Búnaðarrit - 01.01.1950, Blaðsíða 42
38
BÚNAÐARRIT
þaS sem hér greinir: Ágrip af jarSvegsfræði, í Bún-
aSarritinu 1890, Um jarðveginn, í Frumatriði jarð-
vrkju 1915, og fjölritaðar kennslubækur í jarðfræði,
steinafræði, mjólkurfræSi og hagfræði. Auk þessa
talsvert margar blaðagreinar, einkum um búnaðar-
mál, lýsing af Hólum í Hjaltadal, i NorSanfara 1882,
greinar í Minningarriti Hólaskóla 1907 o. s. frv.
Einkahagir.
Jósef var þrikvæntur. Fyrsta kona hans var Krisl-
rún Friðbjarnardóttir bónda á Fyrirbarði í Fljótum
Guðmundssonar. Hann kynntist henni á Hraunum
i Fljótum og gekk að eiga hana 24. októbcr 1881 í
Holtskirkju í Fljótum. Kristrún var fædd 25. ágúst
1862, en andaðist úr mislingum á Hólum 18. júlí
1882 og sonur þeirra Einar.
Önnur kona hans var Hólmfríður Björnsdóttir
bónda í Ásgeirsbrekku Pálmasonar. Þau giftust 24.
ágúst 1884. Hún var fædd 2. febrúar 1860. Hún and-
aðist 22. maí 1894. Varð þeim hjónum alls 7 barna
auðið. Frú Hólmfríður var framúrskarandi kona,
dugleg með afbrigðum, ágætlega verki farin og stjórn-
s'öm og betur mennt en almennt gerðist í þann tima.
Hygg ég að ])jmgsta raun Jósefs á ævinni hafi verið
að missa Hólmfríði frá 6 ungum börnum þeirra.
l’riðja og síðasta kona Jósefs var hálfsystir H<)lm-
fríðar (að föðurnum) Hildur, fædd 1. júlí 1881.
Giftust þau 21. april 1898. Lifir hún enn, búsett á
Akureyri. Varð þeim hjónum alls 6 barn^ auðið.
Af fjórtán börnum Jósefs eru sex dáin: Einar,
Sigríður (dó 18 ára), barn, er dó með móður sinni
úr mislingum 1894, Guðmundur, Sigriður og Róar.
Þau sem lifa eru þessi: Björn, héraðslæknir á Húsavík,
Kristrún, húsfreyja í Reykjavík, Ingibjörg, stundar
bjúkrunarstörf i Reykjavík, Hólmjárn, efnafræðingur