Búnaðarrit - 01.01.1969, Síða 122
112
BÚNAÐARRIT
Alls voru í landinu 88 gyltueigendur (svínabændur),
sem áttu alls 572 undaneldisgyltur (eldri en 8 mánaða)
og 6384 svín alls. Þessi stofn mun gefa af sér um 570
tonn af svínakjöti á ári.
Stærsta svínabúið bafði 90 gyltur. 5 svínabændur áttu
25—32 gyltur, 10 bændur áttu 10—20 gyltur, en 58 af
þessum svínabændum áttu 5 gyltur eða færri. Hins vegar
áttu 38 menn eina eða tvær gyltur, og verða þeir naum-
ast kallaðir svínabændur. Flestir þessir einnar- eða-
tveggja-gyltueigendur bjuggu í Árnes- og Rangárvalla-
sýslu.
Þótt 5 gyltur gefi af sér svipað afurðamagn og einar
250 ær, vil ég vart kalla þá menn, sem þann stofn eiga,
svínabændur. Það verða því varla taldir fleiri en 30 svína-
bændur í landinu, og liafa þó aðeins 6 þeirra svo stóran
stofn, meira en 25 gyltur, að gott megi teljast með tilliti
til afkomumöguleika og framleiðslukostnaðar.
Nokkurt starf lagði ég í undirbúning Landbúnaðar-
sýningarinnar, og voru með mér í undirbúningsnefnd í
þessum búgreinum þeir Jón GuSmundsson á Reykjum,
Þorvaldur GuSmundsson, kaupmaSur í Reykjavík, eig-
andi stærsta svínabúsins í landinu, en auk þess einnig
Einar Tönsberg í Reykjavík og Þórarinn Sigurjónsson í
Laugardœlum. Voru myndarlegar og vel skipulagðar sýn-
ingardeildir á Landbúnaðarsýningunni í Laugardalnum
bæði frá alifuglaeigendum og svínabóndanum, Þorvaldi
Guðmundssyni. Svínabændur hafa enn ekki myndað með
sér nein félagssamtök. Hins vegar er orðið fullkomlega
tímabært, að slíkt félag verði stofnað, bæði til varnar
þessari framleiðslugrein og til að skipuleggja betur fram-
leiðslu og sölu afurðanna. Ég teldi rétt, að þeir bændur
einir, sem eiga t. d. 10 gyltur eða fleiri, stofni félag svína-
bænda og þeir vinni gegn svínakjötsframleiðslu sem
aukabúgrein, því að það er ekki þörf á að fylla landið
af óseljanlegu svínakjöti, sem framleitt er sem aukabú-
grein lijá mörgum, heldur þarf að gera þessa búgreiu