Bjarmi - 01.04.2003, Blaðsíða 15
Pétur er afar liótækur vió heimilisstörfin.
hvaða texcar eru kenndir hverjum o.s.frv.
Þeir ramma inn markmiðin en scarfsmenn-
irnir á hverjum stað ráða svo hvaða hluti
þeir nota í innihaldió, svo framarlega sem
þeir eru innan rammans."
Djákni þar og hér
Eftir 5 ára stúderingar og störf í þessum
fræðum vígist Pétur Björgvin svo til djákna.
í kjölfarió fer hann í fullt starf á skrifstofu
sem hafði yfirumsjón með æskulýðsstarfi
20 safnaða en áður hafói hann gegnt hluta-
starfi þar með námi. Pétur sinnti þessu
starfi í fjögur ár en fór jafnframt í fram-
haldsnám og sérhæfði sig í sálgæslu ung-
linga. Að prófi loknu starfaði hann í eitt ár
til vióbótar á skrifstofunni áður en leiðin lá
í fjögurra turna kirkjuna við Háteigsveginn í
Reykjavík.
En hvað skyldi svo reyndur æskulýðs-
frömuður, sem Pétur Björgvin óneitanlega
er, vera að gera í Háteigskirkju?
„Eg er ráðinn hingað sem fræðslufulltrúi
til þess að byggja upp safnaðarstarf bæði
fýrir eldri borgara og unga fólkið. En einnig
til að sinna ýmsum praktískum málum þess
á milli s.s. ráðningu starfsfólks og skreyta
jólatréð," segir Pétur og hlær, án þess þó að
tapa trúverðugleikanum. Pétur er þó ekki
einn í öllu þessu starfi, „Við erum með æsku-
lýðsfulltrúa og einn starfsmann sem sér um
eldriborgarastarfið. Ég á aó hafa yfirumsjón
með hlutunum og hafa puttana í öllu. Ég á
að vinna faglegu vinnuna í bakgrunninum og
vera með í fermingarfræóslunni. Svo sé ég
um fjárhagsáætlun fyrir ákveðna starfsþætti
en ekki sóknina í heild sinni."
Og hvernig gengur svo safnaðarstarfið?
„Við erum á ágætri uppleið á flestum svið-
um en kannski erum við á niðurleið t.d.
meó foreldramorgnana. En í öllu safnaðar-
starfi eru bylgjur og síðasta ár var svolítið
erfitt vegna þess aó við höfðum minni
rauntekjur sem munaði miklu fýrirokkurog
því þurftum við að skera niður.“ Þegar
spurt er um sóknarmörk Háteigssafnaðar,
sem þykja nokkuð ankannaleg, segir Pétur:
„Það er vissulega styttra fyrir suma í Há-
teigssókn að fara í Grensáskirkju en sína
eigin kirkju. Svo er styttra fýrir suma í
Lauganessókn að koma til okkar. Þá má
benda á það að sóknarmörkin eru ólík
skólamörkunum, ólík mörkum félagsþjón-
ustunnar og ólík mörkum íþróttafélag-
anna. Þetta ruglar sjálfan mig í ríminu og
hvað þá aðra í sókninni.“ Við þetta bætir
Pétur svo að safnaðarstarfið sé óháð öllum
landamerkjum og línum. Það fólk sem sæki
kirkjuna sé söfnuóurinn, óháð búsetu. „Ég
spyr fólk sem kemur í kirkjuna ekki um bú-
setu. Hingaó eru allir velkomnir. Við getum
ekki horft á sóknarmörkin eingöngu.“
Hvað meó framtíóina?
Nú vita þeir sem til Péturs Björgvins þekkja
aó hann er með eindæmum skipulagður
maóur og vill vinna eftir langtíma áætlun-
um. Hvar skyldi hann verða eftir annars veg-
ar þrjú ár og hins vegar eftir tíu ár? Eftir
nokkra þögn segir Pétur: „Ef ég fæ leyfi hjá
konunni þá sé ég sjálfan mig kominn til
Þýskalands eftir þrjú ár að vinna að ein-
hverju stóru verkefni á sviði æskulýðsmála.
Mig langar að skipuleggja stóra viðburði
innan kirkjunnar, eins og kirkjudaga þar
sem mæta yfir hundraó þúsund manns. Ég
vann eitt sinn við slíka kirkjudaga en þeir
standa í fimm daga en undirbúningurinn
tekurtvöár. Eftirtíu árlangarmig til að vera
orðinn afgreiðslumaður í búð einhvers stað-
ar. Það ár yrði einskonar „sabbat-ár“. í
þýsku kirkjunni getur maður nefnilega hald-
ið sínu starfi, fengið eins árs frí og farió að
vinna við færiband í verksmiðju á sömu
launum og hjá kirkjunni. Þetta kemur í veg
fýrir að maður týnist inni í þessum „kata-
kombum“ sem kirkjan geturverið.“
Svo er bara aó bíða og sjá. Hvað verður
um þennan atorkusama unga mann, hvers
hjarta slær fýrir æsku þessa lands og Þýska-
lands? Verður hann kannski farinn til ann-
arrar heimsálfu eftir eitt ár? Vegir Guðs eru
órannsakanlegir.
um.L
VÍðclL- -
nverold
Mel Gibson vinnur aó
Jesú-mynd
Kaþólski kvikmynda-
leikarinn og stjórn-
andinn Mel Gibson
(Braveheart, Mad
Max og Lethal Wea-
pon) vinnur nú að
gerð og upptöku myndar um píslar-
göngu Jesú, The Passion, sem ætlun-
in er að komi til sýninga um páskana
á næsta ári. Miklu er til kostað og
stefnt að því aó myndin sé eins ná-
lægt raunveruleikanum og unnt er.
Upptökurá krossfestingunni tóku 15
daga og er að sögn ekki dregið úr að
sýna þá þjáningu og það ofbeldi sem
hún hafði í för með sér. Aðalupp-
tökustaðirnir eru á Italíu. Gibson hélt
því fram fýrir nokkru að hann mætti
mótlæti vegna þess að hann ynni að
gerð myndarinnar. Fjölmiðlafólk hef-
ur tekið upp á því að grafa í einkalíf
hans. Bankareikningar, góðgerðafé-
lög sem hann styrkir, vinir, viðskipta-
tengsl og fjölskyldumeólimir eru
meðal þess sem hefur verið kannað
af rannsóknarbiaóamönnum. „En ég
er stór strákur og get vel séð um sjálf-
an mig en það er engin ástæóa til að
herja á 85 ára gamlan föður minn,"
varð honum aó orði. Hann sagðist
þó hafa fýrirgefið blaðamanninum
og þeim sem aó baki honum séu.
„Þetta er kvikmynd um kærleika, trú,
von og fýrirgefningu," sagði Gibson.
„Hann dó vegna alls mannkyns.
Hann (Jesús) þjáðist vegna okkar
allra. Tími er kominn til að snúa sér
að grundvallarboðskapnum. Heim-
urinn er í vanda. Við höfum öll þörf
fýrir meiri kærleika, trú, von og fýrir-
gefningu."
(www. worldnetdaily. com/www. time. com
27/1 '03, Credo nr. 2, 2003)
15