Bjarmi - 01.12.2003, Síða 10
Við erum nú komin að fjórða
boðorðinu í umfjöllun okkar í
Bjarma um boðorðin tíu. Jesús
lagði áherslu á mikilvægi þess að
elska Guð og náungann, sbr.
Matt. 22:37-40. Um það snúast
boöorðin. Kærleikurinn er tak-
mark þeirra og öll beinast þau
að því að verja það sem er rétt
og vernda lífið. Þau þrjú fyrstu
fjalla beint um elskuna til Guðs
en hin, sem á eftir koma, um
kærleika gagnvart öðru fólki.
Fyrst heima!
Þaö er engin tilviljun að fyrst
þeirra er boöorðið um að heiðra
foreldra sína. Hvergi er erfiðara að
sýna rétta framkomu en einmitt
heima. Þar reynir sannarlega á
hver við erum og hvernig við
reynumst i umgengni og sam-
skiptum. Boðorðið um að heiöra
foreldrana er jákvæð hvatning til
að sýna tilhlýðilega virðingu.
Marteinn Lúther talar um að
innprenta þeim ungu að þau sjái
foreldra sína í Guðs stað - því
þótt þeir séu lítilfjörlegir, fátækir,
veikir og undarlegir - þá séu þeir
samt gefnir okkur af Guöi.
Góðir foreldrar eru mikil Guðs
gjöf - en jafnvel gallaðir foreldrar
eru líka gjöf Guðs. Unglingar eru
oft uppteknir af sérkennum for-
eldra sinna og jafnvel skammast
sín fyrir þá í viðkvæmni sinni. Það
ættum við þó ekki að gera.
Öll eigum við foreldrum okkar
mest að þakka - lífið sjálft.
Vissulega er okkur of tamt að líta
á lífið og gjafir þess sem sjálf-
sagða hluti en allt eru það gjafir
Guðs sem ber að þakka og virða.
Heima er lagður grundvöllur að
lífi okkar og þaðan höfum við
grunn þeirra lífsgilda sem viö
byggjum á alla ævi.
Lúther segir einnig: „Að
heiðra er enn æðra en að elska. í
þvi felst ekki einungis kærleikur,
heldur einnig ögun, auömýkt og
lotning eins og gagnvart hulinni
hátign."
Virðing og hlýðni
Biblían skorar iðulega á hin ungu
að taka mark á foreldrum sínum.
Þannig stendur í Orðskviðunum:
„Hlýð þú, son minn, á áminning
föður þins og hafna eigi viðvörun
móður þinnar." (Orðskv. 1:8)
Hér er vísaö til beggja foreldra
og sama hugsun kemur fram í
boðorðinu. Þar er tiltekið „föður
þinn og móöur" - ekki einungis
annað þeirra, heldur þau bæði.
Það er athyglisvert í því Ijósi að
um er að ræða forna texta frá
þeim tíma þegar konur voru langt
i frá álitnar jafningjar karlmanna
en aö skilningi Biblíunnar áttu
|
10