Bjarmi - 01.12.2004, Blaðsíða 20
Hrönn Svansdóttir
Joyful -
Gospelkór Reykjavíkur
Gospelkór Reykjavíkur var stofnaður í tilefni Kristnihátíðar á Þingvöllum
árið 2000. Það hafði lengi verið draumur Óskars Einarssonar, stofnanda
og stjórnanda kórsins, að vera með vandaðan gospelkór sem hefði
félaga úr öllum kirkjudeildum. I kórnum er sameinast um það markmið
að syngja Guði til dýrðar og þó komið sé úr ólíkum kirkjum þá er
sérstaklega gott samfélag innan kórsins.
Kórinn hefur haldið fjölmarga tónleika bæði í Reykjavík
og úti á landi, komið fram í sjónvarpi og útvarpi og
sungið inn á geisladiska. Á meðal tónleika má nefna
afmælistónleika Lindarinnar 2003 og styrktartónleika
bæði fyrir Samhjálp og ABC hjálparstarf og sl. tvö ár
hefur kórinn komið fram á styrktartónleikum í
Grafarvogskirkju. Allur ágóði sem kórinn vinnur
sér inn, hvort sem er með tónleikahaldi eða
öðrum uppákomum eins og brúðkaupum og
veislum, rennur til góðgerðamála og hefur það
verið markmið kórsins frá upphafi. Meðlimir
kórsins voru í upphafi 18 en eru nú um 30 og
eru á ýmsum aldri.
Hljómar gefa út nýjasta verkefni kórsins
sem er geisladiskur og DVD diskur
tekinn upp á tónleikum sem haldnir
voru í Háskólabíói. Þetta er fyrsti
gospel DVD diskurinn sem gefinn er
út á íslandi og er þetta gríðarstórt
verkefni sem tugir manna koma að.
Á tónleikunum léku margir af
færustu hljóðfæraleikurum
íslands, það voru þeir Eyþór Gunnars-
son, Jóhann Ásmundsson, Halldór Gunnlaugur Hauks-
son, Agnar Már Magnússon, Ómar Guðjónsson, Óskar Guðjónsson,
Sigurður Flosason og Kjartan Hákonarson. Margir einsöngvarar eru í
kórnum og njóta þeir sín vel í þessum lögum. Hins vegar voru fjórir
gestasöngvarar sem skiluðu sínu mjög vel, það voru þau Guðrún
Gunnarsdóttir, Páll Rósinkranz, Fanny Kristín Tryggvadóttir og Maríanna
Másdóttir.
Stjórn hljóðupptöku var í höndum Óskars Einarssonar og hljóðvinnsla í
höndum Gunnars Smára Helgasonar. Dagskrárgerð önnuðust Eiríkur
Böðvarsson og Sindri Reyr Einarsson. Diskurinn innheldur gospeltónlist
eins og hún gerist best og m.a. lögin Lean on Me, Oh Happy Day, Pie
Jesu og My Tribute.
Við yfirheyrðum nokkra kórfélaga
og birtum hér svör þeirra.
Erla Björg Káradóttir
Hjúskaparstaöa og fjölskylda?
Ég er gift Kjartani Ólafssyni. Við
eigum eina dóttur.Önnu Birnu, sem
er 1 árs.
íhvaöa klrkju ertþú?
Ég tilheyri Þjóðkirkjunni og er í
KFUM og K.
Hvernig komst þú til trúar?
Ég er alin upp i kristinni trú og
hef því trúað á Jesú Krist frá því
ég man eftir mér. Á unglingsár-
unum sótti ég Kristileg skólasam-
tök (KSS) og þartók ég þá
ákvörðun að ég ætlaði að fylgja
Jesú allt mitt líf.
Hvernig hefur trúin á Guö áhrif á
þitt daglega llf?
Ég legg hvern dag í Guðs
hendur og treysti því að hann sé
með mér. Ég reyni eftir fremsta
megni að lifa lífi mínu sem góður
vitnisburður fyrir hann.
Áttu þér uppáhaldsritningarvers?
Þau eru svo mörg en ef ég á að
nefna eitt er það Jóh. 10.27-28:
„Mínir sauðir heyra raust mína, og
ég þekki þá, og þeir fylgja mér. Ég
gef þeim eilíft líf, og þeir skulu
aldrei að eilífu glatast, og enginn
skal slíta þá úr hendi rninni."
Hve iengi hefur þú verið i
Gospelkór Reykjavikur?
Ég byrjaði i kórnum í byrjun árs
2002.
Hvaöa máli skiptir tóniist í þinu
lífi?
Öllu máli. Ég hef lifað og
hrærst í tónlist síðan ég var lítil
stelpa. Söngurinn skipar stóran
sess i lífi mínu og þakka ég Guði á
20