Bjarmi - 01.12.2004, Side 35
Kertin á kransinum heita
mismunandi nöfnum:
1. sd: Spádómskertið, kerti vonar-
innar. Þaö minnir okkur á að það
var fyrir löngu sagt fyrir um komu
Jesú sem Messiasar, frelsara.
2. sd: Betlehemskertið, kerti kær-
leikans. Það minnir okkur á að það
var ekkert rúm (pláss) í gistihúsinu.
3. sd: Fjárhirðakertið, kerti gleð-
innar. Það minnir okkur á að það
voru venjulegir vinnumenn, fjár-
hirðar, sem fyrst heyrðu gleðiboð-
skapinn um komu Jesú.
4. sd: Englakertið, kerti friðarins,
minnir okkur á að englarnir fluttu
boðskapinn um frið á jörð til mann-
anna, vegna þess að friðarhöfðing-
inn var kominn í þennan heim.
AÐVENTUSTUNDIR
Þessa hluti er hægt að tala um
þegar kransinn er útbúinn, og biðja
fyrir þeim tíma sem er í vændum.
Við getum notað okkar eigin hug-
myndir þegar við tengjum táknmál
aðventunnar við Jesú og líf hans.
Gerum aðventukransinn að mið-
punkti samverunnar. Leyfum börn-
unum að taka þátt í samverunni
með því að leyfa þeim að lesa vers
og kveikja og slökkva á kertum.
Látið t.d. eitt barnanna tendra
Ijósið á einu kerti fyrsta sunnudag í
aðventu og síðan öðru annan
sunnudag o.s.frv.
Einhver úrfjölskyldunni getur
lesið textana sem eru fyrir hvern
dag.
Síðan getur einhver úr fjölskyld-
unni farið með stutta bæn og allir
hinir endað á Faðirvorinu.
Siðan má t.d. syngja einhvern
jóla- og aðventusálm eða söng t.d.
Jólaklukkur klingja, Bjart er yfir
Betlehem eða Nóttin var sú ágæt
ein.
Eitt barnanna fær síðan að
slökkva á kertinu.
Eftir þessa athöfn er hægt að
koma saman og t.d. föndra saman
eða eitthvað annað sniðugt og upp-
byggilegt. Það er mikilvægt að við,
hvort sem við erum foreldrar eða
kennarar, gerum okkur grein fyrir
því að við erum að móta hefðir og
leggja inn i minningabanka barnsins
fyrir seinni tíma. Sá minningabanki
getur skilað góðum, jákvæðum
vöxtum ef minningarnar eru góðar
og uppbyggilegar. í góðum minn-
Ritningarlestur
fyrir daga aðventunnar
Fyrsta vika:
1. sd. Ferðin til Betlehem. Lúk. 2:1-5
Jes. 40:1-11, og Jes. 64:1-2
Jer. 33:14-16
IVIark. 13: 32-36
Jak. 5: 7-8
Önnur vika-.
2. sd. Ekkert rúm i gistihúsinu. Lúk. 2: 4-7
Róm. 13:11-14
Matt. 3:1-10
Jes. 40: 3-5
2. Pét. 3: 8-14
1. Þess. 5:19-23
Þriðja vika:
1. sd. Englar birtast fjárhirðum. Lúk. 2: 8-20
Sálm. 122:1-2
Fil. 4: 4-7
Jes. 35:1-2,10
Fjórða vika-.
4. sd. Heimsókn vitringanna. Matt. 2:1-2, Matt. 2: 9-11
Sálm. 121
Matt. 11: 28-30
Lúk. 11: 9-13
Jóh. 3:16, Jóh. 6: 47-51, Jóh. 15:12-17
Lúk. 1: 26-31
Jólaguðspjallið Lúk. 2:1-20
ingum er fólginn mikill lífskraftur og
lækning fyrir framtíðina. Þess vegna
er mikilvægt að við séum góð hvert
við annað um aðventuna sem
endranær.
Hugmyndir fyrir hvern sunnudag
Fyrsti sunnudagur í aðventu.
í dag kveikjum við á Spádóma-
kertinu, kerti vonarinnar. Þetta kerti
minnir okkur á að það var löngu
sagt fyrir að Jesús kæmi í heiminn
til þess að vera Messías. Það segir
okkur líka að koma hans var engin
tilviljun. Látum vonina búa í hjörtum
okkar um að Jesús, hinn sanni
Messías, komi aftur. Lesið um ferð-
ina til Betlehem, Lúkas 2:1-5.
Þennan sunnudag getum við
notað til að tala eða lesa um hvað
gerist þegar lítið barn fæðist.
Hvernig það var þegar okkar börn
fæddust. Við skoðaðum gamlar
myndir, og rifjum upp gamlar minn-
ingar úr barnæsku. í vikunni má
taka saman föt og annað sem þið
ætlið að gefa þeim sem eru þurf-
andi. Þið getið sett upp jóladagatal,
við höfum líka lesið saman úr
Sögum mánaðarins (desember-
hefti) eftir sr. Jón Kr. ísfeld. Einnig
er hugmynd að setja sér ný andleg
takmörk á nýju kirkjuári.
Við eigum litlar styttur sem
mynda fæðingarsvið Jesú. Þessar
styttur tökum við fram í þessari eða
næstu viku, byrjum að raða þeim
upp, stundum bara einni í einu. En
við biðum alltaf með að setja Jesú-
barnið í jötuna þangað til á
aðfangadagskvöld. Á þessum degi
setjum við líka upp sjöarma
aðventuljós og minnumst þess að
Jesú er hið sanna Ijós. Talan sjö er
oft nefnd í Biblíunni og er tákn um
heilagleika, Jesús verður ekki bara
hið sanna Ijós heldur einnig hið
heilaga Ijós.