Bjarmi - 01.12.2003, Qupperneq 30
aöi undan áfengi og vímuefnum.
Hann fann Ijósið og gafst Kristi.
Þú varst fjölskyldumaður siðast
þegar ég vissi.
Jú, ég er mikill fjölskyldumað-
ur. Konan mín heitir Guðrún Ing-
veldur Traustadóttir, kölluö Inga
og er ættuö úr Vestmannaeyjum.
Við kynntumst samt í Reykjavík.
Bróðir hennar var og er einn af
mínum bestu vinum, Vörður
Traustason, núverandi forstöðu-
maður Hvítasunnukirkjunnar Fíla-
delfíu í Reykjavik. Við kynntumst
nú svona eiginlega í gegnum
hann. Við eigum fjögur börn, 16 -
25 ára. Þrjá drengi og stúlku sem
er yngst. Elsti sonurinn er kvænt-
ur og fluttur að heiman en hin
þrjú búa enn í foreldrahúsum.
sem þau hafi eignast. Sú bók sem
hefur haft mótandi áhrif, verið
með í för og sem leiðarljós í
gegnum lifiö, ekki síst á dimmum
og erfiðum æviskeiðum.
Ég tel það mikil forréttindi að
fá að þjóna til landsmanna sem
Gídeonfélagi. Hlutverkið er há-
leitt og vandmeöfarið í senn. Það
er engu líkt að fá að fara með
Nýja testamentin i skólana og fá
tækifæri til aö spjalla við börnin.
Mér finnst okkur tekið mjög vel
bæði af börnum, kennurum og
skólastjórnendunum. Það er bein-
línis beðið eftir okkur og mér
finnst kennararnir i mörgum til-
fellum vilja aukna fræðslu tengda
þessum heimsóknum okkar. Við
gefum af okkur af því besta sem
við eigum og börnun eru í flest-
um tilvikum afar móttækileg og
áhugasöm.
Hvernig samrœmist það krefjandi
starfi þínu sem yfirlögregluþjónn í
Reykjavík að vera meðvitaður
kristinn maðurog virkur þátttak-
andi ístarfi eins og Gideonstarf-
inu. Hjálparþað þér istarfi eöa er
það kannski stundum óþœgilegt?
Margir vita jú hverþú ert og fyrir
hvaö þú stendur?
Það fer vel saman. Samfélagið
við Jesú Krist hjálpar mér i starf-
inu. Það bakland, reynsla og lífs-
sýn er mér ótvíræður styrkur. Þaö
er ekki spurning. Bænin er besta
áfallahjálpin. Bænasamfélagið við
Jesú Krist hjálpar og gefur styrk.
Getur þú nefnt eitthvað eftir-
minnilegt dœmi þarsem samfétag-
ið við Jesú hefur komið sér vel í
þinu starfi?
Það var mjög áhrifaríkt þegar
ég settist niður með manni inni í
fangaklefa og við báöum saman.
Maður þessi haföi oft setið inni og
eitt árið dvaldi hann í tæplega 300
daga í fangelsi en hann hafði í
mörg undangengin ár verið djúpt
sokkinn og margoft i höndunum á
okkur. Hann fékk þann kraft sem
dugöi til aö hætta sukkinu og urðu
straumhvörf í hans lífi. Hann losn-
Hefur starfið þitt og hugsjónir haft
mótandi áhrifá fjölskyldulifið á
einhvern hátt?
Hvað varðar starf mitt í lög-
reglunni þá held ég að starf mitt
sem lögreglumaður i Vestmanna-
eyjum hafi haft mun meiri bein
áhrif á fjölskyldu- og heimilislifið
en hérna í Reykjavík. Viö höfum
nú annars reynt að halda starfinu
eins mikiö utan veggja heimilisins
eins og kostur hefur veriö. Þaö
hefur þó ekki alltaf verið hægt.
Hvað varðar áhrif af starfinu góð
eða slæm þá hefur það nú farið
þannig „því miður" að elsti sonur
minn gerðist lögreglumaður og
starfar sem slíkur.
Hvað varöar þátttöku mína og
okkar hjóna í kristilegu starfi þá
hefur það haft mótandi áhrif á
fjölskyldulífið sem betur fer og
börnunum okkarvonandi til góðs.
Þau eru að minnsta kosti öll þátt-
takendur í kristilegu starfi með
einum eða öðrum hætti.
Hvernig sérðu fyrirþér framtíð
kristni á Islandi?
Ég tel afar mikilvægt að kristiö
fólk á íslandi sameinist í átaki til
starfa á meðal barna og unglinga.
Þjóökirkjan, fríkirkjur og kristileg
félagasamtök stilli saman strengi
og sameini krafta sína og reynslu
til slíks starfs. Að minu mati er
það besta forvarnarstarfiö gagn-
vart vímuefnum og afbrotum. Þá
tel ég afar nauðsynlegt fyrir þessa
30