Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.10.2003, Blaðsíða 4

Bjarmi - 01.10.2003, Blaðsíða 4
Kristín Bjarnaddttir Kristniboðslæknir sem sífellt er að í ár eru 50 ár liðin frá því fyrstu íslensku kristniboðarnir héldu til starfa í Eþíópíu. Einn þeirra sem lengi hafa starfað í landinu og farið hafa þangað aftur og aftur til starfa er Jóhannes Olafsson kristniboðslæknir. Hann er bú- settur í Noregi og trúlega mun Það voru mjög órólegir tímar í Kína og ég man eftir kristniboða sem bjó á okkar stöð sem hét Knut Samset. Hann var á ferð með handrit af sálmabókinni og var tekinn höndum og dó í höndum ræningjanna. Pabbi var um tíma á ferðinni til að ná sam- bandi við þessa ræningja til að reyna að fá hann leystan. þekktari meðal stjórnvalda og fólksins í Suöur-Eþíópíu en á Is- landi enda hefur hann lagt landi og þjóð þar suðurfrá ómælt lið og átt mikinn þátt í að byggja upp heilsugæsluþjónustuna í suö- urhluta landsins. Hér birtist viðtal við Jóhannes sem er uppalinn í Kína og á Islandi, en hefur starf- aö mest í Eþíópíu og Noregi. Hann er sonur hjónanna Olafs Ólafssonar kristniboða og Her- borgar Eldevik Ólafsson. Jóhannes er elstur systkina sinna, á þrjár systur og bróðurinn Harald, sem einnig er kristniboöi. Jóhannes er fæddur í Noregi og fór til Kína með foreldrum sinum þegar hann var á öðru ári. Þar bjó hann til tíu ára aldurs og kom heim til íslands vorið 1938 þegar Japansstriðið stóð yfir en þá börðust Kínverjar og Japanir. Til stóð aö fjölskyldan færi aftur til Kína, svo í fyrstu kenndi móðir hans honum og Guðrúnu systur hans, en þegar heimsstyrjöldin skall á og Ijóst var að þau færu ekki aftur til Kína byrjuðu þau í íslenskum skóla. Jó- hannes talaði ekki íslensku fyrr en hann kom til íslands. Hvernig voru œskuárþin í Kina? Eg byrjaði í skóla í Kína. Eg man ekki eftir fyrsta skóladegin- um en um sumarið vorum við á öðrum stað vegna óróleika í land- inu. Ég ferðaöist meö lest til La- ohokó, þar sem norski skólinn var og man óljóst eftir þeirri ferð. Ég man vel skólalífið í Laohokó og ferðirnar heim. Ég man líka vel eftir kristniboösstöðinni sem viö 4

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.