Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.12.2004, Side 4

Bjarmi - 01.12.2004, Side 4
Halla Jónsdóttir A AÐVENTUNNI Fyrir framan safnaðarheimilið. er eins og jörðin smitist af dýrð himnanna Viðtal við sr. Guðmund Karl Brynjarsson Guðmundur Karl Brynjarsson er borinn og barnfæddur í Keflavík. Sem lítill drengur lærði hann bænir af foreldrum og ömmu og afa. Bænin fylgdi honum og á æsku- árum vissi hann að á erfiðum stundum gat hann beðið til Guðs, en Guð virtist að öðru leyti fjar- lægur. Það voru orð konu einnar sem hann heyrði tala um að hún þakkaði Guði á hverjum degi fyrir það sem hún heföi, sem urðu til þess að vekja hann, eins og upp af svefni. Þessi hversdagslegi atburður var eins konar leiðarsteinn Guðmundar Karls í þvl ferli Guðs að leiða hann til sín. Tuttugu og eins árs gafst hann Jesú Kristi, en sú ákvörðun hefur haft mikil og afgerandi áhrif á allt líf hans. Guðmundur Karl er kvæntur Kamillu Gísladóttur, kennara og eiga þau þrjú börn. Guðmundur Karl vígðist til starfs skólaprests 1996, fór tveimur árum síðar sem prestur á Skagaströnd þar sem þau hjónin bjuggu og störfuðu í 2 1/2 ár. Árið 2000 fluttust þau síðan suður þegar hann gerðist prestur I Hjallakirkju. Fulltrúi Bjarma hitti sr. Guðmund Karl á milli morgunmessu og ferm- ingarfræðslu. Það eru miklar annir hjá ungum presti I nýjum söfnuði en I dag er hann sóknarprestur I nýrri sókn I Kópavogi, Lindasókn. Og að mörgu þarf að huga, en hann gaf sér samt tfma til umræðu um starfið, lífið, trúna og aðventuna. Af hverju fórstu að lesa guðfræði? Eftir að ég komst til trúar velti ég því mikið fyrir mér hvort mér væri ætlað að verða prestur eða kristni- 4

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.