Búnaðarrit - 01.01.1950, Blaðsíða 95
BÚNAÐARRIT
91
griparæktarsamband Borgarfjarðar álcvað að hefja
sæðingarstarfsemi í ársbyrjun 1949, en það verður
erfitt og dýrt í Borgarfirði, vegna þess hve byggðia
er margskipt og dreyfð og því manna- og bílafrekt
að fara með sæðið um héraðið.
Nautgriparæktarfélög í Rangárvallasýslu hat'a
myndað samband innan sýslunnar, og byrja starfsemi
sína með árinu 1949. Eru líkur til að þátttaka bænda
þar verði almenn í félagsskapnum, en þó sker reynslan
ein úr því, og þó sérstaklega úr hinu, hve haldgóð
þátttaka þeirra verður. í Skagafirði og Þingeyjarsýslu
er talað um stofnun sambanda meðal nautgriparækt-
arfélaganna, en á hvorugum staðnum er það komið á
stol'n enn. Þá er enn talað um nautgriparæktarfélög
í Dölum vestur, og ráðgert að stofna þar nokkur, enda
eru Dalamenn nú orðnir þátttakendur í þeim félags-
skap bænda, er selja mjólk til Reykjavíkur, en mörg-
um bóndanum fer svo, að augu hans opnast betur en
áður fyrir nauðsyn þess, að eiga góðar kýr, þegar
hann fer að selja mjólk frá sér daglega, enda er mikill
munur á því, hvort hann selur 3400 lítra að meðaltali
úr kú á ári, eða 1100 lítra, en þessar tölur tvær eru sem
næst það liæsta og lægsta meðaltal, sem þeir bændur
selja nú, er senda mjólk sína að staðaldri til sölu.
Samband nautgriparæktarfélaganna í Eyjafirði
starfaði eins og áður í nánu samstarfi við Mjólkur-
samlagið. Það hefur nú sætt kýr í nokkuð á þriðja ár
og hel'ur starfsemin gengið vel. 1947 voru sæddar um
1800 kýr og 1948 um 2500. Ekki hafa fleiri kýr gengið
upp af þeim, sem sæddar hafa verið, en gerist og
gengur venjulega þegar kúm er haldið. Sambandið sér
nú um allt nautahald á svæðinu, bæði þau, sem eru
á sæðingarstöðinni, og hin, sem höfð eru í hreppun-
um, og sem notuð eru, náist ekki í stöðina, eða sé
ekki fært að flytja sæðið (t. d. vegna ófærðar) til
manna. Nautstollarnir eru jafnir um allt svæðið,