Búnaðarrit - 01.01.1969, Síða 118
108
BUNAÐARRIT
ennþá ekki verið sýndir, en ég vænti þeirra á fjórðungs-
mót á Norðurlandi á komandi sumri. Leiguhestar voru
19 talsins. Þá var Roði 639 frá Árnanesi, A.-Skaft. notað-
ur á Dalvík á vegum Hestamannafélagsins Hrings. Ég
gat því miður ekki farið á aðalfund sambandsins sl. haust,
sem lialdinn var í Húnaveri. Þeir sýndu á Landbúnaðar-
sýningunni ’68 tvo stóðhesta: Þokka 607 frá Viðvík,
Skag. og Eyfirðing 654 frá Akureyri.
Kynbótabú og félög
HrossarœktarfélagiS Skuggi í Borgarfirði fékk framlag
að upphæð kr. 21.329,04 — fyrir árið 1967. Það hafði á
sínum snærum 40 hryssur. Þær áttu 21 folald í vor. Þar
af voru 8 undan Kvisti 640, 4 undan Hrafni 583, 3 undan
Braga 542, og færri undan öðrum hestum.
Á sl. sumri var notaður 2ja vetra stóðhestur á vegum
félagsins, ÞOKKI frá Bóndhóli, Mýrasýslu. Hann er son-
ur Nökkva 260 og Litlu-Jarpar í Bóndhóli, sem var al-
systir Baldurs 449. Verður fróðlegt að sjá, hvernig þessi
foli reynist, en liann er í flokki yngstu afkvæma Nökkva
260. Eru að sjálfsögðu bundnar við liann miklar vonir,
enda er folinn fallegur. Ég skoðaði liross félagsmanna
og mældi allt ungviði dagana 7. og 8. nóv.
HrossakynbótabúitS í Kirkjubœ fær sitt framlag beint
úr ríkissjóði. Ilinn kunni stóðhestur búsins, Ljúfur 353
frá Blönduósi var felldur á haustnóttum 1967, 21 vetra.
Aðalstóðhestur þar er nú Hylur frá Kirkjubæ, sem aldrei
hefur komið á sýningu, nú 6 vetra. Hann er fallegur
liestur og verður taminn til þrautar á þessum vetri. Ég
skoðaði hrossastofninn dagana 12. nóv. og 8. des. Síðari
daginn voru þar Vestlendingar, stjórn lirossaræktarsam-
handsins, að velja sér stóðhestsefni.
Búið sýndi Árvak 651 frá Kýrholti, Skag. á Landbún-
aðarsýningunni ’68. Hann er óráðinn sem kynbótahest-
ur og hefur lítið verið notaður til þessa.