Bjarmi - 01.12.2003, Qupperneq 5
líf almennings haföi hvílt á. Or-
sakir þess að húslestrar hurfu eru
án efa ýmsar. Útvarpið átti sinn
þátt í því. Einnig svokallaöur ald-
arandi. Hvaöan hann kemurveit
enginn. En áhrif hans eru áþreif-
anleg. Eins var með sjóferöabæn-
irnar, hvort sem tækninni er bein-
línis um að kenna, þá fór þaö
saman aö sjóferöabænirnar hurfu
meö árabátunum. Aö minnsta
kosti meö því formi aö formaður
lét skipshöfn taka ofan og fara
meö sjóferðabæn um leið og
komiö var á flot. Ég efa ekki aö
margur hafi beöiö fyrir sér og
sinni skipshöfn og geri jafnvel
enn, alveg eins og þaö er engan
veginn úr sögunni aö fólk geri
bæn sína með sjálfu sér kvölds og
morgna. En ég býst við aö sam-
eiginlegar stundir með lestri Guös
orðs og bænastundir séu núorðið
fremur fátíöar. Enda er nú svo
komið að heimilin eru svo mjög
undirlögð af áreitni utan frá. Þá á
ég fyrst og fremst viö sjónvarpið.
Heimilin eru mjög svo umsetin.
Yfirleitt viröist vera sem samfé-
lagiö mótist af því viðhorfi aö allir
þurfi á endalausri afþreyingu að
halda. Mest af því efni sem í boði
er í fjölmiðlunum er afþreyingar-
og skemmtiefni. Þaö virðist vera
að þaö hafi mikinn forgang hjá
fólki aö nota sér þau tilboð sem
þaö verður umkringt af, bæöi af
opinberri hálfu og af fjölmiðlum
svonefndum.
Þetta er náttúrulega töluvert
vandamál og afar víötækt mál,
fólk flest finnur fýrir þessu. Þetta
er töluvert rætt af fólki víöa úti
um heim. Þaö er engin lífsnauðsyn
fyrir fólk að hafa ævinlega allar
gáttir opnar fyrir hverju sem er og
unna sér aldrei hvíldar frá áreitni
umhverfisins. Það er engin nauö-
syn, það er miklu frekar lífsháski.
Jólaundirbúningurinn og jólahald-
iö hefur einnig breyst og einkenn-
ast œ meira af söiumennsku og
efnishyggju. Er einhver leiö til aö
gefa þeim nýtt eða sitt rétta inni-
hald á ný?
Það er svo en það tjóar ekki aö
fjasa um þessa hluti. Hvað er unnt
að gera þrátt fyrir þetta? Það
veröur hver og einn að eiga við
sjálfan sig. Okkur er allt of tamt
að láta þrælka okkur. Við gerum
okkur ómyndug með því að apa
þann lífsstíl sem mest ber á í
kringum okkur.
Vitaskuld er í þessu öllu spilaö
á heilbrigðar tilfinningar þegar
verið er að benda á og auglýsa
jólagjafir. Einn af leyndardómum
kristinnar trúar er sá að vilja
gleðja, að vilja hjálpa öðrum.
Þetta er undirrótin að jólagjöfun-
um. Þær eru að uppruna til ein-
hvers konar viðurkenning á því að
mannkynið þáði ómetanlega gjöf
þar sem Jesús var. Hann er gjöf
jólanna. En svo hafa menn farið
að leika á þessa strengi með gíf-
urlegu offorsi í gróðaskyni. Ég er
ekki að ásaka einn eða neinn. En
það er eins og ég sagði: Við erum
Við erum ekki nauðbeygð til þess að
líita hvaða valdi sem er og dansa
eftir hverjum pípublæstri.
ekki nauðbeygð til þess að lúta
hvaða valdi sem er og dansa eftir
hverjum pípublæstri.
5