Bjarmi - 01.12.2003, Page 32
Hentugar jólagjafir
Daggardropar I og II
Hugleiðingar um lífið og tilveruna út frá orði Guðs
Dögg Haröardóttir er hjúkrunarfræöingur og kennari og hefur tekið þátt í ýmsu kristi-
legu starfi á liönum árum. Undanfariö hefur hún verið meö stutta pistla eða hugleið-
ingar á Lindinni, kristilegri útvarpsstöö.
Hver þeirra er 5-10 mínútur. Nú hefur
fyrstu þáttunum verið safnað saman og
þeir gefnir út á geisladiskum. Diskana má
fá keypta í verslunum kristinna samfélaga
á höfuðborgarsvæðinu og víðar.
Daggar
| dropar
Um ánauð viljans
Ut er komin hjá Hinu íslenska bók-
menntafélagi rit Marteins Lúthers, Um
ánauð viljans í þýðingu Jóns Á. Jónsson-
ar og Gottskálks Þórs Jenssonar. Þetta er
54. lærdómsritið í ritröð félagsins. Þetta tiltekna rit er sprottiö upp úr rit-
deilu milli Lúthers og Erasmusar frá Rotterdam og fjallar um grundvöll krist-
innar kenningar. Hún er sjálfsögð lesning öllum þeim sem vilja kynna sér
skoðanir og framsetningu Lúthers. Bókin ber þess merki að deilan var hörö
og vitnar um það hve ritskýring Lúthers var skörp. Sigurjón Árni Eyjólfsson
og Gottskálk Þór Jensson rituöu inngang að bókinni.
Smábarna-Biblía
Huggun í sorg
Karl Sigurbjörnsson biskup hefur tekið saman þessa bók sem tileinkuð er
þeim sem sorgin hefur sótt heim. Hún geymir huggunarorö úrýmsum áttum,
í formi íhugunar, bæna og orða Biblíunnar sjálfrar um sorg og missi, huggun
og von. Bókin er hugsuð til hjálpar fólki
þegar sorgin sækir aö með öllum sínum
þunga og leiöir lesandann á vit bænar-
innar, hvort sem hann hefur vanist því
að biðja eða ekki. Útgefandi er Skál-
holtsútgáfan.
hu°gun i sorg
HUOLEIOING
AR 00 liMN
AORd
Skálholtsútgáfan hefur gefiö út haröspjaldbók fyrir yngri börnin
með 40 gluggum til aö opna, einn eöa fleiri á hverri síðu. Bókin er
góö kynning á frásögum Gamla og Nýja testamentisins. Bókin miðar
að því að börnin taki þátt i að uppgötva efni hverrar sögu. Bókin er
tvímælalaust góð hjálp í því að miöla sögum og boöskap Biblíunnar
til yngstu barnanna.
32