Búnaðarrit - 01.01.1987, Blaðsíða 83
SKÝRSLUR STARFSMANNA
65
Kubbur 72511 (8644, 5/5, 362), Sopi 84004 (3760, 5/5,
312), Steggur 84014 (7600, 5/5, 282), Flugar 84025 (0, 5/5,
212), Rosi 84032 (0, 5/5, 242), Lindi 84034 (0, 5/5, 225),
Unnar 84035 (0, 5/5, 220), Gusi 84037 (0, 5/5, 237), Suðri
84023 (7600, 12/6, 226), Merkúr 84028 (7600, 12/6, 258),
Belgur 84036 (766, 12/6, 282), Vopni 85001 (0, 12/6, 225),
Núpur 85015 (0, 12/6, 173), Skalli 84028 (7600, 8/7, 268),
Þistill 84013 (7400, 5/11, 346), Eyrir 84039 (6112, 5/11,
246), Þokki 85017 (0, 5/11, 191), Vestri 85025 (0, 5/11,
228), Flórgoði 84031 (7400, 4/12, 288).
Meiri brögð voru á því en áður að fá ekki sæði með
nægilegum gæðum til frystingar. Af þessum sökum varð að
farga 12 nautum og úr 3 náðist ekki að frysta það magn,
sem ákveðið hafði verið.
Á skrifstofunni voru reikningshald og viðskiptaerindi
aðalverkefnin. Innheimt voru gjöld af 34279 kúm til að ná
85% þátttöku búnaðarsambandanna.
í september heimsótti ég 8 frjótækna á Vestfjörðum og
Vesturlandi, 3 þeirra höfðu útskrifast af námskeiði haustið
áður. í október sat ég aðalfund Frjótæknafélags íslands í
Reykjavík.
Starfsmaður við Nautastöðina auk mín er Ingimar Ein-
arsson og þakka ég honum vel unnin störf. Eins og undan
farin ár hirti ég nautin þá daga, sem hann var að heiman, og
sunnudaga, alls 126 daga. Eg þakka öllum ánægjuleg
samskipti á árinu.
Ritaö í janúar 1987,
Diðrik Jóhannsson
6