Búnaðarrit - 01.01.1974, Síða 98
92
B ÚNAÐARRIT
Guðnasyni og flutti þar einnig stutt erindi um liagkvæmni
í sauðfjárrækt.
Ég mætti á viku námskeiði í tölvunotkun, sem er nauð-
synlegt vegna þess, live mikið þarf að nota það tæki við
uppgjör fjárræktarfélaganna. Mestur tími fór í uppgjör
á skýrslum f járræktarfélaganna, en einnig fór mikill tími
í uppgjör afkvæmarannsókna, einkum afkvæmarann-
sókna í Austur-Skaftafellssýslu, enda liafa þær verið meiri
þar en annars staðar. Niðurstöður þess uppgjörs og ýmis
fróðleikur um þær var fjölritaður og látinn ráðunautum
í té. Einnig skrifaði ég um tilhögun á uppgjöri á afkvæma-
rannsóknum og lét fjölrita. Ég skrifaði grein um fjár-
ræktarfélögin í Búnaðarritið, greinar í Frey, tvær greinar
í Búnaðarblaðið og 3 greinar koma í Handhók bænda
1974. Tvær eru stuttar, en ein, um hrúta á sæðingarstöðv-
um, er alllöng. Hef ég varið nokkrum tíma í það á árinu
að afla upplýsinga um lirúta, sem verið hafa á stöðvunum,
og eins lirúta, sem ætlunin hefur verið að taka inn á slöð.
Ég lief áfram starfað með Stefáni Aðalsteinssyni, Inga
Tryggvasyni, Agnari Tryggvasyni og Bagnari Ólafssyni í
s. k. ullar- og gœrumatsnefnd, og hefur nefndin að lieita
má lokið störfum. Þá hef ég unnið lítillega að hunda-
rœktarmálum og skrifaði smágrein í sýningarskrá Hunda-
ræktarfélags Islands vegna hundasýningarinnar í Hvera-
gerði á s. 1. sumri. Mætti ég þar og afhenti verðlaun, sem
Búnaðarfélagið gaf bezta íslenzka og bezta skozka hundi
sýningarinnar. Þá kenndi ég nokkra tíma á námskei&i
fyrir sœ&ingarmenn, er Búnaðarfélagið hélt í nóvember.
Fleiri verkefni mætti nefna, er hér voru nefnd í fyrra,
s. s. flutning hriitasæ&is í Örœfasveit, en það var í fyrsta
skipti gert haustið 1972 og fengu öræfingar lömb úr
þessum sæðingum á árinu 1973. Reynt var að koma sæði
aftur til öræfinga í desember s.l., en það mistókst, því
miður, og tefst því áætlunin um eitt ár. Beitartilraunin á
Brei&amerkursandi hélt áfram, en ég hafði lítil afskipti
af henni.