Búnaðarrit - 01.01.1969, Síða 40
30
BÚNAÐARRIT
ráði og í stjórn sýningarinnar og hverjir voru ráðnir
aðalstarfsmenn liennar.
Starfsfólk Búnaðarfélags Islands, bæði ráðunautar og
aðrir, lögðu á sig mjög mikla vinnu við undirbúning
sýningarinnar. Var þó reynt að lialda öllum venjulegum
störfum félagsins í sem eðlilegustu horfi. Varð því starfs-
fólkið að fórna miklu af eigin tíma í undirbúning sýn-
ingarinnar. Sérstök ritgerð verður birt um Landbúnaðar-
sýninguna 1968, og því ekki þörf að fjölyrða um liana
hér.
Sýningin tókst með afbrigðum vel, og má þakka það
samstilltu átaki allra þeirra, sem skipulögðu sýninguna,
stjórnuðu henni og voru þátttakendur í henni á einn eða
annan hátt, og því, live veður var frábærlega gott og
fagurt, meðan sýningin stóð. Sýninguna sóttu um 80 þús.
gestir, og var liún því fjölsóttasta sýning, sem lialdin
liefur verið liér á landi. Þrennt virtist vekja allra mestan
áliuga sýningargesta — búféð, hlunnindadeildin og þró-
unardeildin, — en allt, sem sýnt var, virtist draga að sér
athygli gestanna. Búnaðarfélag Islands þakkar öllum,
sem að sýningunni stóðu á einn eða annan hátt, fyrir
allt, sem þessir aðilar lögðu á sig til að gera sýninguna
það, sem liún varð.
Sýningin mun hafa náð tilgangi sínum. Gestirnir munu
liafa farið heim margvísari um landbúnaðinn og gildi
hans fyrir þjóðina fyrr og síðar.
Djúpfrysting nautasœSis. Undirbúningur þessa máls
var skýrður ýtarlega í ritinu Til Búnaðarþings 1968, bls.
10—13. Búnaðarþing 1968 hafði málið til meðferðar og
samþykkti ályktun um það, sjá Búnaðarþing 1968, bls.
50—51, þar sem stjórn Búnaðarfélags Islands var falið að
lialda áfram undirbúningi í þessu máli.
Nokkuð liefur verið unnið að málinu. Búnaðarfélag
Islands veitti þeim Sigurmundi Guðbjörnssyni, forstöðu-
manni Kynbótastöðvarinnar í Laugardælum og Diðriki
Jóhannssvni, forstöðumanni Búfjárræktarstöðvar Vestur-