Búnaðarrit - 01.01.1969, Síða 147
SKYRSLUR STARFSMANNA
137
Eyðing svartbaks
Samkvæmt skýrslum, sem mér liafa borizt í hendur,
voru unnir á árinu 1967 alls 8.062 fuglar, ungir og full-
orðnir. Hins vegar veit ég, að mun fleiri liafa verið
drepnir, þó að þess sé ekki getið í skýrslum. Saman-
lagður kostnaður við eyðingu þessara 8062 svartbaka
árið 1967 varð kr. 120.325,00.
Á sl. ári var minna unnið að eyðingu svartbaks en
árið áður. Nokkrum varpbændum var útvegað svefnlyf
til að verja varplönd sín, og liefur það yfirleitt gefið
góða raun.
Ný lög um fuglaveiðar og fuglafriðun hafa tekið gildi,
og samkvæmt þeim hefur menntamálaráðuneytið yfir-
umsjón allra mála, sem varða fuglaveiðar, í samráði við
fuglafriðunarnefnd, og mun nú vera í undirbúningi reglu-
gerð um þessi mál.
Veiðihundar
Hundabúið er enn slarfrækt með sama fyrirkomulagi og
áður. Carl A. Carlsen sér um hirðingu og vörzlu hund-
anna, þjálfar þá og temur frá byrjun, og geta veiðimenn
víðs vegar um landið fengið þaðan góða veiðilmnda.
Keynslan liefur sýnt, að án þeirra væri illmögulegt að
verjast ágangi og frekari fjölgun villiminka á Islandi.
Áhugaveiðimenn hafa unnið mjög þarft verk með
hundum sínum við eyðingu minka um alll landið.
Samanlagður kostnaður í liverri sýslu er fyrir grenja-
leit og verölaun fyrir unnin dýr. Kostnaðurinn getur
verið mjög mismunandi, ef miðað er við dýrafjölda, sem
vinnst á hverjum stað, eins og t. d. í Gullbringu- og
Kjósarsýslu, þar eru grenin mjög mörg, sem leitað er
á, en refir fundust ekki í neinu þekktu greni. Vant-
ar nú ekki nema herzlumuninn á, að búið sé að útrýma
refum mcð öllu í þessum sýslum, en meðan vart verður