Bjarmi - 01.12.2003, Side 31
aöila aö geta verið i nánu sam-
starfi við skáta- og íþróttahreyf-
inguna og annaö æskulýðsstarf.
Ef þaö tækist er ég þess fullviss
aö stuðningur yfirvalda myndi
ekki láta á sér standa. Þegar fólk
upplifir öflugt æskulýösstarf sem
virkar. Ef íþróttahreyfingin, skát-
arnir og kirkjan setja í pott allt
það góða starf sem þau standa
fyrir þá kaupa menn hugmyndina
og sjá aö þarna er markvisst net
sem tekur á þörfum barnanna
jafnt til likama, sálar og anda.
Svona lagaö getur aldrei komiö
ofan frá vegna tilskipunar yfir-
valda. Þetta verður að vera breið
samstaða um á meðal þeirra sem
vinna að uppeldi og afþreyingu á
meðal barna og unglinga.
Fyrst og fremst þurfa kristnir
menn að standa saman, sama
hvaða hjörð þeir kunna að til-
heyra. Kærleikur Krists verður að
vera sú hugsjón sem knýr okkur,
ekki einhverjir þröngir sérhags-
munir.
Eitthvað sem hvilir á þér að lokum,
GeirJón?
Ja, ég vil bara hvetja alla að
gefa þvi tækifæri að lifa í samfé-
lagi viö Jesú Krist. Allt það sem
menn leita að er að finna í sam-
félaginu við hann. Það eru svo
ótrúlegar krókaleiðir og lykkjur
sem sumir þurfa aö fara. Jesús
mætir hverjum og einum þar sem
hann er staddur hverju sinni.
Hann fer ekki i manngreinarálit.
Hann er kærleikur án skuldbind-
ingar.
Að allra síðustu, GeirJón. Skiptir
stœrðin máli?
Nei, ekki sú likamlega. Stærð
kærleika og umhyggju skiptir
mestu máli og þar vil ég vera stór.
Viðmælandi Geirs Jóns er rithöfundur
og framkvæmdastjóri Laugarneskirkju.
sbjorn@simnet.is
V
Góðar vefsíður
Hér fyrir neðan eru upplýsingar um
nokkrar vefsíður sem ýmist eru forvitni-
legar, fræðandi eða hjálplegar fólki sem
er í kristilegu starfi. Abendingum um
vefsíður má koma til blaðsins með pósti
á ragnar@sik.is
Leiðrétting á vefsióð
með biblíuskýringum
í síðasta tölublaði Bjarma var tilvisun í vef-
slóð Böðvars Björgvinssonar en þar hefur
hann sett inn hluta af biblíuskýringum Björg-
vins Jörgensonar, fööur sins. Er sú vinna enn i
gangi og mun skýringunum fjölga er á líður.
Uppgefin vefslóð er hins vegar orðin óvirk og
því komin ný sem er http://titan.vor-
tex.is/bodv/BiblSkyr/OO-lnngangur.html. Eru
lesendur blaösins beðnir velvirðingar á mis-
tökunum sem rekja má til tæknilegra vanda-
mála vefþjónsins sem um var að ræða.
Samkynhneigð og kristin trú
Þrjátíu og tvær kristilegar hreyfingar í Nor-
egi gáfu í sumar út blaðið Homofili og
kristen tro. Allar greinar þess er að finna á
vefslóðinni www.homofili.com auk annarra
greina sem ekki var rými fyrir í blaðinu.
Markmiðið er að miðla því sem Biblían hef-
ur að segja um þessi mál og skoða stöðu
samkynhneiðgra. Þarna má finna greinar á
ensku og norsku og vitnisburði fólks.
Gott blað með margvíslegar greinar
Á slóðinni www.budskabet.dk er að finna
heimasíðu samnefnds blaðs, sem er kristi-
legt timarit og tekur upp ýmis mál og
skoðar þau í Ijósi kristinnar trúar. Mark-
miðið er að hjálpa og leiðbeina kristnu
fólki. Blaðið er gefið út af Luthersk
Missionsforening í Danmörku.
Starfað á meðal unglinga
Vefsiðan www.talkstogo.com er ætluð
unglingum og fólki sem starfar á meðal
ungs fólks. Þar er að finna ýmislegt hjálp-
legt til að nota i samræðum og boðun
Guðs orðs til þessa aldurshóps. Ýmislegt i
poppmenningunni er skoöað og tillögur
um hvernig nýta megi það sem þar er að
finna og þann heim sem ungt fólk i dag
þekkir best. Síðunni er haldið úti af Evang-
elical Alliance i Bretlandi.
Kristilegar útvarpsstöðvar
Lindin, kristiieg útvarpsstöð, er með vef-
slóðina www.lindin.is. Þar má fá ýmsan
fróðleik um stöðina og eins hlusta á út-
sendingu. Fyrir þau sem vilja eitthvaö á
ensku er gott aö skoða www.premier.org.uk,
en þar eru upplýsingar um kristilegt útvarp
í Englandi, fréttir og fróðleikur af ýmsu
tagi. Fyrir norskumælandi er forvitnilegt aö
skoða www.norea.no.
31