Bjarmi - 01.12.2004, Blaðsíða 37
eigum við að gera, lofa hann og
tigna. Lesum um „heimsókn vitring-
anna“ Matteus 2:1-2, 9-11.
Þennan sunnudag ert.d. hægt
að láta börnin leika einhverja
jólasögu, kannski ykkar eigin börn
og vini þeirra. Reynum að fara í
heimsókn til vina eða ættingja,
sérstaklega þeirra sem eru sjúkir
eða eiga ekki heimangengt af ein-
hverjum orsökum. Við reynum að
tala um hvernig og hvers vegna
Jesús er þessi stærsta gjöf Guðs
sem við eigum. Undirbúum matinn
og setjum upp og skreytum jólatré.
Söfnum saman gjöfunum og dreif-
um þeim á rétta staði.
Aðfangadagskvöld.
í kvöld kveikjum við á Krists-
kertinu, hvita kertinu í miðjum
kransinum. Það minnir okkur á
hreinleikann og að Jesús dó sem
hinn óflekkaði fyrir okkar syndir og
hans blóð hreinsar okkur af allri
synd. Hann sigraði dauðann með
upprisu sinni og klæddist hvítum
skrúða réttlætis. Hann er hið sanna
Ijós, sem við söfnumst saman um.
Og kertin fjögur; vonin, kærleikur-
inn, gleðin og friðurinn lýsa upp
hjörtu okkar ásamt hinu sanna Ijósi,
Jesú Kristi. Við lesum saman jóla-
guðspjallið og setjum Jesúbarnið i
jötuna (fæðingarsvið). Aðfanga-
dagskvöldi Ijúkum við venjulega
með þakkarbæn.
Æskilegt er að láta ekki leikinn
hætta hér, því það er einnig hægt að
halda áfram að vera með aðventu-
leikinn og kransinn fram á þrettánda
t.d. með að færa vitringana I annað
herbergi og færa þá síðan nær
jötunni á hverjum degi þannig að
þeir eru komnir þangað þann 6.
janúar en þá minnumst við þeirra
(opinberunarhátíð).
Yfirleitt notum við ekki kransinn
eftir að jólin hefjast, en það er alveg
tilvalið að láta loga á honum fram
að þrettánda.
Þetta er sá tími sem við getum
t.d. notað til þess að biðja fyrir
þeim sem sendu okkur jólakort. Þá
getum við tekið t.d. 1-3 jólakort á
hverjum degi og beðið sérstaklega
fyrir þeim fjölskyldum og einstak-
lingum sem sendu kortin. Þetta
getum við gert t.d. við matarþorðið
áður en við borðum saman eða á
öðrum tíma.
Aðventan er ein af þeim hátíðum
kirkjunnar sem hægt er að halda
jafnt á heimili, í skóla sem og
kirkju. Aðventan er því tími sem við
getum notað til að sameina fjöl-
skylduna.
í okkar huga er aðventan tími
sem við hlökkum til, en þessi tími
er oft mjög annasamur, ekki síst hjá
þeim sem taka virkan þátt í starfi
kirkjunnar. Því vill oft spenna og
streita einkenna hann. Þess vegna
er mikilvægt að reyna að finna ein-
hvern afmarkaðan tíma þar sem við
stöldrum við og (hugum Guðs orð.
Á aðventunni reynum við því að
hafa allt í lágmarki svo sem hrein-
gerningar og viðhald og þess háttar.
Við bara gerum það seinna.
Lesandi góður! Við vonum að í
þessum fáu orðum um aðventuna
hafir þú fundið eitthvað nytsamlegt
um það hvernig aðventan geti orðið
þér hátíðleg og innihaldsrík.
Málfríöur er leikskólakennari
en Ragnar Snær æskulýðsfulltrúi.
rsk@kfum.is.
37