Uppeldi og menntun - 01.01.2007, Page 28
28
an, einelti, ofbeldi, varnir gegn sjálfsvígum og notkun vímuefna. Lögð skal áhersla á
að nemendur temji sér jákvætt viðhorf, ábyrgð, umhyggju, heilbrigt líferni, gagnrýna
hugsun, sjálfsvirðingu og virðingu gagnvart öðrum. Mikilvægt er að nemendur geti
sett sig í spor annarra og hafi öðlast kjark til að velja og hafna“ (bls. 10). Það er mik-
ilvægt að öllum nemendum skóla líði vel og finnist þeir tilheyra skólasamfélaginu.
Saga þessara einstaklinga sýnir að nauðsynlegt er að hver framhaldsskóli móti stefnu
sem felur í sér heildstæða forvarnar- og viðbragðsáætlun í anda þess sem gert hefur
verið í grunnskólum og á mörgum vinnustöðum.
Rannsókn þessi nær til fárra þátttakenda og í því felast nokkrar takmarkanir. Þar
sem fram kom, þegar við leituðum til námsráðgjafa í framhaldsskólunum, að fá ein-
eltismál koma inn á borð þeirra er líklegt að þeir sem tóku þátt í þessari rannsókn
hafi lent í mjög alvarlegu einelti. Af lýsingunum að dæma var framganga gerenda oft
grimmileg og vonum við að ekki finnist miklu alvarlegri tilfelli en hér hefur verið lýst.
Viðtölin veita góða innsýn í reynslu og viðbrögð ungs fólks sem hefur lent í alvarlegu
einelti og varpa ljósi á þann félagslega veruleika sem ríkir í framhaldsskólunum.
Rannsóknin hefur fræðilegt og hagnýtt gildi því hún staðfestir að einelti fyrirfinnst
í framhaldsskólum líkt og í grunnskólum og á vinnustöðum og sýnir glögglega að
það tekur á sig nýjar myndir þegar nemendur eldast. Auk þess kemur í ljós að afleið-
ingar eineltis eru mjög alvarlegar og þær sömu og fram hafa komið hjá yngra og eldra
fólki sem lendir í einelti. Þar sem megináherslan var lögð á að kanna birtingarmyndir
eineltis leggur rannsóknin mikilvægan grunn að frekari könnun á umfangi og tíðni
eineltis í framhaldsskólunum. Það er von okkar að niðurstöður þessarar rannsóknar
verði hvatning til frekari rannsókna á einelti í framhaldsskólum og hvetji skólana til
að gera heild stæða áætlun um forvarnar- og meðferðarúrræði gegn einelti og óæski-
legri hegðun í framhaldsskólum. Ekki síst vonumst við til að rannsóknin verði til þess
að einelti í framhaldsskólum verði rætt. Í máli flestra þátttakenda kom fram ósk um
að svo verði gert og tökum við undir það, því rétt eins og þau trúum við að ,,Hægist
mein þá um er rætt.“
HEIMILDIR
Aðalnámskrá framhaldsskóla. Almennur hluti (2004). Reykjavík: Menntamálaráðuneytið.
Anna Margrét Sigurðardóttir (2005). Einelti og Netið. Sótt 3. febrúar 2006 frá: http://
www.saft.is/greinar/
Arnar Þorsteinsson (2003). „Ég man þegar ég hætti í skólanum; það var yndislegt!“ Félags-
leg einangrun unglinga. Óbirt MA-ritgerð: Háskóli Íslands, Félagsvísindadeild.
Álfgeir Logi Kristjánsson, Silja Björk Baldursdóttir; Inga Dóra Sigfúsdóttir og Jón Sig-
fússon (2005). Ungt fólk 2004. Menntun, menning, tómstundir, íþróttaiðkun og framtíð-
arsýn íslenskra ungmenna: Rannsóknir meðal nemenda í framhaldsskólum á Íslandi 2004
og 2000. Reykjavík: Rannsóknir og greining.
Björkquist, K., Österman, K. og Hjelt-Bäck, M. (1994a). Aggresion among university
employees. Aggressive Behavior, 20, 173–184.
,,HÆGIST MEIN ÞÁ UM ER RÆTT“