Búnaðarrit - 01.01.1943, Blaðsíða 2
Tilkynning.
Árið 1950 verður efnt til samkeppnissýningar á stóð-
hestum á Þingvöllum. I3eir liestar, sein mæta þar, þurfa
að fullnægja eftirtöldum skilyrðum:
1. Vera á aldrinum 5—12 vetra.
2. Hafa votlfesta æltskrá í minnst þrjá ættliði.
3. Hafa fagra, lirausta og lýtalausa byggingu.
4. Vera minnst 138 cm á liæð (bm).
5. Vera einlitir, en mega þó liafa leista og mjóa blesu,
ef granir eru dökkar. Menn skulu forðast óhreina liti.
6. Vera vel tamdir og hafa eiginleika reiðhestsins i sem
ríkustum mæli, þ. e. fjör og léttleika, fjölbreylni og
hreinleika í gangi og hreyíingum.
7. Minnst 5 afkvæmi, tveggja vetra eða eldri, þurfa að
fylgja hverjum hesti.
8. Hestar þeir, sem verða verðlaunaðir, verða að vera
falir hestamannafélögunum fyrir fyrirfram ákveðið
verð, ef óskað er. Kaupverðið verður ákveðið af
dómnefndum og verður miðað við liált reiðlieslaverð,
eins og það verður á þeim tíma.
Á sýningunni verða veitt verðlaun á 3 liesla, sem verða:
1. verðlaun, minnst 3000 ltr.
2. — — 2000 —
3. — — 1000 —
Auk þess fá eigendur hestanna skrautrituð heiðurs-
skjöl, með mynd af liestum sínum.
Meðan ekki er stofnað landssamband liestamanna-
félaga fara formenn hestamannafélaganna Fáks í Reykja-
vík, Faxa í Borgaríirði, Sleipnis í Árnessýslu og Glaðs í
Dalasýslu með framkvæmd þessara mála og auk þess
ráðunautur Búnaðarfélags íslands í hrossarækt, en síðar
sljórn landssambandsins, þegar það er myndað.