Búnaðarrit - 01.01.1969, Síða 227
LANDBÚNAÐURINN
217
dagar sæmilegir. Kom þá nokkur sauðgróður víðast hvar
á landinu, sízt minni norðanlands en snnnan. Síðari liluti
júní var með eindæmum kaldur, var hiti marga daga rétt
við frostmark, og snjóaði daglega á Norðurlandi um
Jónsmessuleytið. Var þá dag eftir dag alhvítt niður að
sjó á morgnana, en um miðjan daginn tók upp á lág-
lendi, en snjór liélzt og óx dag frá degi til hálsa og fjalla.
Tók þá fyrir sprettu, sem lítil var fyrir, svo að útliagi,
þar sem fénaður gekk, gránaði upp í síðari liluta júní,
þ. e. fénaðurinn beit meira en spratt á sama tíma.
Fyrstu 6 mánuði ársins var meðalliitinn 2° C lægri en
í meðalári. 1 janúar og febrúar var liitinn 1,9° C lægri en
í meðalári, í marz 3,1° C lægri, í apríl 1,1° C lægri, í maí
2,3° C lægri og í júní 1,7° C lægri en í meðalári.
Hafísinn fór að nálgast landið í janúar. I byrjun marz
var hann kominn ískyggilega nærri Vestfjörðum, og upp
lir miðjum marz tók liann mjög að nálgast Norðurland
og í byrjun apríl lá ís fyrir öllu Norðurlandi og Vest-
fjörðum. Snemma í apríl færðist liann suður með Aust-
fjörðum, og varð liann þá víða landfastur. Siglingar
tepptust um skeið á inargar hafnir og voru alllengi ó-
greiðfærar, hættulegar og kostnaðarsamar fyrir skipa-
félögin.
I byrjun maí var bafís fyrir öllu Norður- og Austur-
landi frá Kögri allt suður undir Hvalsnes. Einnig lá þá
ískurl langt suður með Vestfjörðum. Isinn lónaði nokkuð
frá landinu austanverðu síðari bluta maí, og auðveldaði
það siglingar þar. Fyrstu viku júní óx ísinn mjög við
Horn og á Húnaflóa og þá fylltust innfirðir lians. Þá var
Eyjafjörður einnig mjög fullur af ís. I lok júní var sigl-
ingaleið orðin greið fyrir Horn og austur um land, en ís-
hrafl lá víða inni á fjörðum langt fram á sumar.
Bændur voru ekki vel búnir undir að mæta þessum
langa og kalda vetri og eindæma kalda vori, vegna þess
að lieyforði var með allra minnsta móti á liaustnóttum
1967, bæði af völdum mikilla kalskemmda í túnum þá