Vesturland - 24.12.1976, Síða 13
yEsm
13
bæjarins. Eitt sinn er menn
ræddu um félagið og starf
þess, sagði þessi ntaður, að
hann sæi í garðinum aðeins
eina plöntu, og þessi planta
væri helv. hann Jón. Löngu
seinna, ég ætla árum seinna
mætti sami maður Jóni
Jónssyni á förnum vegi
stöðvaði hann og fór að tala
við hann einkar hlýlega um
garðinn og að honum hefði
til skamms tima fundist lítið
til um þetta moldar verk
hans en til sönnunar því, að
skoðun sín hefði breyzt og
hann virti þessa viðleitni
félagsins, til jöess að fegra og
prýða umhverfi bæjarins af-
henti hann Jóni 50.00 kr. að
gjöf til garðsins, og var það
stór gjöf frá honum, því ekki
var auðæfunum af að taka.
Þannig vann félagið
smátt og smátt á öllum
byrjunarörðugleikum með
þrautsegju og elju.
Trjáplönturnar festu ræt-
ur og Slóm og grös ófu sinn
vermandi feld um allan
hinn ræktaða reit og voru
örvandi andstaða hins
hrjúfa og grýtta umhverfis,
enda fór nú að gæta sterkra
áhrifa frá þessum litla vísi
að blóma og trjárækt sem
virtist ætla að una sér vel
þrátt fyrir að sólargangur-
inn er stuttur hér og veðr-
áttan mislynd. Simson ljós-
myndari hóf nú hina mynd-
arlegu ræktun sína á sumar-
bústaðarlandi sínu í Tungu-
skógi, sem hann hefir hlotið
fyrir óskifta aðdáun og virð-
ingu óteljandi margra. Er-
um við ísfirðingar í óbætan-
legri þakkarskuld við þenn-
an útlending, sem tekið hef-
ur svo miklu ástfóstri við
íslenzk mold, og sem með
alveg sérstakri þolinmæði
og alúð hefir fegrað um-
hverfi okkar með marg-
breytilegum og litauðugum
jarðargróðri.
Nokkru síðar hófust einn-
ig handa svonefndir „pipar-
sveinar“ einnig á sumarbú-
staðalandi í Tunguskógi.
Bar öll þessi viðleitni hinn
glæsilegasta árangur og gæt-
ir nú í dag áhrifanna víða í
húsgörðum í bænum og
sumstaðar með ágætum, svo
sem í hinum litlu en sérlega
fögru görðum frú Þórdísar
Egilsdóttur og frú Juul.
Þetta eru fáir drættir úr
sögu Blóma og trjáræktar-
félagsins og einnig lítil
mynd af því hversu vel því
lánaðist að efla fyrir blóma
og trjárækt er orðið gæti
landi og lýð til gagns og
prýði.Er saga félagsins merki-
leg og meira virði en svo að
hún megi falla í gleymsku, og
er von til þess að hún verði á
aldarfjórðungsafmælinu
betur sögð og fyllra en hér
hefir til tekist.
Bestu óskir
um gleðileg jól
og farsælt
komandi ár.
Þökkum viðskiptin
á liðnu ári.
Brauðgerð Hjartar
Jónssonar Flateyri
Á þessum tímamótum
hyggst félagið að efla starf-
semi sína að miklum mun.
Hefir nú verið gerður skipu-
lagsuppdráttur af garðin-
um, sem nær yfir helmingi
stærra svæði en ennjrá er
orðið numið. Eru framtíðar-
draumar félagsins marg-
þættir og með fulltingi
góðra vina á að hrinda í
verk gróðursetningu og
ræktun alskyns blóma, trjá-
plantna og nytjajurta.
Gangstígur og stígir eiga að
liggja um garðinn og með-
fram þeirn eiga að rísa há og
bein fögur tré; og svo þar
úti frá fagrir runnar og
sælureitir, sem opna blóm-
ofinn faðm hverjum þreytt-
um vegfarenda og bjóða
hvíld og svölun við ilm feg-
urstu rósa. Ætti öllum
bæjarbúum að vera það
sameiginlegt áhugamál að
draumur félagsins yrðu að
veruleika því með því væri
bezt og öruggast búið að
þeirri menningu, sem við öll
viljum svo gjarnan að verði
sá arfur sem við látum son-
um okkar og dætrum eftir
— fegrun lífsins ytra og
innra.
í bók sinni Vatnajökull
talarNielsNielsen um plönt-
ur, sem lifa á jarðrennslis-
svæðum og eiga ekki sjö
dagana sæla, en spretta
jafnskjótt og jörð verður
auð. Um þær segir hann
þessi orð:
,,En undarlegt er það, að
engin blóm í veröldinni eru
eins falleg eins og þau, sem
gróa á ystu þrömum þess
svæðis, þar sem þau yfirleitt
geta þrifist. Allir fjallgöngu-
menn og allir heimskauts-
farar vita að svo er og hafa
glaðst yfir fegurð þeirra.
Þegar menn hafa ekki um
margar vikur samfleytt ann-
að fyrir attgttm en ís og snjó,
verða þeir innilega glaðir
þegar þeir svo allt í einu í
auðninni finna fegurstu
blóm í veröld'1.
Við þekkjunt þessa til-
finningu vel íslendingar,
því aldrei fögnum við eins
innilega, eins og þegar sum-
arið og sólin hafa rekið í
burtu myrkrið og kuldann,
og við sjáum grösin korna
undan klakanum.. með eld
lífsins, sem aftur skal dafna.
En við þekkjunt hinsvegar
ekki vel það sem eflaust er
sameiginlegt hjá fjallgöngu-
mönnum samhygðina og
viljann til þess ,,ef við sjáum
sólskinsblett í heiði, að setj-
ast allir og gleðja oss“.
Danska skáldið Jeppe
Aakjær óskar þess í einu
kvæði sínu að upp úr hverju
spori sáðmannsins spretti
gróður svo að hvergi sjáist
gróðurvana blettur.
Eigum við fsfirðingar
ekki líka að óska þess á
tímamótum þessa menning-
arfélags, að svo vel takist til
nteð sáningu samhyggðar
fræsins, að ekki einn einasti
bæjarbúi verði kærulaus fyr-
ir vexti og viðgangi blóma-
garðsins, heldur sí og æ
reiðubúinn til þess að veita
málefnunt hans fulltingi.
Eigum við ekki að gera það
að metnaðarmáli okkar að
gera blóma og trjágarðinn
svo vel úr garði, að hann í
nútíð og framtíð verði tal-
andi og óhrekjanlegt tákn
þess, að i þessum bæ búi
menntað fólk sem elskar feg-
urð og göfgi lífsins, og færir
til þess dýrar fórnir, að í
umhverfi þess endurspeglist
þess innri maður.
G. Sveinss.
Óskum starfsfólki
og viðskiptavinum
gleðilegra jóla
og farsældar
á komandi ári.
Þökkum samstarfið
á líðandi ári.
Bátaiðjan hf.
Patreksfiríi
GLEDILEG JÓL! FARSÆLT iÍTT ÁR!
Þökkum viðskiptin á líðandi ári.
Reiknistofa Vestfjarða hl.
Árnagötu ísafirði, sími 3854
Hafið þið séð nýju Oster hrærivélina?
Fylgihlutir: Hakkavél og mixari.
Verðið er mjög hagstætt
/////
straumur
Silfurgötu 5 sími 3321