Bjarmi - 01.12.2004, Síða 34
Það er mikil gleði og spenna
sem ríkir en samt er áminning um
undirbúning sem hljómar i dæmi-
sögunni.
INNIHALD
Aðventan er einnig tími sem við
eigum að reyna að nýta okkur til að
styrkja fjölskylduna. Á aðventunni
deilum við von og gleði með
öðrum, og endurnýjum okkar and-
lega líf og hugarfar í bæn. Á
aðventunni kveikjum við á aðventu-
Ijósum og aðventukransi. Stundum
verða þessir siðir hversdagslegir og
venjulegir. Þess vegna er mikilvægt
að staldra við og tala um merkingu
þeirra og tengja þá við komu Jesú.
Hér á eftir koma nokkrar hugmyndir
um hvernig við höfum reynt að gera
aðventustundirnar innihaldsríkari í
heimilislífi okkar.
Við reynum að hafa eina stund í
viku þar sem við söfnumst saman í
kringum kransinn og lesum, biðjum
og tölum um táknmál aðventu-
kransins. Fyrsta stundin er þegar
við komum saman og útbúum
kransinn.
Aðventukransinn
og táknmál hans
Undirbúningur: Einhvern tímann
fyrir fyrsta sunnudag i aðventu
útbúum við aðventukrans. Þar sem
táknmál kransins hjálpar okkur að
segja frá þeim boðskap sem jólin
flytja okkur má skilja og nota hann
á marga vegu.
Á kransinum getum við haft
greni, bjöllur og annað skraut.
Æskilegt er að litirnir i kransinum
séu hvítur, gylltur, rauður, fjólublár,
rósrauður og grænn. Fjögur kerti,
þrjú fjólublá og stundum eitt rós-
rautt sem notað er þriðja sunnudag
í aðventu, annars öll fjólublá. Þar að
auki er eitt hvitt kerti sem við
setjum í miðjuna á kransinum á
aðfangadagskvöld.
Kransinn minnir okkur á að Guð
er persónulegur og eilífur, hann er
án upphafs og án endis. Hringurinn
minnir okkur einnig á hans óendan-
legu náð. Grenið minnir okkur á að
Guð gaf okkur eilíft og nýtt líf fyrir
Jesú Krist. í kransinum er tákn um
lífið og þá von sem við eigum í
Kristi að hann endurnýi trú okkar á
hverjum degi fyrir sinn heilaga
anda.
Kertin fjögur sem við notum
heita mismunandi nöfnum sem við
komum að síðar, en þau minna
okkur á að Jesús er Ijós heimsins.
Þegar Jesús kemur inn í líf okkar
flýr myrkrið burt vegna þess að
Ijósið er sterkara en myrkrið. Hann
lýsir okkur þann veg sem við eigum
að ganga, en margir velja annan
veg, biðjum því fyrir þeim sem hafa
ratað á hinn ranga veg og að þeir
mættu sjá það Ijós sem Kristur er.
Kertin fjögur tákna ekki bara þá
fjóra sunnudaga sem við bíðum
eftir jólum heldur lika þær fjórar
aldir sem liðu frá spámanninum
Malakí og að fæðingu Krists
(Matteus). Kertin minna okkur ein-
nig á að guðspjöllin fjögur flytja
boðskap hans og að boðskapurinn
um hann á að hljóma til allra átta.
Bjöllurnar á kransinum minna
okkur á kristniboð og hvernig við
getum tekið þátt í því með bænum
og gjöfum. Þær minna okkur einnig
á að við eigum að vera kristniboðar
í orði og verki. Við eigum að vera
bjöllur sem hringja út boðskapinn
um allan heim og segja frá hinum
góðu fréttum að Jesús sé hinn eini
og sanni frelsari.
Litirnir i kransinum geta t.d. táknað:
Hvítur: gleði, hreinleika, fullkomleika.
Gull: dýrð, guðdómleika og
konunginn Krist.
Rauður: Blóði Krists hefur verið
úthellt fyrir misgjörðir okkar og
hreinsar okkur af allri synd.
Fjólublár er litur aðventunnar og
föstunnar og táknar iðrun og undir-
búning.
Grænn: lífið sjálft, hið eilífa líf, vöxt
og þroska.
Rósrauði liturinn er tákn gleðinnar.