Búnaðarrit - 01.01.1969, Blaðsíða 43
SKÝRSLA BÚNAÐARMÁLASTJÓRA 33
væntanlega djúpfrystingarstöð, en hann hafði gert áætl-
un um slík kaup í samráði við sérfræðinga þá, sem til
Noregs fóru, og getið er hér að framan. Þá var og leitað
til Áburðarverksmiðjunnar hf. um, hvort hún gæti fram-
leitt og selt nauðsynlegt köfnunarefni fyrir væntanlega
djúpfrystingarstarfsemi. Verksmiðjan gaf jákvætt svar
við því.
Stjórnir Kynbótastöðvarinnar í Laugardælum og Bún-
aðarsambands Suðurlands óskuðu fmidar með stjórn Bún-
aðarfélags Islands, áður en staðsetning djúpfrystingar-
stöðvarinnar yrði ákveðin. Sá fundur var haldinn 20.
nóv. Eftirfarandi bókun var gerð á fundinum:
„Mættir voru á fundinum fulltrúar Laugardælabúsins,
þeir Páll Diðriksson, Hjalti Gestsson, Eggert Ólafsson,
Hermann Guðmundsson og Sveinn Einarsson, til viðræðna
við stjórn Búnaðarfélags Islands um undirbúning djúp-
frystingar nautasæðis og framkvæmd þess máls. Hafði
Hjalti Gestsson framsögu af liálfu þessara fundarmanna,
og auk þess tóku flestir þeirra til máls. — Kom þar
greinilega fram, að þeir töldu, að sæðingarstöðin væri
bezt sett í Laugardælum og tilboð þeirra um leigu á
stöðinni væri liagkvæmt, auk þess sem einnig lægi fyrir
tilboð um sölu.
Lögðu þeir ríka álierzlu á, að Laugardælastöðin yrði
fyrir valinu, og einn fundarmaður gaf í skyn, að líkur
væru fyrir, að sunnlenzkir bændur myndu skerast úr
leik, ef fram hjá Laugardælum yrði gengið.
Búnaðarmálastjóra var falið að ákveða fund til fram-
haldsumræðu um málið og verði fundurinn í næstu viku.“
Hinn 5. desember gerði stjórn Búnaðarfélags Islands
bókun um þetta mál:
„Fyrir var tekið að ákveða djúpfrystingarstöð nauta-
sæðis fyrir landið allt. Þeir Ásgeir Bjarnason og Pétur
Ottesen samþykkja fyrir sitt leyti, að stöðin á Hvanneyri
verði valin og skírskota í því efni til tillagna fagmann-
anna Ólafs E. Stefánssonar, nautgriparæktarráðunautar