Bjarmi - 01.12.2004, Qupperneq 19
Þegar Guð læknar ekki
Allir kannast við þörfina til að
ákalla Guð I vanmætti sínum. Þörfin
getur gert vart við sig á sjúkrahús-
inu, á skrifstofu læknisins eða
þegar við fáum sláandi niðurstöður
úr rannsókninni. Þörfin kemur oft
fyrirvaralaust og verður svo sterk
að við getum vart um annað
hugsað.
En hvers vegna læknast ekki allir
sem biðja Guð um lækningu? Með
spurningunni er annars vegar
gengið út frá þvi að Guð geri krafta-
verk og lækni fólk. Ekki þarf að
rannsaka Ritninguna itarlega til að
sjá að með kraftaverkum sýnir Guð
mátt sinn og megin,1 vekur undrun2
og staðfestir boðskap sinn.3
Hins vegar er gengið út frá þvi
að kristnu fólki beri að biðja án
afláts4 vegna þess að reglulegar
bænir sýna traust viðkomandi á
Guði. Og sem börn Guðs væntum
við góðra gjafa frá okkar himneska
föður.5 Þó er nauðsynlegt að hafa
þrennt i huga hvað þetta varðar.
í fyrsta lagi: Guð bregst ekki
alltaf við óskum okkar og hann leyf-
ir itrekað aðstæður sem við vildum
svo gjarnan vera laus við. Guðfræð-
in kallar þetta alvald Guðs. Trú
okkar kennir okkur að það er Guð
sem ræður. Þar af leiðandi getur
hann komið ýmsu til leiðar eða
haldið að sér höndum við hinar
ýmsu aðstæður. Það er á hans valdi
og hans ábyrgð að nota mátt sinn á
sköpunina, allt eftir hans eigin vilja.6
Guð hefur kosið að hylja fyrir
okkur mönnunum hvernig og hvers
vegna hann beitir mætti sinum. Af
þeim sökum eru svör Guðs ekki
alltaf í samræmi við okkar bænir.
Pétur gerði sér grein fyrir því
hvernig þjáningin getur samræmst
vilja Guðs: Þess vegna skulu þeir,
sem líöa eftir vilja Guös, fela sálir
sínar á hendur hinum trúa skapara
og halda áfram að gjöra hið góöa.7
í öðru lagi: Vegna erfiðleika
okkar efumst við stundum um
alvald Guðs. Þegar við efumst þá
litum við svo á að við getum höndl-
að meiri og stærri hluti en hann
framkvæmir. Við höldum að ef Guð
gerir stórkostleg kraftaverk þá muni
lýður hans beygja sig í duftið vegna
máttar hans. En í dæmisögu Jesú
um rika og snauða manninn segir:
Ef þeir hlýöa ekki Móse og spá-
mönnunum, láta þeir ekki heldur
sannfærast, þótt einhver rísi upp frá
dauðum.8
Trú okkar á frekar að vera sann-
færing um þá hluti, sem eigi er
auöið aö s/á.9 Heimurinn vill fá
sannanir með táknum og undrum
en við skyldum ekki gleyma því að
orð krossins er heimska þeim er
glatast, en oss, sem hólpnir
veröum, erþaö kraftur Guös.'0 Það
er í þessum krafti sem hann biður
okkur um að treysta sér.
í þriðja lagi: Við verðum að
meðtaka náð Guðs eins og hún
birtist við aðstæður okkar hverju
sinni. Með öðrum orðum, Guð er
okkar Guð sama hvort okkur geng-
ur allt í haginn eða allt í mót. Páll
postuli bað Guð þrisvar sinnum um
lækningu. Og svar Guðs? Náð mín
nægir þér, því að mátturinn full-
komnastí veikleika." Náð Guðs
veitir okkur styrk til að liða þjáningu
likt og Jesús þurfti að gera á kross-
inum!
Jesús ieið þjáninguna þolin-
móður vegna gleöi þeirrar er beiö
hans,12 og náð Guðs gerir okkur
einnig kleift að liða þjáningu. Erfið-
ieikar okkar hafa tilgang og munu
taka enda og þó við skiljum ekki til-
gang þjáningarinnar þurfum við að
halda fast í gæsku Guðs og feta í
fótspor sonar hans.
Mergur málsins er því þessi: Við
skiljum ekki hvers vegna Guð lækn-
ar suma en ekki aðra. Öll höfum við
heyrt frásagnir af fólki Guðs sem
ekki læknast þrátt fyrir að biðja án
afláts.
Orð Alister McGrath í bókinni
Mysteryofthe Cross (Zonderwan,
1990) eiga vel við í þessu samhengi:
„Reynslan má aldrei eiga síðasta
orðið af þeirri ástæðu að hún er
ekki óskeikul. Guðfræði krossins
dregur athygli okkar að fallvaltleika
reynslunnar þegar hún reynir að
benda okkur á Guð. Guð ertil
staðar og starfar í þessum heimi,
alveg óháð þvi hvort við verðum
hans vör eða ekki. Reynslan felidi
þann dóm að Guð hefði yfirgefið
Golgata, en þremur dögum síðar
var sá dómur ógiltur."
Eins og i tilfelli krossins, getur
verið að erfiðustu augnablik okkar
séu dýrmæt i augum Guðs. Kannski
notar Guð einmitt þessi augnablik til
að gera stóra hluti í lífi okkar - þó
svo að við tökum ekki eftir því. í
stað þess að láta kringumstæðurnar
taka af okkur völdin, ættum við að
vera gagntekin af Guði. Þess vegna
biðjum við án afláts, treystum á
mátt Guðs og finnum huggun í
voninni.
Grein þessi er þýdd af Ragnari Schram
og birt með leyfi höfundar, Mark M.
Yarbrough. Hún birtist upphaflega í
tímaritinu Christianity Today (september
2004) sem gefið er út af Christianity
Today International Carol Stream,
lllinois.
1 Jer.10:12 7 I.Pét. 4:19
2 2.MÓS. 4.21 8 Lúk. 16:31
3 Matt. 12:39-40 9 Heb. 11:1
4 I.Þess. 5:17 10 1,Kor. 1:18
5 Matt. 7:11 11 2.Kor. 12:9
6 Sálm. 50:1, 115:3 12 Heb. 12:2
19