Búnaðarrit - 01.01.1987, Blaðsíða 347
LANDBÚNAÐURINN 1986
329
Áætlað er að gróðursett hafi verið í um 12 km löng
skjólbelti, en 5,8 km árið 1985.
Byggingarframkvœmdir, sem framlags njóta af jarðræktar-
Iögum, hafa í heild dregist saman. Byggt var um 22% meira
af þurrheyshlöðum, um 13% meira af votheysgeymslum,
um 25% minna af áburðargeymslum og 3% minna af verk-
færageymslum en árið 1985. Loðdýrahús njóta nú nokkurs
framlags og er áætlað að byggðir hafi verið loðdýraskálar
að samanlögðu flatarmáli 27.000 m:, sem er 30% minna
(38.090 m2) en árið 1985.
Nokkrar helstu jarðræktarframkvæmdir hafa orðið sem
hér segir á undanförnum árum:
1981 1982 1983 1984 1985 1986
Nýrækt túna, ha ................ 1.902 1.809 1.732 3.712 1.438 1.161
Endurræktun túna, ha ........... 1.721 1.410 1.181 1.419 1.332 1.441
Skurðgröftur, niillj. nv’ ........ 2,4 4.7 4,6 6,4 4,9 2,0
Plógræsi, km ................... 104,7 869,7 293,7 841,3 1209,0 0
Þurrhcyshlöður, m’ ........... 65.377 80.603 52.654 48.292 16.380 16.331* 1)
Vothcyshlöður, m’.............. 35.117 34.113 23.312 55.024 28.840 28.577
Áburðargcymslur, m’ ........... 56.064 70.572 53.737 57.706 29.032 20.064
Vcrkfæragcymslur m’............. 9.598 10.716 6.840 7.323 3.276 4.952
Loðdýrahús, m2 ............... 38.090 34.882
') m2
Lánveitingar til framkvœmda
Lánveitingar Stofnlánadeildar landbúnaðarins endur-
spegla samdráttinn í framkvæmdum vegna hinna hefð-
bundnu búgreina. Lán til fjárhúsa- og fjósbygginga eru nú
ekki nema brot af því, sem þau voru fyrir 8 eða 10 árum.
1 stað þessa hefur það aukist, sem lánað er til ýmissa
annarra hluta, einkum þó til loðdýraræktarinnar.
Heildarlán til framkvæmda í landbúnaði, þar með taldar
vinnslustöðvar, liafa þó dregist mjög saman síðustu tíu árin
eða meira en um 50% reiknað á föstu verðlagi.
Nú voru veitt 58 lán til fjósbygginga á móti 84 árið áður,
17 lán til fjárhúsbygginga, en 24 árið áður, 25 lán út á
þurrheyshlöður (22) og 37 út á votheyshlöður (44). Til