirði og nágrenni,
Fordeldrasamtök barna með
sérþarfir, I'oreldrafélag
barna með sérþarfir á Akur-
eyri, Foreldra- og kennara-
félag öskjuhlíðarskóla, For-
eldra- og vinafélag Skála-
túns, Foreldra- og vinafélag
Kópavogshælis, Félag
þroskaþjálfara, Félag
þroskaþjálfanema og félag
sérkennara.
Úr lögum „Þroskahlálpar".
Á fundinum 16. október
1976 voru stofnuð Lands-
samtökin Þroskahjálp.
Helstu atriða úr lögum sam-
takanna skal hér getið:
Nafn samtakanna er Lands-
samtökin Þroskahjálp og er
lögheimili þeirra í Reykja-
vík.
Tilgangur samtakanna er
að berjast fyrir réttindum
og vinna að málefnum
þroskaheftra í landinu og
tryggja þeim fulla jafnréttis-
stöðu á við aðra þjóðfélags-
þegna. Því ber samtökunum
að koma fram sem leiðandi
aðili gagnvart stjórnvöldum
a) sem samstarfsaðili við
eðlilegu yfirstjórn ríkisvalds-
ins, sem með þessi mál ætti
þá að fara í heild og b) sem
baráttuaðili fyrir rétti hins
þroskahefta. Samtökin leit-
ast við að hafa mótandi
áhrif á allar aðgerðir, sem
ríkisvaldið hefur forystu um
með það mark að leiðarljósi,
að hinn þroskahefti njóti í
hvívetna sama réttar, sömu
aðstöðu og fólk almennt.
Aðilar að samtökunum
geta þau félög orðið, sem
vinna að tilgangi samtak-
anna.
Landsþing, sem jafnframt
eru aðalfundir samtakanna,
skulu háð annað hvort ár að
hausti til. Atkvæðisrétt þar
hafa kjörnir fulltrúar aðild-
arfélaganna. Fer fulltrúa-
fjöldi hvers aðildarfélags eft-
ir félagatölu, þannig að fyrir
allt að 200 félagsmenn komi
2 fulltrúar og síðan 1 full-
trúi fyrir hverja 200 félags-
menn eða brot úr 200.
Landsþing samtakanna
kýs í stjórn þeirra 7 menn og
3 til vara. Stjórnin kýs úr
sínum hópi varaformann og
þriðja mann og skulu þeir
ásamt formanni skipa fram-
kvæmdaráð.
Framkvæmdaráðið ann-
ast allan rekstur samtak-
anna í samræmi við lög þess
og ákvarðanir stjórnarinnar.
Þing samtakanna ákveður
árleg tillög aðildarfélaganna
og skulu þau miðast við
fjölda félaga.
Aðildarfélögin skulu fyrir
1. ágúst ár hvert senda
framkvæmdaráði skýrslu
um störf og fjárhag, ásamt
breytingum á félagatölu.
Bráðabirgðaákvæði: a)
Lög þessi skulu gilda til
fyrsta þings samtakanna, er
halda skal árið 1977, en þá
skulu þau lögð fram og skal
þá einfaldur meirihluti at-
kvæða nægja við afgreiðslu
þeirra. b) Kjörtímabil
þeirra, er kjörnir voru í
trúnaðarstörf á stofnþingi
1976, skal renna út allra í
senn á þingi 1977.
Meira um stofnfund
„Þroskahjálpar".
Þess skal getið hér, að
árlegt tillag aðildarfélag-
anna var ákveðið kr. 100.00
fyrir hvern félaga. Gildir
þessi upphæð fyrir árið
1976, og skal staðið skil á
henni fyrir árslok 1976.
Stjórn „Þroskahjálpar“,
sem situr til landsþings
1977, var kosin á stofnfund-
inum. Hana skipa: Gunnar
Þormar, Reykjavík, formað-
ur, Helga Finnsdóttir,
Reykjavík, Jón Sævar Alf-
onsson, Hafnarfirði, ritari,
Kristján Ingólfsson, Reyðar-
firði, Eggert Jóhannesson,
Selfossi, Einar Sigbjörnsson,
Akureyri og síra Gunnar
Björnsson, Bolungarvík.
Á fundinum ríkti bar-
áttuvilji og samstarfsandi.
Hann sótti fjöldi fulltrúa
hinna ýmsu aðildarfélaga.
Fyrstu spor „Þroskahjálpar.
Strax daginn eftir stofn-
fundinn, eða sunnudaginn
17. október 1976, kom ný-
kjörin stjórn „Þroskahjálp-
ar“ saman í Bjarkarási við
Stjörnugróf í Reykjavík.
Eggert Jóhannesson, Sel-
fossi, var kjörinn varafor-
maður, og til setu í fram-
kvæmdaráði ásamt for-
Framhald á 22. síðu.
i Noragl hafa vartð relstlr þjáHunarakólar fyrlr þroakahafta. Er
myndln frá elnum slfkum.