Vesturland - 24.12.1976, Qupperneq 15
PSVMBB
Arfur íslands
Meðan geystist fannafaldur
flestra vonir gerði grenna,
hungri seldur, krankur, kaldur
karlinn stýrði fjaðrapenna.
Margur hefur Skáldu skrifað
skreyttu letri í mánaskini,
þó alltaf hafi í örbyrgð lifað,
einn og hvergi fundið vini.
Þannig voru á þúsund árum
þúsund bækur þúsund sinnum
gerðar hér með gleði og tárum,
glögg þess merki ennþá finnum.
Skáldað var um kónga og konur
kveðnar rimur langar vökur,
Ennþá reynir fslandssonur
andansmennt og semur stökur.
Meðan sólin signir landið,
sveimar máninn yfir Fróni,
Ægir fléttar öldubandið,
eldur gýs og veldur tjóni.
Þjóðin heldur þessum háttum,
þreytir gamla fræðataflið,
meitlar stef úr mannlífsþáttum,
metur dýrast andans aílið.
Því skal ungum vísa veginn
varðaðan af ættarbrotum,
þrekið enn er þeirra megin,
þar mun aflið koma að notum.
Lestu bækur, ljóð og sögur,
lærðu allt sem hugur girnist,
minning lifir mörg og fögur,
en meiður ættar síðast fyrnist.
Guðmundur Guðni Guðmundsson.
15
llú mú 5leppa hanum lausum út í frumskúg umfertfarinnar.
Nú sleppum við Allegro lausum - kraftmiklu ”dýri" af þeirri tegund, sem fer lipurlega
um frumskóg umferðarinnar.
Með þjálu framhjóladrifi smýgur hann i beygjurnar og hefur gott tak á veginum, jafn-
vel á hálum vetrarbrautum. Undir vélarhlífinni leynist kraftmikil þverliggjandi vél. Auk
þess er fimm stiga gírkassi (1500-gerðin) og fádæma góö vökvafjöörun,
Hydragas, sem tryggir aö "dýriö” þitt er ávallt tryggilega meö öll hjólin
á veginum. Sérstaklega styrktir diskahemlar á framhjól-
um veita þér einnig aukiö öryggi og tryggingu; þú
snarhemlað ef nauðsyn krefur. Og i þessum nýja
Combi er farangursrými, sem gæti rúmað
1320 lítra af vatni.
En þaö sem kannski vekur hvað mesta
athygli viö Allegro er hve
neyzlugrannt ”dýr” hann er.
Hann eyðir litlu benzíni, hóf-
legt verö er á varahlutum.
Þaö er ótrúlega ódýrt aö
eignast þetta "hlaupadýr”.
m
P. STEFANSSON HF. ^
HVERFISGOTU 103 REYKJAVIK SIMI 26911 POSTHOLF 5092
lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
☆
öskum öllum Vestfirðingum
gleðilegra jóla
og gæfuríks komandi árs
með þökk fyrir viðskiptin
á liðna árinu.
Aðalstræti 6 — Reykjavík
Sími: 26466 — P.O. Box 1412.
Fékkst þú þér