Búnaðarrit - 01.01.1969, Síða 230
220
BÚNAÐARRIT
óþnrrkasamt. Heyskaparlok gengn vel á norðanverðu
landinu, og varð lieyfengur ]>ar víða meiri og betri en
nokkurn gat órað fyrir í júnílok, þótt hann yrði nauða-
lítill, þar sem túnin voru mest skemmd. Á Austurlandi
var lieyskapartíð hagfelld fram eftir sumri, en með ein-
dæmum óþerrisöm síðari Iiluta ágúst og í september og
október. Urðu liey þar úti, einkum í Neðra, og verið var
að reyta hrakninginn saman fram í nóvember.
Ágúst var 0,4° C kaldari en í meðalári, september 1,1°
C hlýrri, en október 1,7° C kaldari en í meðalári. Nóv-
ember var með eindæmum lilýr eða 2,2° C hlýrri en
meðaltal og desember var í meðallagi. Haustmánuðirnir,
sept., október og nóvember voru bændum víðast mjög
Iiagfelldir. Þó gerði hríðarskot um norðanvert landið í
lok september. Sá snjór var lengi að hverfa, og var fé að
skríða úr fönn lengi eftir liríðina. Fjárskaðar urðu þó
ekki miklir. Gróður sölnaði seint, og Iiélt fé óvenju vel
holdum frain eftir liausti. Sauðfé lá víða úti fram í des-
ember, en sumir fóru að liýsa fyrr og gefa örlítið af
kjarnfóðri, en næg jörð var um land allt til ársloka.
Þetta góðviðrissama liaust og mildu vetrarmánuðir var
góður sumarauki og bændum til mikils fóðursparnaðar,
]>ótt betra hefði verið að fá vorið á réttum tíma og vetur
með vetri.
AburSarnotkun. Heihlarn otkun tilbúins áburðar síð-
ustu 4 ár hefur verið: 1968 1967 1966 1965
smál. smál. smál. smál.
Köfnunarefni, lireint N 12.002 11.428 10.537 10.175
Fosfóráburður, P..0 6.711 5.894 5.695 5.702
Kalíáburður, K,,Ö 5.089 4.175 3.497 3.313
Á árinu 1968 var notað meira af öllum áburðarefnum
en nokkru sinni áður. Miðað við árið 1967 óx notkun
hreins köfnunarefnis N um 574 smálestir eða 5,0%,
fosfórsýru P20- um 817 smálestir eða 13,9% og kalí
K20 um 914 smálestir eða 21,9%. Aukningin er ótrúlega