Búnaðarrit - 01.01.1943, Blaðsíða 62
Bóndinn og bújörðin.
Eftir Gunnl. Kristmundsson.
I.
„Náttfari, cr ine'ð Garðari hafði
út farit, cignaði scr áðr Reykja-
dal, ok liafði merkt á viðuin.
en Eyvindur rak hann á braut
og lét hann hafa Náttfaravik."
( Landnáma)
Náttfari var fyrsti maðurinn, sem hér á landi tók
sér fastan bústað, ætla mætti að honum hafi verið
frjálst, hvar hann settist að. Eyvindur kom á eftir
honuni. Faðir hans var Þorsteinn höfði hersir á
Hörðalandi í Noregi. Eyvindur tók land það, sem
Nátlfari httfði merkt sér, og rak hann á braut.
Þannig segir sagan frá þeim fyrstu, sem land námu
í Þingeyjarsýslu. Reykjadalur hefur verið hlýlegur,
þar er blómleg og búsældarleg sveit. Landið var skógi
vaxið og heitar uppsprettur, haglendi ágætt og gott
til veiðifanga, hvort sem sótt var að sjó, Laxá eða
Mývatni. Þetta sá Eyvindur og „lét Náttfara fá Nátt-
faravík", þar voru landkostir ekki betri en svo, að
þar mátti hann vera. Norska hölðingjavaldið segir
til sín, liðstyrkur og beittar sverðseggjar ákveða eign-
arrétt og skapa réttlæti. Sigraðir menn verða að sætta
sig við allt.
Frá öndverðu hafa Iífskjör hænda hér á landi verið
næsta misjöfn og ólík. Þegar landið byggðist fyrst,.
voru það tiltölulega fáir menn, sem slóu eign sinni á
það. Þeir helguðu sér land, hver um sig, sem næst.