Bjarmi - 01.12.2004, Page 28
Andinn þarf að fá að fylla
starfið krafti sínum
Viðtal við Einar Ekerhovd forsvarsmann OASE í Noregi
í haust heimsótti presturinn Einar
Ekerhovd ísland og tók m.a. þátt í
helgarmóti á vegum KFUM og
KFUK og Kristniboðssambandsins
í Vindáshiíð. Einar er forsvars-
maður OASE, endurnýjunarhreyf-
ingar sem starfar innan norsku
Það að lifa í endurnýjun andans snýst
um að taka Guð með í reikninginn á
öllum sviðum lífsins.
kirkjunnar og tók við því hlutverki
í vor. Það hentaði honum vel að
heimsækja ísland og mynda
tengsl hér eins og hann hefur á
hinum Norðurlöndunum. Áhersla
OASE er á verk Heilags anda,
náðargjafirnar og að við séum
vakandi fyrir að þjónusta okkar
við Guð sé unnin í krafti andans.
Við byrjum á því að fá að vita svo-
lítið meira um manninn.
Ég er að verða fimmtugur og hef
verið prestur í norsku þjóðkirkjunni i
20 ár, síðustu 12 árin i söfnuði fyrir
utan Kristiansand í Suður-Noregi.
Sjálfur varð ég meðvitaður um trú
mina frá unglingsárunum þegar ég
tók þátt í kristilegu æskulýðsstarfi í
söfnuðinum heima. Ég gerði mér
grein fyrir því að Heilagur andi vildi
vinna sitt verk í lífi mínu. Náðar-
gjafavakningin hafði áhrif á mig á
áttunda áratugnum og þá óx innra
með mér löngun eftir þvi að fá að
reyna verk andans i lífi mínu í ríkari
mæli. Starf Heilags anda er eöli-
legur hluti af lífi kristins manns. Ég
var sautján ára að aldri þegar Guð
kallaði mig til að verða prestur. Það
hentaði mér eiginlega ekki, því ég
þorði aldrei að opna munninn ef
fleiri en þrír voru á staðnum! En
þegar ég vigðist til prests árið 1982
var beðið fyrir mér með handayfir-
lagningu biskups og annarra presta
og þá gerðist eitthvað innra með
mér. Löngunin til að predika óx
fram og Guð sá um sinn hluta, að
kallið yrði að veruleika. Ég óx
smám saman í þessu. Fyrsta
predikunin mín tók reyndar aðeins
fjórar minútur og 28 sekúndur. Og
ekki bætti úr skák þegar ég snéri
mér frá altarinu að söfnuðinum að
biskupinn sat á fjórða bekk!
Allt lífið hef ég reynt það að Guð
gefur það sem þarf ef hann kallar
okkur til ákveðins verks eða þjón-
ustu. Slík reynsla styrkir trúna og
sambandið við hann. Það hefur
blesað mig ómælt að leita eftir
samfélagi þar sem andi Guðs er
sérstaklega að verki. Þegar Toronto-
blessunin gekk yfir fékk ég að reyna
kærleika Guðs og gæsku á nýjan
hátt. Það að lifa i endurnýjun
andans snýst um að taka Guð með
i reikninginn á öllum sviðum lífsins.
Við getum treyst á hann og hann
þráir að eiga einlægt og gott sam-
félag við okkur.
OASE - fyrir hvað
stendurþessi hreyfing?
Starfið er núna 25 ára og er
ávöxtur af náðargjafahreyfingunni.
Frumkvöðlarnir vildu skapa aukið
rými fyrir verk andans innan
lúthersks kirkjustarfs. Markmiðið er
að reisa við kristið fólk og fylla það
djörfung og byggja upp lifandi
söfnuði sem breyta samfélaginu.
Aðalatburður OASE er sumar-
mótið sem yfirleitt er sótt af um
5000 manns. Þar er áhersla á
biblíufræðslu, hagnýta fræðslu fyrir
þjónustuna í Guðs ríki, lofgjörð,
kyrrð, tækifæri til fyrirbænar og sál-
gæslu og samtals. Um 130 prestar
eru í tenglaneti okkar eða um 10%
starfandi presta i norsku kirkjunni.
Þar fyrir utan eru bæði djáknar og
fræðarar. Við höldum ráðstefnur og
námskeið til hvatningar og leiðbein-
ingar. Þungi áherslunnar er á verk
Heilags anda. Það er eðlilegt að
vera fylltur andanum, þannig á líf
okkar að vera. Mikil áhersla er núna
á unglinga og unglingastarf enda
mikil vakning á meðal þeirra í
Noregi. Víða í borgunum i Noregi
koma saman nokkur hundruð
28