Búnaðarrit - 01.01.1950, Blaðsíða 120
116
BÚNAÐARRIT
veðurfarsgöllum, er tálmuðu not hitans á allan gróður
og nýtingu hans.
Júní var í meðallagi hlýr, sólríkur, en naut illa vegna
misturs í lofti, sem var mun tíðara en áður. Var ösku-
fallið mest 11.—15. og svo 18. júní. Kýr voru eigi
komnar á góða beit fyrr en um Jónsmessu, en grasið
var eigi lystugt, því ryk og fín aska var oftast á öllu
grasi. Gróðri fór afar hægt fram, einkum fram yfir
miðjan mánuðinn, en þá brá til þeirra votviðra, sem
urðu ríkust einkenni sumarsins. Ivartöfluniðursetn-
ing drógst víða, svo eigi var henni lokið að fullu fyrr
en um 10. júní.
Júli var veðrasamur, sólarlítill og votviðri úr hófi
fram. Öskufall var töluvert frá 6.—9. og tafði fyrir
að sláttur byrjaði. Sláttur hófst víðast 10.—20., og var
grasvöxtur yfir meðallag. Hlýindi í meðallagi, en vot-
viðri svo tíð, að töður náðust lítt eða ekki í mánuð-
inum. Bygg skreið með síðasta móti eða 15.—20., og
hafrar 20.—25. s. m., og hefur aldrei svo seint orðið
siðan kornyrkjutilraunir hófust fyrir 25 árum.
Ágúst var með meðalhlýindum, en votviðri mikil.
Rok ekki teljandi, er skaða gerðu. Þurrkflæsur voru
1., 8., 22. og 26. ágúst, en á þessum 4 dögum náðust
töður inn, stórskemmdar eftir votviðrin víðast hvar.
Túnaslætli var víðast lokið um 20. s. m. Korn og gras-
fræ náði ekki fullum þroska í mánuðinum, og er það
óvenjulegt.
Sicptembcv var fremur kaldur og hin sama vætutið
hélzl með aðeins fáum úrtökum. Þurrkflæsur urðu
1., 2., 3., 6., 9., 10., 15. og 16. Þann 11. gerði afspyrnu-
rok á suðaustan, er olli heyfoki í Fljótshlíð og undir
Eyjafjöllum. Víðast lokið slætti 10. sept. og náðust
heyin að mestu í mánuðinum, meira og minna hrakin
og úr sér sprottin, korn varð fullþroska 15.-—20., en
uppskera óvenjulega litil vegna foks, er varð 11. s. m.
Grasfræ varð seint fullþroska og nýttist illa, kartöflu-