Bjarmi - 01.12.2004, Page 27
og það var ég að glíma við hér áður
fyrr, að reyna að sanna mig fyrir
heiminum, vinum, vandamönnum
og samfélaginu. Nú finnum við að
Guð er með okkur í þessu öllu og
styður okkur þegar upp koma
vandamál. Hér er það viðfangsefnið
sem skiptir mestu máli, það að ná
til fólksins, sjá aðra koma til Guðs
og endurnýja samband sitt við
hann. Við gætum reynt að leika ein-
hverjar ofurhetjur hérna og drottna
yfir öllu en það gengur ekki upp.
Við eigum að beina sjónum okkar
að Guði allan tímann. Maður á að
vera líkur Jesú, allir eru jafnir og við
eigum að þora að þvo fæturna
hvert á öðru og þjóna hvert öðru.
Guð gefur okkur ýmsa hæfileika og
við eigum að vera ófeimin að nota
þá fyrir Drottin. En það er ekki það
sem skiptir máli, heldur að fólk
komi til Jesú og endurnýist. Við
eigum að sýna hvert öðru auðmýkt
og stolt á ekki að skipta neinu máli
og metingur á ekki að spilla fyrir i
kristilegu starfi.
En auðvitað leiddum við hugann
að því hvernig við myndum spjara
okkur enda þekkjum við marga hér.
Kannski eru einhverjir sem muna
eftir atvikum sem ég gerði I fortíð-
inni, bullaði hér og lét eins og hálf-
viti þar, en þetta er búið og þurrkað
út. Þó að það sé kannski ekki
þurrkað út hjá öllum þá hefur mað-
ur þurft að gera upp hlutina og það
var langt en mikilvægt ferli hjá mér.
Guð varð að hreinsa mig svo að ég
gæti haldið áfram en það hef ég
reynt að gera eftir fremsta megni.“
Rannvá tekur fram að eftirvænt-
ingin hafi verið mikil enda var Siggi
þekktur fyrir að tala um ísland og
auglýsa það og þó að þau séu ekki
búin að vera lengi hafa þau fengið
marga góða gesti að utan. Þau
höfðu hlakkað lengi til að koma til
íslands enda gott að starfa I sínu
heimalandi og telur Rannvá ísland
vera líka sitt heimaland. Þau hafa
fengið hlýjar og góðar mótttökur á
Akureyri og þeim finnst mikilvægt
að finna það.
En nú vikur sögunni að starfinu
á Hemum. Þar er mikil og fjölþreytt
dagskrá í viku hverri. „Við komum
að starfi hér i fullum blóma og það
var mikil tilhlökkun að koma í slikt
starf sem ekki þyrfti að byggja upp
frá grunni. Markmiðið er eins og
verið hefur undanfarin ár að ná til
barna og unglinga á Eyrinni og að
ná einnig til foreldranna i kringum
börnin og það er í raun erfiðast og
því mikilvægt að foreldrarnir finni í
gegnum börnin að hér er gott að
vera. Nú eru samkomur á sama
tíma og sunnudagaskólinn og er
það gert i þeirri von að foreldrar
komi með þörnunum en taki svo
þátt í samkomunum. Við viljum
leggja mikla áherslu á að vera sýni-
leg í bænum, þó að Hjálpræðis-
herinn hafi verið sýnilegur þá viljum
við auka það enn fremur. Ekki má
einblína of á veggi kirkjunnar heldur
þarf kirkjan að koma út til fólksins.
En það kemur margt fólk á Herinn
alla vikunna og það er frábært."
Eina nýjung hafa Siggi og
Rannvá tekið með sér þó að þau
vilji ekki gera mikið úr því en það er
svokallað „Gospel Church“
(gospelkirkja) sem eru samkomur
einu sinni í mánuði þar sem
megináherslan er lögð á kröftuga
tónlist og var gospelkór stofnaður
sérstaklega fyrir þessar samkomur.
Rannvá stjórnar kórnum og Siggi
hljómsveitinni sem sér um undir-
leikinn. „tilgangurinn er að fólk fái
að heyra fagnaðarerindið i gegnum
söng. Vel gengur að manna kórinn
Ekki má einblína of á veggi kirkjunnar
heldur þarf kirkjan að koma út til
fólksins.
enda þykir gospeltónlist mjög
skemmtileg og gefandi.“
Þegar þau eru spurð um fram-
tiðina og hversu lengi þau verða á
Akureyri þá er það óráðið. Þau sjá
mikla möguleika og framtíð í því að
vera á Akureyri en þau hlýða kalli
Drottins þegar það kemur.
Bjarmi þakkar þeim fyrir spjallið
og óskar þeim Guðs blessunar
áfram í starfinu.
Viömælandi þeirra hjóna er skrifstofu-
stjóri félagsvísinda- og lagadeildar
Háskólans á Akureyri.
hannag@unak.is
27