Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.06.2003, Side 14

Bjarmi - 01.06.2003, Side 14
Fréttir Metþátttaka sjálfboðaliða í herferð Billy Graham Tölur yfir sjálfboðaliða fyrir boðunarferð Billy Graham í San Diego hafa slegið öll met. Yfir 20.000 manns sóttu und- irbúningsnámskeið á San Diego-svæöinu og það er aðeins í fjórða sinn sem slíkar tölur hafa sést í sögu boðunarherferöa Grahams. Það var gert ráð fyrir um 10.000 manns á námskeiðiö, „Kristiö líf og vitnisburður", til undirbúnings herferðarinnar nú í maí sl. „Skráningar á þessi námskeið eru i raun eins og loftvog sem mælir andrúmsloftiö í samfélaginu," sagöi Jim Garlow forstöðumaöur Skyline Wesleyan kirkjunnar í La Mesa. Þessar tölur segja okkur aö San Diego búar séu spenntir fyrir því að hlusta á Billy Graham. Þau sem vilja þjóna sem ráðgjafar á samkomum og meðan á herferðum stendur veröa að sækja þessi nám- skeið. Önnur herferö var áætluð í Oklahoma borg 12.-15 júní. (RNS) Tyrknesk mótmælendakirkja fær opinbera viðurkenningu Þrem árum eftir að tyrkneskur mótmælendasöfn- uður í Tyrklandi fór að halda guðsþjónustur, felldi saksóknari niður yfirvofandi ákæru gegn þeim um saknæmt athæfi. Á síöasta ári sakaöi ríkisstjórinn mótmælendakirkjuna í Selcuk um aö halda sam- komur án opinberra leyfa, og að standa að trúar- legri menntun án leyfis frá tyrkneska mennta- málaráðuneytinu. Auk þess var presturinn, Kamil Musaogullari, ásamt söfnuöi sínum, ákærður fyrir að nota húsnæöi sitt fyrir samkomuhald og skólastarf án opinbers leyfis frá bæjaryfirvöldum. En í desember sagði saksóknari Musaogullari aö hann hefði fellt niður kærurnar gegn honum þar sem ásakanir um ólöglegar guðsþjónustur og trú- arlega menntun ættu sér í raun engan stað í tyrkneskum lögum. „Þetta segir mér að þaö séu þá einhverjir sem haldi uppi lögum og reglu í þessu landi," sagði Musaogullari fagnandi. „Ég trúi því að Guö muni blessa fólkiö í Seleuk með þessari málsmeðferð saksóknarans." (Compass) líka fyrir karlmenn. Slíkt mót veröur núna í lokjúní í Bretlandi. Er eitthvað um að konurséu í fullu starfi fyrlrAglow? Já, það er eitthvað um það, en þó ekki mjög mikið. Flestir for- menn landsstjórna eru reyndar í fullu starfi, nema á Noröurlönd- Ég hef kynnst fólki víðs vegar að úr heiminum, heyrt vitnistburð þess og hvað það hefur þurft að ganga í gegnum og fdrna fyrir trú sína. Þetta er fólk sem er tilbúið að leggja á sig ótrúlegustu hluti til að aðrir fái að heyra fagn- aðarerindið um Jesú Krist. um. Af okkur fimm sem erum í Evrópustjórninni, er ég sú eina sem ekki er það. Sums staðar eru konur i fullu starfi hjá Aglow en þiggja ekki full laun. Hér á íslandi er starfið ennþá ekki þaö viðamik- ið að við höfum viljað nýta þær litlu tekjur sem við höfum áfram- haldandi út í starfiö. Við höfum ekki miklar tekjur, en mér finnst samt stórkostlegt að viö höfum alltaf haft pening fyrir því sem við höfum þurft að gera. Viö höfum líka haft þá reglu að við borgum ekki bara tíund, heldur viljum við líka blessa út frá okkur. Við höfum gert þaö á mismunandi hátt, en eitt af því sem við gerum alltaf, er að viö borgum til Lindarinnar. Ég tel það eina ástæðu þess aö við eigum alltaf pening þegar viö þurfum aö gera eitthvað, Guð mætir þörfum okkar. Við erum náttúrulega konur og förum vel með eins og hagsýnar húsmæður geta gert. Ég vil líka segja að vöxtur minn í trúnni hefur fyrst og fremst komið í gegnum þjónustu við Guö. Þú getur ekki veriö í kristinni þjónustu nema að þú sért háð Guði, því Guð kallar þig yfir- leitt ekki í þjónustu nema til þess sem þú getur ekki gert í eigin mætti. Þannig verður maður háð- ur Guði og verður að leita meira í orð Guðs og þá vex maöur í trún- ni. Þetta er viss fórn, en maður fær það margfalt til baka. Ég finn að það er mikil þrá í hjarta mínu eftir Guði, þannig að þaö er mér létt að eyða tíma meö honum enda það sem nærir mig. Nú var ganga mín inn í leiðtogastöðu í Aglow mjög hröð. Ég sá að þessar konurvoru miklu reyndari en ég og miklu þroskaðri í trúnni, og mér fannst ég vera afskaplega lít- ilfjörleg á meðal þeirra. Ég sá það mjög fljótt að ég varð aö vera háð Guöi og ég hef bara treyst honum og vaxið i gegnum það. Ég held fast í orðin i Filippíbréfinu 4:13: „Allt megna ég fyrir hjálp hans, sem mig styrkan gjörir.". Ég er í ís- lensku Kristskirkjunni og hluta af mínum vexti hefi ég fengið i þjón- ustu þar. Ég var í samfélagsráöi UFMH og síðan i safnaðarráði kirkjunnar fyrstu þrjú árin. Það var mjög dýrmæt reynsla að vera í safnaðarráðinu, en líka tímafrekt. Eftir aö ég var beðin um að koma inn í Evrópustjórnina í Aglow hætti ég þar enda í fullri vinnu. Ég fann að Guð var að leiöa mig til þessara verka og mér finnst mjög mikilvægt aö hlýða þegar maöur finnur að Guð er aö leiða mann. Guð veit alltaf miklu betur en við, því hann hefur heildarmyndina. Það er komiö að lokum sam- tals okkar Eddu. í gegnum starf Aglow hefur hún fengið að kynn- ast konum frá löndum, þar sem fólk þarf oft að fórna miklu fyrir trú sína á Krist. Mér finnst viö hæfi að Ijúka samtali minu við Eddu með þessum orðum hennar: „Kristindómurinn er okkur svo auðveldur hér á íslandi, við þurf- um svo litið aö leggja á okkur fyr- ir trúna. Ég hef kynnst fólki víðs vegar að úr heiminum, heyrt vitnistburö þess og hvað það hef- ur þurft aö ganga í gegnum og fórna fyrir trú sína. Þetta er fólk sem er tilbúiö að leggja á sig ótrúlegustu hluti til að aðrir fái að heyra fagnaðarerindið um Jesú Krist. I rauninni er allt auövelt fyrir mig hér á Islandi þegar Guð kallar. Trúin kostar yfirleitt lítiö og kannski verður trú okkar ekki eins djúp og hinna sem þjást vegna hennar. Þetta allt fær mig til að að spyrja mig: Edda, hvað ert þú tilbúin til að gera fyrir Krist? Þeg- ar upp er staöið er þetta spurning sem viö þurfum öll að standa frammi fyrir." | 14

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.