Vesturland - 24.12.1976, Blaðsíða 17
17
tíðir. Og svo finnast hér
hinir algengustu sjúkdómar,
sem við þekkjum að
heiman.
Kristniboðið:
Norskir hvítasunnuvinir
hafa haft hér kristniboð í 60
ár. Mörg önnur trúarfélög
hafa einnig starf hér. Það
var í gegnum draum, sem
Sobhuza konungur 1.
dreymdi fyrir u.þb. 100
árum að kristniboðar
voru beðnir um að koma til
landsins. Dreymdi konung
að hann sá hvítan mann,
stóra bók og pening. Rödd
sagði við hann, að hann
skildi velja bókina en ekki
peninginn, því bókin myndi
gefa blessun yfir land og
þjóð. Seinna skildi hannað
bókin var Biblían og heyrði
að hvítir kristniboðar væru
komnir til S-Afríku. Gerði
hann boð eftir einum þeirra
til að segja sér frá innihaldi
bókarinnar, og var það
metodisti sem fyrstur kom
sem krstniboði til
Swazilands. Síðan eru
allir kristniboðar undir
verndarvæng konungs.
Fyrsti norski kristniboðinn
var kona, sem hét Malla
Mo. Hún kom þangað um
1890 frá Skandinavisk
Alliansemisjon. Árið 1909
kom svo Laura Strand
þangað frá sömu hreyfingu,
en eftir að hún upplifði
skírn Heilags anda gekk
hún inn í
hvítasunnuhreyfmguna
norsku. Starfaði hún í
Swazilandi í 60 ár. Við
höfum þar nú 5 aðalstöðvar
og margar útstöðvar. Eru
Nokkur Swazi börn f „kraalen" hjá sér Eru þau ekki sæt? Þau
hafa þarna fengið hvfta dúkku.
r
r
„Ég og lítill Swazi strákur'*. Hann fær munnleg
Ivfiatökuna.
hér nú 15 kristniboðar og 4
eru ,,heima“ í leyfi.
Stöðvarnar eru New Haven,
með barna- og
gagnfræðaskóla og
sjúkraskýli. Ebenezer, sem
líka hefir barna- og
gagnfræðaskóla. Bethany,
með barnaskóla og hluta
gagnfræðaskóla (er verið að
bæta við) og sjúkraskýli. Á
Mankaiana og
Ekupumuleni er mest drifið
andlegt starf. Alls eru 13
skólar með 3000 nemendur
og 100 kennurum. Yfir árið
eru um 35.00 manns, sem
fá meðhöndlun á
sjúkraskýlunum. Á öllum
stöðvunum að
útstöðvunum meðtöldum er
andleg starfsemi rekin með
guðsþjónustum í kirkjunum,
sunnudagaskólum og
samkomum í skólanum. Þá
er farið í heimsóknir út í
kofana (kraalana) og barina
(öl kraalana). Flestar
útstöðvarnar hafa skóla að
einhverju leiti fyrir yngstu
bekkina.
Hve margir hinir trúuðu
eru veit ég ekki, en þeir
skifta þúsundum. Það er
alltaf nóg að gera og
reynum við eftir bestu getu
að útbreiða fagnaðarerindið
meðal fólksins. Sjálf höfum
við fengið að reyna að
upplifa hvað það er, og
vitum að það er einasta
vonin, sem heimurinn hefur
í dag. Enginn og ekkert
getur komið í staðinn fyrir
Jesúm og það verk, sem
hann vann á krossinum
þegar hann tók á sig syndir
allra þeirra, sem við honum
vilja taka. „Því svo elskaði
Guð heiminn, að hann gaf
son sinn eingetinn, til þess
að hver, sem á hann trúir,
glatist ekki heldur hafi eilíft
líf‘ Jóh. 3:16 og „Öllum
þeim, sem tóku við honum,
gaf hann rétt til að verða
Guðs börn: Þeim sem trúa á
nafn hans“ Jóh. 1:12. Oft
höfum við fengið að sjá fólk
frelsast og gerbreytast, koma
frá myrkrinu yfir til Ijóssins.
Kirkjur og sjúkraskýli hafa
því verið byggð í gegnum
árin. Ný stór kirkja var
nýlega vígð í New Haven og
erum við einnig að leggja
síðustu hönd að nýrri kirkju
á einum útstöðvunum frá
Bethany. Mun hún einnig
þjóna sem sjúkraskýli og
mun ég starfa þar.
Vegalengdir eru hér mjög
miklar, og vegirnir verri en
heima. Ef rignir verður allt
ein leðja svo varla er
vogandi út á vegina.
Þetta var þá það helsta,
sem ég hefi að segja um
land og fólk hér í
Swazilandi að þessu sinni.
Ef ykkur langar til að heyra
meira frá starfinu (og mér)
mun ég með gleði skrifa
ykkur síðar. Ég er mjög
þakklát öllum, sem standa á
bak við mig, með
fyrirbænum og stuðningi
allskonar. Guð blessi það og
launi.
Vil ég svo óska ykkur
öllum gleðilegra jóla í Jesú
nafni, og blessunarríks
komandi árs. Með bestu
kveðju. Anna Höskuldsdóttir.
Fyrir utan heilsugæslustöðina hér. Sjúklingarnir bfða.
Spnrisjóður Súgfirðingo
SUÐUREYRI
Gleðileg jól!
Gott og íarsælt komandi ár!
Þökkum samstarfið á líðandi ári.
niu
straumur hf
öskar öllum viðskiptavinum sínum
og starfsfólki gleðilegra jóla og farsæls
komandi árs, og þakkar viðskiptin
á líðandi ári.